Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 4
Vikublað 10.–12. maí 20164 Fréttir
S
kuldabréfasjóðir á vegum
bandaríska sjóðastýringar
fyrirtækisins Eaton Vance
Management eiga ís
lensk ríkisskuldabréf í
krónum fyrir nærri 40 milljarða. Að
langstærstum hluta er um að ræða
aflandskrónur, sem hafa verið fastar
á bak við fjármagnshöft hérlendis
undanfarin ár, en einnig óverðtryggð
ríkisskuldabréf sem sjóðir í stýringu
Eaton Vance hafa verið að kaupa á
síðustu mánuðum og misserum í
gegnum nýfjárfestingaleið Seðla
banka Íslands.
Samkvæmt yfirlitum um eigna
samsetningu verðbréfasjóða í stýr
ingu hjá Eaton Vance í lok mars á
þessu ári er fyrirtækið með fimm
skuldabréfasjóði sem eiga eignir í
íslenskum krónum auk þess sem
einn hlutabréfasjóður átti skráð ís
lensk hlutabréf fyrir um 500 millj
ónir króna. Það sem vekur einkum
eftirtekt er að þegar litið er til gjald
miðlasamsetningar eigna skulda
bréfasjóðanna þá er krónueign
þeirra í öllum tilfellum á meðal hlut
fallslega stærstu eigna sjóðanna.
Þannig er krónueign tveggja stærstu
skuldabréfasjóðanna – Global Macro
Absolute Return Advantage Fund og
Global Macro Absolute Return Fund
– næststærsta eign þeirra, en samtals
eru sjóðirnir með krónueignir í stýr
ingu að fjárhæð 34 milljarða. Tæp
lega 5% af um samtals 700 milljarða
hreinni eign skuldabréfasjóðanna
eru krónueignir. Eru sjóðirnir því
með gnóttstöðu (e. long position) í
krónunni og hafa verið að bæta við
eign sína í íslenskum ríkisskulda
bréfum þar sem „innlendar skuldir
landsins hafa orðið enn eftirsóknar
verðari“, eins og segir í gögnum frá
skuldabréfasjóðunum.
Eaton Vance Management, eitt af
stærstu sjóðastýringarfyrirtækjum
heims, er á meðal þeirra erlendu fjár
málafyrirtækja sem eiga hvað mestra
hagsmuna að gæta þegar kemur
að því að leysa út um 290 milljarða
aflandskrónueignir í fyrirhuguðu út
boði Seðlabankans í næsta mánuði.
Þá mun aflandskrónueigendum
bjóðast að losna strax með fé sitt
úr landi í gegnum gjaldeyrisforða
Seðlabankans með verulegu álagi
eða að skipta á eignum sínum fyrir
ríkisskuldabréf í krónum til 20 ára
með útgöngugjaldi fyrstu sjö árin
eða skuldabréfi til meðal langs tíma í
evrum. Þeir fjárfestar sem fallast ekki
á þessi skilyrði stjórnvalda enda með
krónueignir sínar á læstum reikning
um, eða svonefndum stöðugleika
reikningum, til langs tíma á engum
eða neikvæðum vöxtum. Frumvarp
um stöðugleikareikninga ætti að
verða lagt fram á Alþingi í þessari
viku eða þeirri næstu.
Lýtur öðrum lögmálum
Rétt eins og fjallað hefur verið um í
DV þá íhuga sumir af umsvifamestu
eigendum aflandskróna, meðal
annars Eaton Vance, að taka ekki
þátt í gjaldeyrisútboði Seðlabankans
og velja fremur þann kost að enda
með fé sitt á læstum reikningum. Eru
sjóðirnir sagðir vera ekki reiðubún
ir að selja krónueignir sínar á gengi
sem er tugprósentum lægra en opin
bert gengi krónunnar og kanna þeir
því núna hvaða lagalegu úrræði þeir
hafa til að bregðast við væntanlegum
aðgerðum stjórnvalda. Þannig hafa
sjóðirnir meðal annars leitað til ís
lenskra ráðgjafa til að greina betur
stöðu sína.
Í fjárhagsupplýsingum frá sjóðun
um, til dæmis hjá Eaton Vance og
bandaríska sjóðastýringarfyrirtæk
inu Loomis Sayles, má hins vegar sjá
að þeir telja að markaðsvirði þessara
aflandskrónueigna sé nærri 40%
lægra miðað við skráð gengi krón
unnar. Með öðrum orðum vænta
þeir þess að við útgöngu úr höftum,
þar sem þeir selja krónueignir sín
ar fyrir erlendan gjaldeyri úr forða
Seðlabankans, verði gengið um 195
krónur gagnvart evru. Til saman
burðar var gengið í þeim gjaldeyris
útboðum sem Seðlabankinn hélt í
tengslum við fjárfestingaleiðina á
árunum 2011 til 2015 að meðaltali
um 220 krónur gagnvart evru. Rétt
er að hafa í huga að aflandskrónur
eru sérstakur eignaflokkur sem lýtur
öðrum lögmálum en venjulegar
krónur, sem hafa ríkari heimildir
til fjárfestinga hérlendis, og eru því
fyrir vikið talsvert ódýrari en aðrar
íslenskar krónur.
Kaupir íslensk hlutabréf
Þrátt fyrir að fyrirséð sé að erlendir
aðilar á borð við Eaton Vance þurfi
að taka á sig tugprósenta afföll af
krónueignum sínum taki þeir þátt
í gjaldeyrisútboði Seðlabankans
þá hafa þeir verið að fjárfesta á síð
ustu mánuðum í skráðum hlutabréf
um og ríkisskuldabréfum á Íslandi.
Þannig var greint frá því í DV í lok
febrúar á þessu ári að fjárfestingar
sjóðurinn Global Macro Portfolio,
sem er stýrt af Boston Re search and
Management, dótturfélagi Eaton
Vance, væri kominn í hóp tuttugu
stærstu hluthafa HB Granda og Eim
skipa. Er eignarhlutur sjóðsins í
þessum tveimur félögum metinn á
um 900 milljónir króna en auk þess
hafa aðrir sjóðir tengdir Eaton Vance
verið að kaupa fyrir talsverðar fjár
hæðir í öðrum fyrirtækjum sem eru
skráð í Kauphöll Íslands. n
Stærstu eignir
sumra sjóða Eaton
Vance í krónum
n Skuldabréfasjóðir eiga krónur fyrir 40 milljarða n Er í hópi stærstu aflandskrónueigenda
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
S HELGASON
- Steinsmiðja síðan 1953
Opnunartími
Mán - fim 9:00 -18:00
Föstudaga 9:00 - 17:00
Laugardaga 10:00 -14:00
Sími: 557 6677
Netfang: shelgason@shelgason.is
www.shelgason.is
SJÓNMÆLINGAR
LINSUR • GLERAUGU
Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík
Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is