Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 25
Vikublað 10.–12. maí 2016 Sport 17 Djarft val lars og Heimis ræða. Eiður Smári birtist á skjánum og ljóst var að Viðar Örn – sem skor­ aði öll þrjú mörkin fyrir Malmö um helgina – yrði skilinn eftir heima. „Ég hef fylgst með mörgum blaðamannafundum þar sem hópur er kynntur en hef ekki séð neitt sem jafnast á við þetta,“ sagði blaðamað­ urinn Steve Crossman í viðtali við fotbolti.net þegar hópurinn lá fyr­ ir og myndbandið hafði verið leikið fyrir viðstadda. Heimir fór á blaðamannafundin­ um yfir stöðu þeirra leikmanna sem glímt hafa við meiðsli. Kolbeinn Sig­ þórsson hefur fundið til í hnénu að undanförnu og er þessa dagana í meðhöndlun hjá læknateymi lands­ liðsins. Aron Einar Gunnarsson er á batavegi eftir að hafa meiðst á ökkla, en hann þarf líklega að fara í aðgerð eftir EM. Þá hefur Gylfi Þór Sigurðs­ son kennt sér meins í öxl en það mun vera smávægilegt. Hann getur nú hvílt þar til hópurinn kemur saman til æfinga þann 23. maí. Ekki hræddur við að velja unga leikmenn „Það er góð tilfinning að hafa klárað að setja saman hópinn,“ sagði Lars Lagerbäck í viðtali eftir fundinn. Taka má fram að sex leikmenn verða í startholunum en landsliðsþjálfar­ arnir geta gert breytingar út maí­ mánuð. Á hliðarlínunni bíða Gunn­ leifur Gunnleifsson, Hallgrímur Jónasson, Hólmar Örn Eyjólfsson, Ólafur Ingi Skúlason, Rúrik Gíslason og Viðar Örn Kjartansson. Spurður um valið á reynsluminni leikmönnum hópsins sagði Lars að þetta væru leikmenn sem hefðu stað­ ið sig vel á keppnistímabilinu, hvort tveggja með sínum félagsliðum og í þeim landsliðsverkefnum sem þeir tóku þátt í. „Sverrir [Ingi Ingason], til dæmis, hefur staðið sig afar vel í Belgíu og sýndi góðan leik í vin­ áttuleikjunum. Hann sýndi að hann ætti heima í liðinu.“ Þá sagði hann að Hjörtur Hermannsson væri líklega sá varnarmaður í hópnum sem væri bestur í að senda boltann – þrátt fyrir ungan aldur. „Maður á ekki að vera hræddur við að velja unga menn með hæfileika,“ sagði hann í viðtalinu. Rúnar Sigurjónsson er ef til vill eitthvert óvæntasta nafnið í hópn­ um – þó að hann hafi staðið sig vel með landsliðinu. Lars segir að Rún­ ar búi yfir sérstökum hæfileikum; geti sem miðjumaður skorað mörk og sé afar góður sendingamaður. Hann hafi einnig nýtt tækifæri sín með landsliðinu vel. Hann sagði að­ spurður að Rúrik Gíslason hafi verið mjög nálægt því að komast í hópinn, en Rúrik er að komast á fulla ferð eft­ ir meiðsli. Bestur með boltann Spurður um Eið Smára Guðjohnsen svaraði Lars því til að hann hefði augljóslega bætt sig mikið frá því hann lék í Kína. „Hann hefur sýnt að hann er líklega sá leikmaður í hópn­ um sem fer best með boltann. Hann getur enn gert frábæra hluti og hann skilur leikinn vel.“ Hann sagði að það væri líka áhugavert að fara inn í mótið með fjóra ólíka framherja; en þeir Alfreð og Eiður Smári eru mjög ólíkir Kolbeini og Jóni Daða. Alfreð Finnbogason hefur ver­ ið sjóðheitur hjá liði sínu Augsburg í þýska boltanum eftir áramót. Lars viðurkenndi í viðtali eftir fundinn að Alfreð liti frábærlega út og að hann gerði þeim erfitt fyrir að velja byrj­ unarliðið, þegar þar að kæmi. Það væru hins vegar góðar fréttir. Leik­ mennirnir hér að ofan eru þeir 23 sem verða fulltrúar Íslands á stærsta sviði knattspyrnunnar – þangað sem liðið er komið í fyrsta sinn. Þeir munu bera kyndil Íslands á sínu fyrsta stórmóti í knattspyrnu. n n Geta leikmanna vó þyngra en reynsla og félagslegir þættir n Myndbandið sló í gegn á fundinum n Margir ungir leikmenn fara til Frakklands„Maður á ekki að vera hræddur við að velja unga menn með hæfileika Ingvar Jónsson Fæddur: 1989 Landsleikir/mörk: 4/0 Félag: Sandefjörd Hjörtur Her- mannsson Fæddur: 1995 Landsleikir/mörk: 2/0 Félag: Gautaborg Arnór Ingvi Traustason Fæddur: 1993 Landsleikir/mörk: 6/3 Félag: Norrköping Sverrir Ingi Ingason Fæddur: 1993 Landsleikir/mörk: 4/1 Félag: Lokeren Ögmundur Kristinsson Fæddur: 1989 Landsleikir/mörk: 10/0 Félag: Hammarby Kári Árnason Fæddur: 1982 Landsleikir/mörk: 47/2 Félag: Malmö Kolbeinn Sigþórsson Fæddur: 1990 Landsleikir/mörk: 38/19 Félag: Nantes Hannes Þór Halldórsson Fæddur: 1984 Landsleikir/mörk: 32/0 Félag: Bodö/Glimt Birkir Bjarnason Fæddur: 1988 Landsleikir/mörk: 46/6 Félag: Basel Alfreð Finnbogason Fæddur: 1989 Landsleikir/mörk: 31/7 Félag: Augsburg Jóhann Berg Guðmundsson Fæddur: 1990 Landsleikir/mörk: 45/5 Félag: Charlton Birkir Már Sævarsson Fæddur: 1984 Landsleikir/mörk: 56/0 Félag: Hammarby m y n d ir k sí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.