Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 11
Vikublað 10.–12. maí 2016 Fréttir 11 PLUSMINUS OPTIC Smáralind www.plusminus. is Sumar kaupauki Sólgler með öllum gleraugum Index 1,5* Sjóngler Náttúrulegar hágæða gæludýravörur Aldrei tApAð kosningum n Eru enn kosningagaldrar í gömlum skóm Davíðs? n Umdeildur, farsæll og vill nú forsetann 2004 Veikindi Davíð Oddsson greinist með krabbamein í nýrum og hálsi en hafði sigur í þeirri baráttu. 2004 Hrókering Í stjórnarmyndunarvið­ ræðunum í kjölfar kosning­ anna 2003 varð samkomu­ lag milli Davíðs og Halldórs að sá síðarnefndi tæki við forsætisráðherraemb­ ættinu eftir eitt og hálft ár. Höfðu formenn stjórnar­ flokkanna því sætaskipti og Davíð varð utanríkis­ ráðherra um haustið. 2016 Forsetaframboð Sunnudaginn 8. maí síðastliðinn tilkynnti Davíð að hann hygðist gefa kost á sér til forseta Íslands eftir sjö ár á ritstjórastól Morgunblaðsins. Enn á eftir að koma í ljós hvernig sú ákvörðun mælist fyrir hjá þjóðinni og verður því fróðlegt að sjá fyrstu skoðanakönnun eftir tilkynninguna. 2004 Átök við Ólaf Vorið 2004 lagði Davíð fram fjöl­ miðlafrumvarpið umdeilda sem margir sáu sem hluta af baráttu forsætisráð­ herrans gegn sívaxandi umsvifum og völdum Baugsfeðganna. Frumvarpinu var ætlað að setja hömlur á eignarhald stórfyrirtækja á fjölmiðlum og sam­ þjöppun eignarhalds. Frumvarpið var samþykkt með breytingum sumarið 2004 en steig þá fram Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og synjaði því staðfestingar og varð fyrsti forsetinn til að gera það og vísa til þjóðaratkvæða­ greiðslu. Davíð var foxillur út í forsetann og var frumvarpið dregið til baka áður til þjóðaratkvæðagreiðslu kom. 2009 Ritstjórinn Davíð Margir ráku upp stór augu þegar tilkynnt var í lok september 2009, tæpu ári eftir hrunið, að Davíð hefði verið ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins ásamt Haraldi Johannessen sem hafði verið ritstjóri Viðskiptablaðsins. DV greindi frá því að Morgunblaðið hefði tapað ríflega tíu þúsund áskrifendum við ráðningu Davíðs. 2008 Hrunið og þáttur Davíðs Seta Davíðs í Seðlabankanum varð síður en svo þægilegur reiðtúr út í sólarlagið á hinum opinbera vett­ vangi. Verulega hitnaði undir Davíð í efnahagshruninu 2008, þar sem umdeildar ákvarðanir og tæknilegt gjaldþrot Seðlabankans skrifuðust að stórum hluta á hans reikning sem og hrunið sjálft. Tímaritið Time setti Davíð á lista yfir 25 einstak­ linga á alþjóðavísu sem báru mesta ábyrgð á efnahagshruninu. 2009 Borinn út úr Seðlabankanum Eftir fall hrunstjórnar­ innar í ársbyrjun 2009 var Davíð settur af sem aðalbankastjóri auk þeirra Eiríks Guðnasonar og Ingimundar Friðrikssonar, og Norðmaðurinn Svein Harald Öygard ráðinn tímabundið seðlabankastjóri. Á lands­ fundi Sjálfstæðisflokksins í lok mars 2009 líkti Davíð brotthvarfi sínu úr Seðla­ bankanum við krossfestingu Jesú Krists. Lýsti hann í mikilli eldræðu sinni aðför vinstristjórnarinnar að sér sem „lágkúrulegri aðgerð“ sem drifin hefði verið áfram af „hefndaræði.“ 2005 Í Seðlabankann Davíð tilkynnir í september að hann ætli að stíga til hliðar úr stjórnmál­ um eftir sextán ára valdasetu og taka við stöðu aðalbankastjóra Seðlabankans. Halldór Ásgrímsson skipaði hann í stöðuna. Á lver Norðuráls á Grundar- tanga var rekið með 45,8 millj- óna dala hagnaði, jafnvirði 5,6 milljarða króna, í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins var tæplega helmingi lægri en árið 2014 þegar hann nam 82,7 milljónum dala. Samkvæmt nýbirtum ársreikn- ingi Norðuráls Grundartanga ehf. námu tekjur fyrirtækisins 581 millj- ón dala, rúmum 72 milljörðum króna, í fyrra og drógust saman um 16 milljónir dala milli ára. Rekstr- arkostnaður nam 476 milljónum dala samanborið við 430 árið 2014. Eignir fyrirtækisins voru í árslok 2015 metnar á 683 milljónir dala en eigið fé þess var þá jákvætt um rétt tæpar 400 milljónir dala. Um 567 manns störfuðu þá hjá álverinu samanborið við 549 í lok 2014. n Norðurál hagnast um 5,6 milljarða Afkoma álversins á Grundartanga helmingi lakari Grundartangi Tekjur álvers Norðuráls námu jafnvirði 72 milljarða króna í fyrra. Mynd SkeSSuhorn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.