Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Page 17
Helgarblað 10.–13. júní 2016 Umræða 17 Allt til ræktunar og fullt af fíneríi fyrir heimilið og bústaðinn HÖFÐABAKKA 3 / 110 REYKJAVÍK / SÍMI 587 2222 / litlagardbudin.is / Við erum á Facebook PLUSMINUS OPTIC Smáralind www.plusminus. is Sumar kaupauki Sólgler með öllum gleraugum Index 1,5* Sjóngler um norrænu byggðirnar í Grænlandi og landnámstilraunirnar í Vínlandi; um allt þetta er skrifað af leiftrandi greind, þekkingu og stílgáfu. Frá austri til vesturs, lengra og lengra Jared Diamond skoðar að sjálfsögðu víkingatímann í samhengi og fjall­ ar um alla þá útrás sem talin er hefj­ ast með árásinni á Lindisfarne 793. Hann fer meðal annars yfir landnám víkinga á norðurslóðaeyjum og eyja­ klösum og samfélög þeirra þar: Orkn­ eyjum, Hjaltlandseyjum, Færeyjum, Íslandi, Grænlandi og Vínlandi og rekur eiginlega þannig frá austri til vesturs hversu erfiðleikar samfélag­ anna jukust eftir því sem vestar var farið og þar með lengra frá heima­ löndunum. Eins og við vitum varð ekkert úr landnámstilraunum á Vín­ landi, og byggðin dó sömuleiðis út á Grænlandi eftir að hafa þrifist þar í nokkrar aldir, þannig að Ísland var vestasti og fjarlægasti staðurinn sem landnámið lánaðist, þótt því hafi fylgt miklu meiri erfiðleikar er til að myndi byggðin á Orkneyjum gekk í gegnum. Kaflinn um Ísland í bókinni Collapse er í rauninni stórmerkilegur. Þar segir meðal annars nokkurn veginn á þessa leið: „Þegar fyrstu víkingalandnem­ arnir komu til Íslands voru eldfjöll þess og heitu hverirnir framandi sýn, og ólík öllu sem þeir þekktu frá Noregi og Bretlandseyjum, en að öðru leyti var landslagið kunnuglegt og upp­ örvandi. Næstum allar plönturnar og fuglarnir til­ heyrðu þekktum evrópskum tegund­ um. Láglendið var að mestu þakið birki og víðiskógum sem var auðvelt að ryðja fyrir haga. Á þannig hreinsuðum svæð­ um, og á trjálaus­ um láglendissvæð­ um eins og mýrum fundu landnáms­ menn safaríkt haga­ gras, mosa og ann­ an gróður sem var kjörinn fyrir þann búfénað sem þeir höfðu áður haldið í Noregi og á Bretlandseyjum. Jarð­ vegurinn var næringarríkur og sums staðar allt að fimmtíu feta djúpur. Þrátt fyrir jökultinda og staðsetningu rétt sunnan við heimskautsbaug olli Golfstraumurinn því að loft á láglendi var nógu milt til að rækta mætti bygg sunnan fjalla. Í vötnum, ám og sjón­ um í kring var krökkt af fiski og önd­ um og sjófugli sem aldrei hafði áður verið veiddur og var því óhræddur, og sama gilti um sel og rostunga í fjöru­ borðinu.“ (Collapse bls. 198) Paradís sem blekkti augað Með öðrum orðum: paradís. En allt þetta mikla og græna land blekkti augað. Þótt flest minnti á heimahag­ ana þá var ýmislegt erfiðara á Íslandi, meðal annars styttri sumur og þar með ræktartími en á suðlægari slóð­ um. En aðalógæfan tengdist samt samsetningu jarðvegarins; hann var ekki þéttur og harðger og leirkennd­ ur eins og landnámsmenn höfðu átt að venjast austan hafs, heldur laus í sér og léttur, aðallega vegna blöndunar við eldfjallaösku sem reglulega féll á landið. Og eins og bókarhöfundur segir: Úr því að þessi aska barst um allt land með vindum, var hún nógu létt til að geta tekist á loft að nýju. Landnámsmenn ruddu og brenndu skóga, plægðu jarðveg­ inn og beittu á hann búfénaði, með þeim árangri að strax á fyrstu áratug­ um tók gróðurlendið að fjúka upp í stórum stíl, svo að frá umhverfis­ sjónarmiði er ekkert Evrópuland jafn hart leikið af mannavöldum og Ís­ land; eftir fáar aldir voru þrír fjórðu af öllu gróðurlendi horfnir, og nær allir skógar sömuleiðis. Örlög Íslendinga – fjórir afgerandi þættir Þetta er ógæfa