Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 15
Vikublað 10.–12. maí 2016 Kynningarblað - Ferðalok 3
Heildstæð útfararþjónusta: Skýrar
upplýsingar, nærgætni og virðing
Frímann og Hálfdán – Útfararþjónusta Hafnarfjarðar
F
rímann og Hálfdán – Útfarar
þjónusta veitir syrgjendum
þjónustu sem einkennist af
virðingu og nærgætni og byggir
á mikilli reynslu og þekkingu á
mannlegum samskiptum. Þjónustan
er jafnframt heildstæð og víðtæk og
veittar eru greinargóðar upplýsingar
um kostnað. Saga fyrirtækisins nær
aftur til ársins 2002 er Hálfdán Hálf
dánarson og Ólöf Helgadóttir stofn
uðu Útfararþjónustu Hafnarfjarðar,
en frá árinu 1996 hafa Hálfdán og Ólöf
rekið Fjölsmíð líkkistuvinnustofu.
Árið 2015 bættist Frímann
Andrésson í hópinn og breyttist þá
nafnið í Frímann & Hálfdán – Útfarar
þjónusta Hafnarfjarðar
Á vandaðri heimasíðu fyrirtæk
isins, uth.is, er að finna greinargóð
ar upplýsingar um þjónustu og verð.
Þjónustan sem í boði er getur tekið til
fjölmargra þátta:
Flytja hinn látna í líkhús Aðstoða
við val á kistu, rúmfötum og lík
klæðum Útvega kapellu til kistulagn
ingar Útvega kirkju Panta organista,
söngfólk og hljóðfæraleikara Útvega
legstað í kirkjugarði Panta kistu
skreytingar Aðstoða við val á sálmum
Útbúa sálmaskrá Aðstoða við öflun
líkbrennsluheimildar Útvega duftker
Útvega kross og skilti á leiði Stjórna
útför
Á vefsíðu fyrirtækisins eru mjög
greinargóðar upplýsingar um alla
kostnaðarliði en hér á myndum má
sjá dæmi um vandaðar vörur á hag
stæðu verði.
Frímann og Hálfdán – Útfarar
þjónusta er til húsa að Stapahrauni 5,
Hafnarfirði. Þar er rúmgóð og hlýlega
aðstaða til að taka á móti aðstand
endum. Þar eru einnig líkkistuvinnu
stofa og saumastofa til húsa.
Skrifstofan er opin frá kl. 8 til 17
virka daga, en þjónustan á sér
stað allan sólarhringinn, alla daga
vikunnar. n
Sími: 565-9775.
Netfang: uth@uth.is
Heimasíða: www.uth.is
Vistvæn duftker 9.900 kr.
Hvít kista 116.000 kr.
Demantur, til hvít og svört 276.000 kr.
Hvíta Örkin prentar
sálmaskrárnar fyrir útfarir
Vönduð vinnubrögð, persónuleg og nærgætin þjónusta
P
rentstofan Hvíta Örkin,
sem staðsett er á Hótel
Natura (Hótel Loftleiðum)
við Reykjavíkurflugvöll,
veitir almenna prentþjón
ustu af ýmsu tagi en hefur skapað
sér mikla sérstöðu við hönnun og
framleiðslu sálmaskráa fyrir útfarir.
Hvíta Örkin er þekkt fyrir afar vönd
uð vinnubrögð á þessu sviði, sem
og þjónustu sem er í senn persónu
leg, nærgætin og afar sveigjanleg.
