Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 10.–12. maí 201616 Sport
Djarft val lars og Heimis
G
unnleifur Gunnleifsson, Sölvi
Geir Ottesen, Rúrik Gíslason
og Viðar Örn Kjartansson eru
á meðal þeirra leikmanna
sem bíta í það súra epli að
komast ekki í 23 manna hópinn sem
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgríms-
son hafa valið til að fara fyrir Íslands
hönd á fyrsta stórmót íslenska karla-
landsliðsins í fótbolta. Sjö leikmenn,
með færri en tíu landsleiki á bakinu,
fara hins vegar með – þar af fjórir lítt
reyndir varnarmenn.
Ungir leikmenn á kostnað eldri
Lars og Heimir tilkynntu EM-hóp-
inn með pomp og prakt að viðstöddu
fjölmenni í höfuðstöðvum KSÍ í gær,
mánudag. Af viðbrögðum úr sal mátti
dæma að valið kom blaðamönnum
nokkuð á óvart. Þar áttu líklega fæst-
ir von á því að fjórir af átta völdum
varnarmönnum hefðu spilað á bilinu
tvo til sex landsleiki. Á sama tíma voru
leikmenn eins og Sölvi Geir Ottesen,
sem býr að þremur tugum a-lands-
leikja, og hefur oftast verið í hópn-
um í keppnisleikjum á undanförnum
misserum, skilinn eftir heima.
Þá var markvörðurinn Ingvar Jóns-
son valinn í hópinn, líklega á kostnað
reynsluboltans Gunnleifs Gunnleifs-
sonar. Það má því segja að hópurinn
sé yngri en látið var að liggja í fjölmiðl-
um. Það er því auðvelt að leggja það
mat á valið að það hafi verið djarft.
Í svörum landsliðsþjálfaranna við
spurningum fjölmiðlamanna kom
fram að umræddir 23 leikmenn væru
valdir vegna hæfileika sinna og getu,
en að þjálfararnir hefðu ekki horft
til þátta á borð við vinskapar eða
reynslu. Þannig gáfu þeir lítið fyrir
þá staðreynd að Rúrik Gíslason , sem
ekki er í hópnum, er vinur og hef-
ur verið herbergisfélagi Arons Einars
Gunnarssonar í landsliðsferðum.
Geta leikmanna hefði vegið þyngra í
vali þeirra en félagslegir þættir.
Eiður Smári eða Viðar Örn
Kliður fór um salinn þegar síð-
asta sætið var kynnt – í hádramat-
ísku myndbandi Dags Sveins Dag-
bjartssonar, starfsmanns KSÍ. Á
þeim tímapunkti var ljóst að nokkr-
ir reynslumiklir leikmenn yrðu skild-
ir eftir heima. Valið virtist standa
á milli Eiðs Smára og Viðars Arn-
ar, enda var um framherjastöðu að
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
n Geta leikmanna vó þyngra en reynsla og félagslegir þættir n Myndbandið sló í gegn á fundinum n Margir ungir leikmenn fara til Frakklands„Hann hefur
sýnt að
hann er líklega
sá leikmaður í
hópnum sem fer
best með boltann
Ari Freyr
Skúlason
Fæddur: 1987
Landsleikir/mörk: 37/0
Félag: OB
Emil
Hallfreðsson
Fæddur: 1984
Landsleikir/mörk: 52/1
Félag: Udinese
Theódór Elmar
Bjarnason
Fæddur: 1987
Landsleikir/mörk: 25/0
Félag: AGF
Haukur Heiðar
Hauksson
Fæddur: 1991
Landsleikir/mörk: 6/0
Félag: AIK
Rúnar Már
Sigurjónsson
Fæddur: 1990
Landsleikir/mörk: 9/1
Félag: Sundsvall
Hörður Björgvin
Magnússon
Fæddur: 1993
Landsleikir/mörk: 3/0
Félag: Cesena
Jón Daði
Böðvarsson
Fæddur: 1992
Landsleikir/mörk: 20/1
Félag: Kaiserslautern
Ragnar
Sigurðsson
Fæddur: 1986
Landsleikir/mörk: 51/1
Félag: Krasnodar
Eiður Smári
Guðjohnsen
Fæddur: 1978
Landsleikir/mörk: 84/25
Félag: Molde
Aron Einar
Gunnarsson
Fæddur: 1989
Landsleikir/mörk: 57/2
Félag: Cardiff City
Gylfi Þór
Sigurðsson
Fæddur: 1989
Landsleikir/mörk: 37/12
Félag: Swansea
Þjálfarar með höfuðverk Heimir Hallgrímsson sagði að afar erfitt hafi verið að velja
hópinn, enda margir kallaðir til. Sex leikmenn eygja enn von um að komast að.