Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 14
Vikublað 10.–12. maí 20162 Ferðalok - Kynningarblað Vandaðar líkkistur á hagstæðu verði Trésmiðjan Stígandi var stofnuð árið 1947 T résmiðjan Stígandi á Blönduósi smíðar vand­ aðar líkkistur, bæði hvítar og spónlagðar með viðar­ tegund að vali kaupanda. Kisturnar eru afgreiddar fullbún­ ar, fóðraðar og með kodda, sæng og blæju. Líkklæði er einnig hægt að kaupa sé þess óskað. Kisturnar eru sendar daginn eftir pöntun hvert á land sem er. Að sögn Guðmundar Arnar Sigur­ jónssonar, eins eigenda Stíganda, af­ greiðir fyrirtækið um 30 líkkistur á ári. Flestar eru keyptar í héraðinu, ein­ hverjar fara á Blönduós og Hvamms­ tanga, og svo eru nokkrar afgreiddar vítt og breitt um landið, meðal annars til Reykjavíkur. Segir Guðmundur að ástæðurnar fyrir því að líkkisturnar frá þeim nái svo langt út fyrir héraðið bæði vera gott orðspor fyrirtækisins í líkkistusmíði og að verðið á þeim þyki afar hagstætt miðað við mikil gæði. Starfsemi Trésmiðjunnar Stíg­ anda hvílir á gömlum og traustum grunni. Fyrirtækið var stofnað árið 1947 og hefur ávallt verið staðsett á Norðurlandi, en stofnendur þess komu þó úr Reykjavík. Í dag eru þrír starfsmenn fyrirtækisins í eigenda­ hópnum en starfsmenn eru alls 13, meirihluti þeirra er trésmiðir. Að sögn Guðmundar er starfsem­ in afar fjölbreytt en þó er sérsmíði á innréttingum mjög stór þáttur af starfseminni: „Við erum stærsti aðilinn á svæð­ inu í viðhaldi og nýsmíði og því mikið leitað til okkar um alls konar verkefni. Við erum í raun þjónustu­ fyrirtæki á vakt hér og það er feiki­ lega mikið að gera.“ Trésmiðjan Stígandi tekur að sér allt sem við kemur byggingum og mannvirkjagerð. Á tæknivæddu verkstæði smíða starfsmenn fyrir­ tækisins nánast hvað sem er, allt eftir óskum viðskiptavina. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og persónulega þjónustu. Innréttingar, tréstigar og sumarhús Á heimasíðu Stíganda, stigandihf. is, má finna fróðlegar upplýsingar um ýmsar vörur fyrirtækisins. Áður eru líkkisturnar nefndar en auk þeirra framleiðir Stígandi til dæm­ is mikið af fallegum og vönduðum innréttingum af ýmsu tagi. Þraut­ reyndir starfsmenn eru viðskipta­ vinum til ráðgjafar varðandi efnis­ val og útfærslu, en möguleikarnir eru endalausir. Þá smíðar Stígandi tréstiga af öllum stærðum og gerðum þar sem nýtt er í senn nýjasta tækni og dýr­ mæt reynsla iðnmeistara fyrirtæk­ isins af gömlu handbragði. Enn fremur framleiðir Stígandi sumarhús og smáhýsi til flutnings hvert á land sem er. Meðal annars eru í boði svokölluð hraðhús, sem eru 55 fermetra, byggð úr tveim­ ur einingum sem eru smíðaðar á starfssvæði Stíganda og fluttar á byggingarstaðinn ásamt forsteypt­ um undirstöðum. Auðvelt er að bæta þriðju einingunni við hvenær sem er og stækka húsið þar með upp í 82 fermetra. n Trésmiðjan Stígandi Húnabraut 29, Blönduósi Sími: 452-4123 Netfang: gummi@stigandihf.is Heimasíða: stigandihf.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.