Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Blaðsíða 8
Vikublað 10.–12. maí 20168 Fréttir … komdu þá við hjá okkur Ertu á leið í flug? Hafnargötu 62, KEflavíK / pöntunarsími 421 4457 Hádegis-tilboð alla daga eldbakaðar eðal pizzur sími 577 3333 www.castello.is Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði Hrafn safnaði þremur milljónum í 222 skákum n Hrafn Jökulsson safnaði fyrir sýrlensk flóttabörn n Féll á tíma gegn Friðriki H rafn Jökulsson efndi til skák- maraþons í Ráðhúsi Reykja- víkur um helgina. Hann sat að tafli í þrjátíu klukku- stundir og tefldi á þeim tíma 222 skákir. Hrafn er slunginn skákmaður og vann flesta. Þó mætti hann ofjörlum sínum og erfiðasta skák helgarinnar var að sögn Hrafns viðureignin við Friðrik Ólafsson stórmeistara. Hann lýsir skákinni svo: „Var skemmtilegasta skák helg- arinnar og sú eina þar sem ég féll á tíma. Þá var ég náttúrlega kominn með tapaða stöðu, eftir ævintýra- legar flækjur og fórnir á báða bóga.“ Kominn í þrjár milljónir Áheit á Hrafn og framtakið skiluðu sér í 2,2, milljónum króna. „Fram- lög gesta og áskorenda og þeirra sem lögðu inn á söfnunarreikning Fatimusjóðs meðan á maraþoninu stóð skila okkur upp í þrjár milljónir,“ sagði kampakátur Hrafn í samtali við DV í gær, mánudag. „Hver einasta króna fer í verkefni UNICEF í þágu sýrlenskra barna, því kostnaður við söfnunina og mara- þonið var núll krónur og vaskur hóp- ur gaf vinnu sína með mikilli gleði.“ Ekki er að fullu ljóst hver endan- leg söfnunarfjárhæð verður og geta einstaklingar og fyrirtæki enn styrkt framtakið. „Nú síðast í morgun var lögmannsstofan LOGOS að koma með framlag vegna maraþons- ins, og söfnun- in heldur áfram hjá Fatimusjóði,“ sagði Hrafn í sam- tali við DV. Mátaði forsetaefnið Þegar DV bar að garði á laugar- dagsmorgun var Hrafn í essinu sínu, úthvíldur og til í slaginn. Í morgunmat tók hann Þóri Guðmundsson, deildar- stjóra Rauða kross Íslands. Næstur í stólinn var forsetaframbjóðandinn Guðni Th. Jóhannesson. Áður en skákin hófst sagði Guðni Th. „Megi sá besti vinna, í þessu eins og öðru.“ Hann reyndist ekki mikil fyrirstaða fyrir Hrafn Jökulsson sem mátaði hann frekar örugglega. Aðrar skákir sem Guðni Th. teflir þessa dagana eru flóknari og meiri tími í boði. „Ég er meira en sáttur. Ég er himinlifandi yfir frábærum undir- tektum og stuðningi við góðan mál- stað. Og fyrst og fremst þakklátur öllum þeim sem lögðu lið, komu og tefldu eða fylgdust með, og hvöttu okkur áfram,“ sagði Hrafn í samtali við DV að afloknu maraþoninu. n Eggert Skúlason eggert@dv.is Flaug hátt Hrafninn flaug hátt á skák- borðinu í nafni góðs málstaðar. Skyndihjálp Hrafn brosti ávallt á meðan hann miskunnarlaust slátraði andstæðing- um sínum. Þórir Guðmundsson fékk ekki skyndihjálp og gafst á endanum upp. Ójafn leikur Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins til margra ára, mátaði forsetaefnið Guðna Th. Jóhannesson. Þeir skildu sáttir. „Hver einasta króna fer í verkefni UNICEF í þágu sýrlenskra barna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.