Íslendinga og því megum við ekki gleyma. Það er ekki hægt að áfellast fyrstu kynslóðirnar í landinu fyrir það sem gerðist því að þeim voru með öllu framandi þau öfl sem hér voru að verki; smám saman fór þjóðin að reyna að laga sig að að­ stæðum og landsháttum, enda ekki annað í boði ef menn vildu á annað borð lifa af, en það var samt að mestu leyti of seint; landspjöllin hafa enn ekki verið bætt nema að litlum hluta. Og í ljósi þess þá getur oft furð­ að mann af hve miklu skeytingar­ leysi menn gjarnan fjalla um íslensk umhverfismál; stjórnmálamenn og iðnaðarforkólfar tala um það sumir að það sé ekkert mál að spæna upp eða drekkja gróðurlendi, ef hafa má upp úr þeirri iðju einhverja peninga. Og jafnvel sumir bændur vilja þráast við að reka fé í bithaga sem vitað er að þola ekki ágang, og allra síst ef á að vera von til að gróður sem eitt sinn þakti þá snúi til baka. Auðvitað ætti að setja um það ströng lög og reglur að allir bithagar sem ekki væri talið öruggt að þyldu ágang búfénað­ ar yrðu með öllu friðaðir fyrir slíku. Að vísu er talið að kjöt sé vænna af lambfé sem hefur nagað gróður á fjöllum en því sem lifir á graslendi í heimahögum, en þá verður bara svo að vera; landið er okkur allt of dýr­ mætt, og við eigum því svo mikla skuld að gjalda. Jared Diamond telur fjóra þætti hafa ráðið mestu um viðgang ný­ lendna skandinavísku víkinganna: Hversu löng siglingaleiðin var frá Evrópu, andstaða og árekstrar við íbúa frá því fyrir víkingatímann, hversu vel land hentaði til landbún­ aðar, og hversu viðkvæmt land var fyrir umhverfisáhrifum. Í tveimur af þessum atriðum var Ísland hagfellt: Hingað var mun styttri sigling en til Grænlands og Vínlands, og hér voru ekki innfædd­ ir „skrælingjar“ að kljást við. En það var semsé hitt sem var lakara. Framfarir eða hnignun Í stórum dráttum þá voru fyrstu þús­ und árin eftir landnám Íslands fram­ faratímabil í okkar heimshluta. Í Evrópu og seinna í Nýja heiminum voru byggðar borgir og lagðir veg­ ir, það varð iðnbylting og gerðar voru merkar uppgötvanir á sviði alls kyns vísinda og tækni. En um þessi sömu þúsund ár má jafnframt segja að flestu hafi farið aftur á Íslandi. Ég hef stund­ um hugsað til þess að þegar afi minn og nafni fæddist á fátækum bæ innst í Ísafjarðardjúpi árið 1891, að þá höfðu á þeim slóðum engar fram farir orðið frá því á landnámsöld. Engar fram farir, heldur eiginlega þvert á móti: Húsin höfðu minnkað og orðið kaldari, landshagir voru mun verri og erfiðara með aðdrætti, fólkið hafði minnkað og verkfærin orðið lélegri, og veðrið snar­ versnað. Á þessum slóðum á æsku­ árum afa míns voru enn engin merki um þær framfarir sem í vændum voru, með vélvæðingu, rafvæðingu, þéttbýlis myndun, samgöngu­ og fjar­ skiptabyltingu, svo að eitthvað sé nefnt. Þetta er rétt að hafa í huga til að minnast þess hversu miklu grettistaki síðustu kynslóðir hafa lyft, enda má lesa í bókinni sem hér hefur verið gerð að umtalsefni undrun yfir því velmeg­ andi samfélagi sem nú er á Íslandi. Og það ætti jafnframt að minna okkur sem nú lifum á að við ættum ekki að þakka fyrir okkur með því að skemma landið meira en gert hefur verið; fyrir því höfum við enga afsökun. Við vorum að tala um Collapse eftir Jared Diamond. Lýsingar hans á endalokum samfélaga eru ákaf­ lega áhrifaríkar, byggðar sumpart á vísbendingum og kryddaðar miklu innsæi. Þetta er bók sem allir ættu að lesa. n „Enda má lesa í bókinni sem hér hefur verið gerð að um- talsefni undrun yfir því velmegandi samfélagi sem nú er á Íslandi. Collapse „Allt þetta er skrifað af leiftrandi greind, þekkingu og stílgáfu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.