Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2016, Blaðsíða 10
Helgarblað 22.–25. júlí 201610 Fréttir
Þ
rjátíu og fimm ára gam-
all íslenskur karlmaður var
myrtur í vestur hluta Stokk-
hólms síðastliðinn mánu-
dag. Árásarmaðurinn komst
undan og lögreglan hefur ekki enn
haft hendur í hári hans. Maðurinn,
sem hét Jón Gunnar Kristjánsson og
var fæddur árið 1981, var myrtur á
eins konar tjaldsvæði sem er í grennd
við Akalla-neðanjarðarlestarstöðina
í samnefndu úthverfi sænsku höfuð-
borgarinnar. Um er að ræða tjald-
svæði sem ekki er samþykkt opin-
berlega. „Þegar ég skoðaði vettvang
glæpsins þá höfðust þar við um 10
einstaklingar, aðallega í húsbílum
en einnig í tjöldum. Svæðið er mjög
skítugt og mikið rusl á svæðinu en
þó er það merkilega skipulagt að
öðru leyti,“ segir Isabelle Nordström,
blaðamaður Aftonbladet, í samtali
við DV.
„Hann var ískaldur“
Jón Gunnar var, að sögn sjónar-
votta, stunginn fjórtán sinnum með
hníf í brjóstkassann auk þess sem
morðinginn sló hann nokkrum
sinnum með járnröri í höfuðið. Ein
hnífstungan hæfði Jón Gunnar í hjarta-
stað. Í framhaldinu yfirgaf morðinginn
vettvanginn í rólegheitum. „Hann var
ískaldur,“ sagði sjónarvottur um hegð-
un árásarmannsins við sænska blaðið
Aftonbladet. Þá kemur fram í umfjöll-
un sænska blaðsins að árásarmaður-
inn hafi öskrað á fórnarlamb sitt eitt-
hvað um dulkóðuð tölvugögn.
Árásin átti sér stað um hádegisbil-
ið og var Jón Gunnar þegar fluttur á
nærliggjandi sjúkrahús með þyrlu þar
sem reynt var að bjarga lífi hans. Það
reyndist heilbrigðisstarfsfólkinu um
megn og klukkan þrjú sama dag var
Jón Gunnar úrskurðaður látinn.
Síðar sama dag var ungur maður
skotinn til bana í hverfinu Kista sem
er í grennd við Akalla-hverfið. Fjórir
góðkunningjar lögreglunnar voru
handteknir vegna þess morðs. Stokk-
hólmslögreglan telur á þessari stundu
ekki að málin tengist.
Kemst ekki lengra niður í
tilfinningum
Jón Gunnar var, sem fyrr segir, fædd-
ur árið 1981 á Íslandi, en fluttist til
Svíþjóðar tveimur árum síðar ásamt
fjölskyldu sinni. Hann lagði stund á
læknisfræði um tíma og lætur eftir
sig þriggja ára son og fjögurra ára
dóttur. Hann átti þrjú systkini, sam-
feðra systur sem býr hérlendis og al-
systur sem býr í Svíþjóð. Eldri sam-
feðra bróðir hans lést af slysförum
árið 1997. Í samtali við DV sagði faðir
mannsins, sem enn býr í Svíþjóð, að
tíðindin hefðu verið gríðarlegt áfall
fyrir fjölskylduna. „Maður getur ekki
hugsað sér að komast lengra niður
í tilfinningum en við svona fregn-
ir,“ segir faðirinn. Hann gat ekki veitt
frekari upplýsingar um málið vegna
rannsóknarhagsmuna. n
HVAR ER SÓSAN?
Það er alltaf gott veður til að grilla. Kjötið, hvernig skuli meðhöndla það, og meðlæti skipta
að sjálfsögðu máli. Allt er þetta þó til einskis ef sósan gleymist, því þar liggur fullkomnunin.
Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson.
Kraftmikil fasteignasala sem fer ótroðnar slóðir
af því að þín
fasteign
skiptir máli
Íslendingur myrtur í Stokkhólmi
n Stunginn fjórtán sinnum með hníf og sleginn í höfuðið með járnröri n Árásarmaðurinn ófundinn
Akalla-neðanjarðarlestarstöðin
Ódæðið átti sér stað á ólöglegu tjaldstæði
í nágrenni lestarstöðvarinnar.
Auður Ösp Guðmundsdóttir
Björn Þorfinnsson
Ragnheiður Eiríksdóttir
audur@dv.is/ bjornth@dv.is/ ragga@dv.is