Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Síða 60
52 Fólk Helgarblað 29. apríl–2. maí 2016
K
örfuboltastelpan Dagný
Lísa Davíðsdóttir er 19 ára
Hvergerðingur sem hefur
undanfarin tvö ár verið bú-
sett í Bandaríkjunum þar
sem hún stundar nám í mennta-
skóla, býr á heimavist og spilar
körfubolta. Hún segir reynsluna
mjög dýrmæta og draumi líkasta.
Spilaði með strákunum
Þegar Dagný Lísa var sex ára göm-
ul byrjaði hún að æfa körfubolta
með Hamri í Hveragerði. Með ár-
unum flosnaði upp úr kvenna-
liðinu og þegar hún var komin í 6.
bekk byrjaði hún að æfa með strák-
um því stelpurnar náðu ekki lengur
að mynda lið. Eftir tveggja ára leik
með strákunum byrjaði Dagný Lísa
að spila með meistaraflokki Ham-
ars, sem miðað við aldur hennar þá
var afar sjaldgæft.
„Já, ég var frekar ung og það er
vissulega fáheyrt að byrja að æfa
með meistaraflokki á þessum aldri.
Ég mæli ekkert endilega með því
fyrir alla en þetta hentaði mér vel.
Ég var snemma mjög hávaxin og
út úr þessu fékk ég alveg frábæra
reynslu. Ég spilaði svo með meist-
araflokki Hamars í fjögur ár eða þar
til ég flutti hingað út.“
Lífið í West Chester í Pennsyl-
vaníu segir Dagný Lísa ekki vera
frábrugðið sveitalífinu í Hveragerði
enda er skólinn hennar staðsettur
aðeins utan við bæinn sem er lítill
og íbúar um 20 þúsund.
„Þetta er voða mikið úti í sveit en
hér er hvort tveggja stór skógur og
stöðuvatn. Maður er rosalega frjáls
hérna og þetta hentar mér mjög
vel. Ég hef aðlagast fljótt og bjóst
raunar við meiri erfiðleikum við
flutningana út. Stærsta breytingin
er í rauninni að ég bý ekki lengur
hjá mömmu og pabba. Það er ekk-
ert elsku mamma hér! Svo var líka
skrítið að tala ensku við alla allan
daginn. Mér fannst erfitt að geta
ekki skipt yfir í íslensku í smá stund
og þurfa til dæmis að margfalda og
deila á ensku. En eins og ég segi þá
vandist þetta mjög fljótt.“
Jafnræði milli skóla og íþrótta
Í skólanum sem Dagný stund-
ar nám við fylgjast íþróttirnar og
skólinn algjörlega að og það er ekki
í boði að standa sig vel á aðeins
öðru sviðinu.
„Hér er ég með stelpum í liði
sem eru líka með mér í stærðfræði
og efnafræði. Þjálfarinn minn vinn-
ur í skólanum mínum og ég hitti
hann á göngunum í frímínútum.
Kennararnir mínir fylgjast grannt
með gangi mála í körfunni og þjálf-
arinn veit hvernig námið gengur.
Krakkarnir sem standa sig ekki í
skólanum fá því ekki að spila og ef
þú stendur þig bara í körfunni þá
er það ekki nóg. Þetta fyrirkomulag
býður upp á meiri skilning á báða
bóga og mikið er lagt upp úr því
að finna gott jafnvægi milli íþrótt-
anna og námsins. Heima eru þessir
þættir alveg aðskildir og það getur
gert það flóknara að standa sig vel
í hvoru tveggja námi og íþróttum.“
Þá virðist Dagný Lísa hvorki vera
í vandræðum með námið né íþrótt-
irnar enda hafa þjálfarar úr háskól-
um víðs vegar í Bandaríkjunum
sett sig í samband við hana og hún
var valin á svokallaðan Dean's-lista
fyrir framúrskarandi námsárangur.
Sjálf gerir Dagný Lísa ekki mikið úr
velgengni sinni en segist vera búin
að skrifa undir samning með full-
um skólastyrk
við Niagara
University
rétt fyrir utan
Buffalo í New
York-fylki fyrir
næsta haust.
„Fyrir mig
var það mikið
afrek að kom-
ast á Dean's-
listann. Mað-
ur kemst á
þann lista fyrir
góða hegðun
og samskipti
við kennara og
samnemend-
ur en einnig
þarf maður
að vera með
yfir 8,5 í öll-
um fögum. Ég
ætla ekki að
segja að þetta
hafi verið
auðvelt og fyrir mig var þetta heil-
mikið afrek. Svona kerfi er í öllum
skólum í Bandaríkjunum og það
er horft til þessara lista þegar fólk
er valið inn í háskóla. Ég stefndi
alltaf að því að fara til Bandaríkj-
anna í háskóla, en að vera hér í
menntaskóla líka er algjör bónus.
Þetta er svo ótrúlegt því ég var búin
að skoða og kynna mér alls konar
háskóla áður en ég flutti hingað og
svo eru allt í einu þjálfarar úr þess-
um sömu háskólum farnir að hafa
samband við
mig, senda
mér sms og
kynna sig fyrir
mér. “
Gleðin
leynir sér ekki
enda hefur
Dagný Lísa
svo sannar-
lega komist
á þann stað
sem hún ætl-
aði sér. Að
lokum leggur
hún áherslu
á að jafnaldr-
ar hennar noti
þetta tímabil
í lífinu til þess
að láta drauma
sína rætast.
„Ég er ung
og hef engu að
tapa og hefði
ekki trúað því
hvað þessi reynsla hefur gert mikið
fyrir mig. Ég hvet jafnaldra mína til
þess að nýta þetta tímabil í að gera
það sem þeir virkilega vilja gera.“
Það verður spennandi að sjá
hvert framtíðin leiðir þessa ótrú-
lega efnilegu stelpu sem horfir full
eftirvæntingar fram á veginn. n
„Er ung og hEf
Engu að tapa“
Körfuboltastjarna úr Hveragerði á fullum skólastyrk í New York
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
Í leik Dagný Lísa byrjaði sex ára gömul að æfa körfubolta. Skrifað undir Lífið í West Chester í Pennsylvaníu segir Dagný Lísa ekki vera frábrugðið
sveitalífinu í Hveragerði.
Gengur vel í skólanum Dagný Lísa
státar af framúrskarandi námsárangri.
„Ég hvet
jafnaldra mína
til þess að nýta þetta
tímabil í að gera það sem
þeir virkilega vilja gera.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera skemmtilegur,
jákvæður, harðduglegur, samviskusamur, heiðarlegur,
ábyrgur, úrlausnamiðaður, hafa áhuga á sölumennsku
og markaðsmálum.
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði
fyrir góðan og duglegan sölumann.
Umsóknir sendist á Steinn@dv.is
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir
góðan og harðduglegan starfsmann.