Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 4
Vikublað 10.–12. maí 20164 Fréttir S kuldabréfasjóðir á vegum bandaríska sjóðastýringar­ fyrirtækisins Eaton Vance Management eiga ís­ lensk ríkisskuldabréf í krónum fyrir nærri 40 milljarða. Að langstærstum hluta er um að ræða aflandskrónur, sem hafa verið fastar á bak við fjármagnshöft hérlendis undanfarin ár, en einnig óverðtryggð ríkisskuldabréf sem sjóðir í stýringu Eaton Vance hafa verið að kaupa á síðustu mánuðum og misserum í gegnum nýfjárfestingaleið Seðla­ banka Íslands. Samkvæmt yfirlitum um eigna­ samsetningu verðbréfasjóða í stýr­ ingu hjá Eaton Vance í lok mars á þessu ári er fyrirtækið með fimm skuldabréfasjóði sem eiga eignir í íslenskum krónum auk þess sem einn hlutabréfasjóður átti skráð ís­ lensk hlutabréf fyrir um 500 millj­ ónir króna. Það sem vekur einkum eftirtekt er að þegar litið er til gjald­ miðlasamsetningar eigna skulda­ bréfasjóðanna þá er krónueign þeirra í öllum tilfellum á meðal hlut­ fallslega stærstu eigna sjóðanna. Þannig er krónueign tveggja stærstu skuldabréfasjóðanna – Global Macro Absolute Return Advantage Fund og Global Macro Absolute Return Fund – næststærsta eign þeirra, en samtals eru sjóðirnir með krónueignir í stýr­ ingu að fjárhæð 34 milljarða. Tæp­ lega 5% af um samtals 700 milljarða hreinni eign skuldabréfasjóðanna eru krónueignir. Eru sjóðirnir því með gnóttstöðu (e. long position) í krónunni og hafa verið að bæta við eign sína í íslenskum ríkisskulda­ bréfum þar sem „innlendar skuldir landsins hafa orðið enn eftirsóknar­ verðari“, eins og segir í gögnum frá skuldabréfasjóðunum. Eaton Vance Management, eitt af stærstu sjóðastýringarfyrirtækjum heims, er á meðal þeirra erlendu fjár­ málafyrirtækja sem eiga hvað mestra hagsmuna að gæta þegar kemur að því að leysa út um 290 milljarða aflandskrónueignir í fyrirhuguðu út­ boði Seðlabankans í næsta mánuði. Þá mun aflandskrónueigendum bjóðast að losna strax með fé sitt úr landi í gegnum gjaldeyrisforða Seðlabankans með verulegu álagi eða að skipta á eignum sínum fyrir ríkisskuldabréf í krónum til 20 ára með útgöngugjaldi fyrstu sjö árin eða skuldabréfi til meðal langs tíma í evrum. Þeir fjárfestar sem fallast ekki á þessi skilyrði stjórnvalda enda með krónueignir sínar á læstum reikning­ um, eða svonefndum stöðugleika­ reikningum, til langs tíma á engum eða neikvæðum vöxtum. Frumvarp um stöðugleikareikninga ætti að verða lagt fram á Alþingi í þessari viku eða þeirri næstu. Lýtur öðrum lögmálum Rétt eins og fjallað hefur verið um í DV þá íhuga sumir af umsvifamestu eigendum aflandskróna, meðal annars Eaton Vance, að taka ekki þátt í gjaldeyrisútboði Seðlabankans og velja fremur þann kost að enda með fé sitt á læstum reikningum. Eru sjóðirnir sagðir vera ekki reiðubún­ ir að selja krónueignir sínar á gengi sem er tugprósentum lægra en opin­ bert gengi krónunnar og kanna þeir því núna hvaða lagalegu úrræði þeir hafa til að bregðast við væntanlegum aðgerðum stjórnvalda. Þannig hafa sjóðirnir meðal annars leitað til ís­ lenskra ráðgjafa til að greina betur stöðu sína. Í fjárhagsupplýsingum frá sjóðun­ um, til dæmis hjá Eaton Vance og bandaríska sjóðastýringarfyrirtæk­ inu Loomis Sayles, má hins vegar sjá að þeir telja að markaðsvirði þessara aflandskrónueigna sé nærri 40% lægra miðað við skráð gengi krón­ unnar. Með öðrum orðum vænta þeir þess að við útgöngu úr höftum, þar sem þeir selja krónueignir sín­ ar fyrir erlendan gjaldeyri úr forða Seðlabankans, verði gengið um 195 krónur gagnvart evru. Til saman­ burðar var gengið í þeim gjaldeyris­ útboðum sem Seðlabankinn hélt í tengslum við fjárfestingaleiðina á árunum 2011 til 2015 að meðaltali um 220 krónur gagnvart evru. Rétt er að hafa í huga að aflandskrónur eru sérstakur eignaflokkur sem lýtur öðrum lögmálum en venjulegar krónur, sem hafa ríkari heimildir til fjárfestinga hérlendis, og eru því fyrir vikið talsvert ódýrari en aðrar íslenskar krónur. Kaupir íslensk hlutabréf Þrátt fyrir að fyrirséð sé að erlendir aðilar á borð við Eaton Vance þurfi að taka á sig tugprósenta afföll af krónueignum sínum taki þeir þátt í gjaldeyrisútboði Seðlabankans þá hafa þeir verið að fjárfesta á síð­ ustu mánuðum í skráðum hlutabréf­ um og ríkisskuldabréfum á Íslandi. Þannig var greint frá því í DV í lok febrúar á þessu ári að fjárfestingar­ sjóðurinn Global Macro Portfolio, sem er stýrt af Boston Re search and Management, dótturfélagi Eaton Vance, væri kominn í hóp tuttugu stærstu hluthafa HB Granda og Eim­ skipa. Er eignarhlutur sjóðsins í þessum tveimur félögum metinn á um 900 milljónir króna en auk þess hafa aðrir sjóðir tengdir Eaton Vance verið að kaupa fyrir talsverðar fjár­ hæðir í öðrum fyrirtækjum sem eru skráð í Kauphöll Íslands. n Stærstu eignir sumra sjóða Eaton Vance í krónum n Skuldabréfasjóðir eiga krónur fyrir 40 milljarða n Er í hópi stærstu aflandskrónueigenda Hörður Ægisson hordur@dv.is S HELGASON - Steinsmiðja síðan 1953 Opnunartími Mán - fim 9:00 -18:00 Föstudaga 9:00 - 17:00 Laugardaga 10:00 -14:00 Sími: 557 6677 Netfang: shelgason@shelgason.is www.shelgason.is SJÓNMÆLINGAR LINSUR • GLERAUGU Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.