„Það er misjafnt hvað fólk vill
hafa mikil afskipti af hönnun sálma
skrárinnar. Sumir hafa ekki áhuga á
að lesa yfir áður en prentað er, en
þá biðjum við presta eða organista
að gera það. En aðrir eru nákvæm
ari og vilja fá að sjá hvað þeir eru að
fá og þá bjóðum við fólki að koma
til okkar og það sest hérna við tölv
una hjá mér á meðan ég er að brjóta
um,“ segir Ögmundur Kristinsson,
annar eigandi fyrirtækisins. Blaða
maður hefur á orði að þetta hljómi
sem mjög persónuleg þjónusta:
„Já, vissulega. Þetta eru auð
vitað viðkvæmar aðstæður og oft
kemur fólk hingað í sorg, eðli máls
ins samkvæmt. Við kappkostum
að vinna af nærgætni og útbúum
sálmaskrárnar þannig að fólk viti
hvað það er að fá hjá okkur og það
sjái hvernig prentgripurinn mun
líta út í kirkjunni, því oft líta hlutir
öðruvísi út á tölvuskjá en á prenti.
Það er í sjálfu sér ekki gleðiefni en
þó ánægjuleg staðreynd að vegna
okkar vinnubragða og viðmóts leit
ar fólk til okkar aftur. Það er lífs
ins gangur að margir þurfa á þjón
ustu sem þessari að halda oftar en
einu sinni og okkur þykir vænt um
að fólk treysti okkur fyrir þessum
vandasömu verkefnum á erfiðum
stundum.“
Þó að Hvíta Örkin sé staðsett
vestarlega í Reykjavík vinnur fyrir
tækið þessi verkefni fyrir fólk um
allt land:
„Við fáum mikið af verkbeiðn
um utan af landi. En fólk í viðkom
andi byggðarlagi hefur þá einhvern
tíma séð sálmaskrá frá okkur við út
för og hefur þess vegna samband
þegar það þarf á þessari þjónustu
að halda. Þannig hefur orðsporið
breiðst út. Þegar við erum búin að
tala við prestinn eða organistann
á viðkomandi stað er sálmaskráin
lesin yfir og við sendum pdfskjal á
milli. Af því að við erum við Reykja
víkurflugvöll sendum við þetta
stundum með flugi eða, sem er al
gengara, að einhver aðstandandi
sem ætlar að vera við útförina, kem
ur við og tekur sálmaskrána,“ segir
Ögmundur.
Þegar sálmaskrár eru prentaðar
vegna útfara á höfuðborgarsvæðinu
sjá starfsmenn Hvítu Arkarinnar
hins vegar sjálfir um að koma efn
inu til viðkomandi útfararstofu til
að tryggja að það lendi ekki í rangri
kirkju.
Ögmundur mælir með því að
fólk sé tímanlega í að panta prentun
sálmaskrár.
„Við gerum okkur grein fyrir því
að þessi verk eru oft með seinni
skipunum. Í dag er til dæmis útför
klukkan 13 sem við gerðum sálma
skrá fyrir í morgun af því að hún
var ekki tilbúin fyrr. Við erum yfir
leitt alltaf síðastir í röðinni, fólk er
seint til vegna þess að það þarf að
huga að svo mörgu við undirbúning
útfararinnar. Við björgum alltaf öllu
og stökkvum til hingað á kvöldin
eða um helgar ef þarf.“
Prentsmiðjan var áður í eigu
Flugleiða (sem síðar varð Iceland
air) en núverandi eigendur keyptu
hana árið 1993. Prentsmiðjan vinn
ur mikið fyrir Icelandair og heldur
netfanginu prentstofan@iceland
air.is. Eigendur eru tveir, Ögmundur
Kristinsson og Hjalti Valur Helgason.
Auk þeirra starfa á stofunni Jón Ara
son og Ólafur Bergmann. Sem fyrr
segir er Hvíta Örkin staðsett á Hót
el Loftleiðum við Reykjavíkurflug
völl og aðgengi að stofunni er gott.
Heimasíða er www.hvitaorkin.is og
símanúmer: 5510255 n
Frímann Andrésson
Útfararstjóri
Sími: 897 2468
Hálfdán Hálfdánarson
Útfararstjóri
Sími: 898 5765
Ólöf Helgadóttir
Útfararþjónusta
Sími: 898 3075