Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2016, Síða 9
Helgarblað 1.–4. júlí 2016 Fréttir 9
Í takt við tímann
• Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa.
• Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum.
Verð
aðeins
3.845
Stigahlíð 45-47 / Sími 553-8890
EM-Tilboð
8 bitar
franskar
& 2l gos
4 stórir og
4 minni bitar.
Gildir ekki með
öðrum tilboðum
„Ekki sá griðastaður
sem vonast
var eftir“
„Það
var
sláandi að
verða vitni
að því
Kristín Þórunn Tómas
dóttir Segir nauðsynlegt að
finna aðrar leiðir til verndar
flóttafólki. Mynd SigTryggur Ari
Biskup hvetur til
endurskoðunar á
Dyflinnarreglugerð
Ísland er aðili að svokallaðri Dyflinnarreglugerð sem heim-
ilar stjórnvöldum að vísa hælisleitendum frá Íslandi, til
þess lands sem þeir komu til fyrst í Evrópu. Þar sem ekkert
beint flug er í boði frá stríðshrjáðum svæðum til Íslands er í
raun heimild í lögum til að vísa öllum flóttamönnum frá.
Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, og Solveig Lára
Guðmundsdóttir vígslubiskup, rituðu grein í Morgunblaðið
þann 11. júní þar sem meðal annars sagði:
„Því er það okkar skoðun að Ísland beri að skoða vel aðild
sína að Dyflinnarreglugerðinni og ef ekki reynist unnt að
segja sig frá henni, þá beri yfirvöldum að minnsta kosti að
túlka hana rúmt.“
Lögreglumenn undrast
aðgerðir kirkjunnar
„Erum ekkert annað en hluti framkvæmdavaldsins“
Aðfaranótt þriðjudagsins 28. júní voru Ali Nasir og Majed, hælisleitendur frá Írak, sendir
frá Íslandi til Noregs. Áður en til aðgerða kom var samkomustund í Laugarneskirkju þar
sem þeir sem vildu koma stóðu við altarið, lásu úr ritningunni, fóru með bænir eða áttu
samtal fyrrgreindum hælisleitendum til stuðnings. Klukkan fimm um morguninn kom
lögreglan og sótti hælisleitendurna sem síðar voru fluttir úr landi.
Heimildir DV herma að meðal lögreglumanna sé uppi óánægja með framgöngu
kirkjunnar og sumir hafi lagt til að fólk segi sig úr þjóðkirkjunni.
Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, kannaðist ekki við
þann orðróm, þegar blaðamaður DV innti hann eftir svörum.
„Nú ert þú að segja mér fréttir. Hins vegar kæmi mér þetta satt best að segja ekki
á óvart. Við erum ekkert annað en hluti framkvæmdavaldsins og valin verkefni sem við
erum að sinna á þessum tíma. Það hljómar svolítið undarlega að kirkjan skuli grípa til
þess með leyfi biskups og vísa til einhverra miðaldasiða sem komið var á augljóslega í
allt öðru samfélagi en nú er í dag. Þar kemur inn þrískipting ríkisvaldsins og annað í þeim
dúr. Þetta kemur mér ekkert á óvart en eins og ég sagði hef ég ekkert heyrt af þessu.“
Biggi lögga andvígur kirkjum sem griðastað
Birgir Örn Guðjónsson, sem flestir þekkja sem Bigga löggu, fjallaði um þetta mál í
Facebook-færslu í vikunni og segir að miklar og heitar umræður hafi spunnist í kringum
mál hælisleitendanna sem voru sóttir í Laugarneskirkju. Birgir Örn segir að fólk virðist
skiptast í tvo hópa sem eru gjörsamlega á öndverðum meiði. Annaðhvort séu menn æfir
vegna aðfaranna hjá ríkinu eða ætli að segja sig úr Þjóðkirkjunni vegna afstöðu hennar.
Birgir Örn segir meðal annars í færslunni að Dyflinnarreglugerðin sé í raun skammar-
legur handþvottur íslenska ríkisins og að hún henti ekki Íslandi. „Þjóð sem er þannig
staðsett að enginn getur komið hingað nema fuglinn fljúgandi og enginn hælisleitandi
getur komið hingað beint frá því ríki sem hann flýr. Hugsunin er að gera umsóknirnar
skilvirkari og reyna að skrúfa fyrir það að fólk setji sig og sína í meiri hættu með því að
flakka milli landa. Þetta er ekki að virka og við erum ekki að taka við fullum
bátum af hælisleitendum.“
Í pistlinum segist Birgir Örn hafa reynslu af samskipt-
um við hælisleitendur. „Ég hef verið með hælisleitendur
í höndunum sem voru lítið annað en glæpamenn að
notfæra sér kerfið. Það má að sjálfsögðu alls staðar
finna slæma einstaklinga inni á milli en hvenær ætlum
við að læra að það er ekki réttlátt að láta þá skemma
fyrir öllum hinum.“
Birgir segist enn fremur andvígur því að kirkjur geti
verið griðastaður þar sem lög og reglur gilda ekki. „Það
finnst mér mjög hættulegur stígur að feta. Við lifum í
heimi sem er að breytast mjög ört og við verðum að haga
seglum eftir þeim vindi. Það er hollt og nauðsynlegt að
ræða þessi mál frá öllum hliðum en við skulum ekki
missa okkur í upphrópanir og svívirðingar. Hvorki
gagnvart prestum, kirkjunni, lögreglu eða
hælisleitendum. Slíkar upphrópanir skila
okkur engu, nema kannski einhverjum
skrefum afturábak.“