Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Síða 33
Helgarblað 29. apríl–2. maí 2016 Kynningarblað - Gæða gólfefni 5
Spennandi nýjungar í gólfefnum
Parket & Gólf: Toppþjónusta, gæði og gott verð í 28 ár
M
argar spennandi nýj
ungar í gólfefnum er nú
að finna hjá Parket & Gólf,
Ármúla 32, til dæmis
vínyl parket, teppaflísar
og ofinn gólfdúk. Enn fremur eru
veggfóður og gólfteppi mjög vinsæl
nú um stundir og finna má allt það
flottasta í þeim efnum hjá Parket &
Gólf. Nýjungagirni í bland við afar
trausta þjónustu einkennir starf
semina.
Vatnshelt gólfefni og nýjungar í
harðparketi
„Mest of okkar efni kemur frá
Evrópulöndum og birgjarnir okkar
eru margir með langa framleiðslu
sögu. Sem dæmi um það má nefna
parketframleiðandann Haro sem
hefur starfað í 150 ár,“ segir Elías H.
Melsted, sölustjóri hjá Parket & Gólf.
Meðal nýjunga hjá versluninni er
vatnshelt gólfefni – vínylparket sem
hægt er að leggja í baðherbergjum,
eldhúsum og þvottahúsum, sem og
öllum rýmum.
„Vínyldúkurinn er fáanlegur
með smellukerfi, sem gerir lagn
ingu hans auðveldari enda þarf ekki
að líma hann,“ segir Elías. Vínyl
parketið er afar slitsterkt og er það
vinsæll kostur í leiguíbúðum auk
þess sem stéttarfélög hafa valið það
í sumarbústaði.
Ofinn vínydúkur er síðan einstök
nýjung, en þar er um að ræða um
hverfisvæna hátæknivöru af
gerðinni Bolon, efni sem þolir vel
bleytu og er afar slitsterkt og auðvelt
í þrifum. Bolon er sænskt fjölskyldu
fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í að
endurvinna vínylefni. „Við höfum
notað þetta efni víða, t.d. í versl
unum, veitingahúsum, hótelum og
gistiheimilum, en einnig á mörgum
heimilum. Þetta efni er einnig mjög
vinsælt í mottur,“ segir Elías.
Nýjungar og endurbætur ein
kenna líka harðparketið hjá Parket
& Gólf. Kjarninn er þéttari en áður
og tvöföld vatnsvörn er, bæði í
kjarna og smellu. Harðparketið er
núna fáanleg með áföstu undirlagi
eða áföstu lími.
Teppaflísar
Teppaflísar eru alltaf að verða vin
sælli, sér í lagi í fyrirtækjum að sögn
Elíasar: „Með teppaflísum getum
við leikið okkur með liti og mynst ur,“
segir hann en bendir á að teppi séu
almennt einnig að sækja í sig veðrið:
„Klárlega eru það fyrst og fremst
hótelin og gistihúsin sem koma þar
sterkast inn en fólk er einnig að
kveikja á þessu gólfefni fyrir eigin
heimili. Kostir þeirra eru enda
margir, bæði dempa þau vel hljóð
og svo eru þau hlýleg og gott að
ganga á þeim. Teppaflísarnar okkar
eru með aukinni hljóðdempun eða
jafnvel áföstu lími sem auðveldar
lagningu til muna.“
Viðarparket
„Þó gerviefnin sæki sífellt á í gólf
efnum er alltaf kúnnahópur sem kýs
heldur viðarparket. Það er ákveðinn
hópur sem vill ekta við en ekki gervi.
Þar hefur eikin verið allsráðandi
síðustu ár enda hægt að leika sér
dálítið með hana hvað varðar lita
tóna,“ segir Elías.
Veggfóðrið
„Veggfóðrið er að koma aftur og það
er gaman að sjá. Veggfóðrið er of
boðslega spennandi efni enda er
úrvalið nánast takmarkalaust,“ segir
Elías, en skoða má hið mikla úrval af
veggfóðri á heimasíðu fyrirtækisins,
www.parketoggolf.is. Á vefsíðunni
er líka einfalt og þægilegt að panta
veggfóðrið og tekur aðeins fimm
daga að fá það afhent.
Traust þjónusta í
næstum þrjá áratugi
Parket & Gólf hefur verið starfandi
í 28 ár og stefna fyrirtækisins hefur
alltaf verið að bjóða upp á topp
þjónustu, mikil vörugæði og gott
verð. Sem fyrr segir er verslunin
staðsett að Ármúla 32, 105 Reykja
vík, og þar er afar gott úrval sýnis
horna af vörum fyrirtækisins. Lager
verslunarinnar er í Skeifunni 7.
Verslunin er opin virka daga frá 9 til
18. Afgreiðslutími á lagernum er 11
til 16 alla virka daga. n
Sími: 568-1888
www.parketoggolf.is