Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Qupperneq 8
Helgarblað 10.–13. júní 20168 Fréttir
K
eyptur hefur verið nýr
ráðherrabíll fyrir Illuga
Gunnarsson, mennta- og
menningarmálaráðherra.
Um er að ræða nýjan og
glæsilegan Volvo XC90-jeppa sem
kostaði tæpar 10,5 milljónir króna
og leysir af hólmi tæplega átta ára
gamlan Audi A6 ráðherrabíl ráðu-
neytisins. DV hefur fjallað ítarlega
um endurnýjun ráðherrabílaflotans
að undanförnu en Volvo-jeppi
mennta- og menningarmálaráð-
herra er sjötta glæsibifreiðin sem
keypt hefur verið á kjörtímabilinu.
Kaupverðið á bílunum sex nemur
hátt í sjötíu milljónum króna.
Glæsilegur jeppi
Ný ráðherrabifreið Illuga er ríkulega
búin staðalbúnaði og sérlega glæsileg
í alla staði. Enda er XC90 eitt af flagg-
skipum framleiðslulínu Volvo. Lista-
verð á slíkum jeppum hjá Brimborg
er á bilinu 10,6 til 11,9 milljónir króna.
Um er að ræða dísilvél, sem er 225
hestöfl með tog upp á 470Nm, sem
eyðir 5,8 lítrum á hundraði í blönduð-
um akstri. Hann var keyptur þann 4.
maí síðastliðinn í kjölfar örútboðs þar
sem tilboði Brimborgar upp á 10.490
þúsund krónur var tekið.
Gamli í góðu standi
Sem fyrr er nú reynt að selja gamla
ráðherrabílinn upp í kaupverðið á
þeim nýja. Það er að venju gert á upp-
boðsvefnum bilauppboð.is þar sem sjá
má að þessi glæsilegi Audi A6, S-Line
2.8 Qattro ráðherrabíll, er ekinn 183
þúsund kílómetra. Hann var keyptur
nýr í ágúst 2008 og er því tæplega átta
ára gamall en engu að síður í topp-
standi og hefur fengið fyrirmyndar-
viðhald alla tíð eins og aðrir ráðherra-
og viðhafnarbílar ríkisins. Á fimmtudag
var hæsta boð sem borist hafði í gamla
ráðherrabílinn um 1.880 þúsund
krónur sem náði ekki lágmarksverði.
Tugmilljónir
Þetta er sjötti ráðherrabíllinn
sem endurnýjaður er á núverandi
kjörtímabili, en áður höfðu for-
sætisráðherra, fjármála- og efna-
hagsráðherra, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, utanríkisráðherra
og innanríkisráðherra fengið nýjar
og glæsilegar bifreiðar. Kaupverð
þessara sex nýju ráðherrabifreiða
nemur um 67,5 milljónum króna. Á
móti hafa fengist um níu milljónir
króna með sölu á þeim fjórum bif-
reiðum sem áður höfðu verið endur-
nýjaðar. Enn á eftir að selja bíla
innanríkisráðherra og mennta- og
menningarmálaráðherra. n
n Nýr bíll í mennta- og menningarmálaráðuneytið n Sjötti lúxusbíllinn á kjörtímabilinu
IllugI fékk
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Í góðu standi Þetta er gamli ráðherrabíllinn sem nú er reynt að selja á bílauppboði. Audi
A6, tæplega 8 ára gamall og enn í góðu ástandi. Ekinn 183 þúsund kílómetra. Mynd BilauppBoð.iS
„Kaupverð
þessara sex
nýju ráðherrabif-
reiða nemur um
67,5 milljónum
króna.
líka lúxusjeppa
nýr og glansandi
Ráðherrabíll Illuga
kostaði 10,5 milljónir
króna og er hinn
glæsilegasti.
Mynd SiGTryGGur ari
Laugavegur 24
Sími 555 7333
publichouse@publichouse.is
publichouse.is
BENTO BOX
11.30–14.00 virka daga / LUNCH
11.30–15.00 um helgar / BRUNCH
1.990 kr.