Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2016, Blaðsíða 32
Helgarblað 22.–25. júlí 20168 Úttekt
ÞITT BESTA VAL Í LITUM
HANNAH NOTAR
LIT 3-65
PALETTE DELUXE
NÚ MEÐ LÚXUS
OLEO-GOLD ELIXIR
GERÐU LIT
AÐ LÚXUS
FYRIR ALLT AÐ 30% MEIRI GLJÁ*
NR. 1 Í EVRÓPU
NÝTT
Þurfum að takast á
við ranghugmyndirnar
Hjálmar Gunnar Sigmarsson vill snúa við þeirri þróun að karlar leiti sér ekki aðstoðar fyrr en áratugum seinna
Í
fyrra voru karlmenn 14,9 prósent
þeirra brotaþola kynferðisofbeld-
is sem leituðu til Stígamóta
í fyrsta skiptið. Hjálmar
Gunnar Sigmarsson,
starfsmaður Stígamóta,
hóf störf árið 2014 og
hefur unnið að því að
styrkja leiðir samtak-
anna til að ná betur til
karlmanna sem þurfa
aðstoð til að vinna úr
afleiðingum ofbeldisins.
Hann er fyrsti karlkyns
starfsmaður Stígamóta.
„Karlar hafa verið að koma til
Stígamóta í um 20 ár,“ segir Hjálmar.
Hann segir þróunina hafa verið
hæga framan af, en að árið 2013,
í kjölfar þess að Karl Vignir Þor-
steinsson var afhjúpaður í fjölmiðl-
um, hafi mun fleiri leitað sér að-
stoðar. „Þetta var sprenging, bæði
voru fleiri karlar og konur sem leit-
uðu til okkar. Þetta var fólk sem
var loksins að leyfa sér að leita sér
hjálpar.“
Þetta var búið að standa til
lengi, en hugmyndin með ráðn-
ingu Hjálmars var sú að gera skila-
boðin um að karlar væru velkomn-
ir til Stígamóta sýnilegri. Hjálmar
er ráðgjafi, en vinnur einnig að því
með margvíslegri fræðslu, að vekja
athygli á þjónustunni og mikilvægi
þess að auka umræðuna um karl-
kyns brotaþola. Það þarf að takast
á við ranghugmyndir um karlkyns
brotaþola og kynferðisofbeldi gegn
þeim, en einnig skaðlegar karl-
mennskustaðalmyndir. „Það eru
margar skaðlegar mýtur um kyn-
ferðisofbeldi. Margir karlmenn upp-
lifa að þeir eigi ekki rétt á að leita sér
hjálpar, þeir gera lítið úr ofbeldinu
og jafnvel sumir telja það ekki hafa
verið „nógu alvarlegt“ til að gera eitt-
hvað í því, “ segir Hjálmar.
Það er mjög skaðlegt og verð-
ur þar að auki til þess að sum-
ir leita sér oft ekki aðstoðar fyrr en
mörgum árum og jafnvel áratugum
seinna. „Karlar, eins og allir brota-
þolar, eiga rétt á að leita sér aðstoð-
ar og hjálpar og það er mikilvægt
að fara yfir umræðuna um karlkyns
brotaþola. Það þarf að fara vand-
lega í hana og takast á við þær rang-
hugmyndir og karlmennskuhug-
myndir sem eru uppi.“
Stígamót vilja því skapa rými fyr-
ir karlmenn og aðra jaðarsetta hópa
í þessu samhengi, bjóða þá vel-
komna og koma réttu skilaboðun-
um á framfæri. „Að þeir fái tækifæri
og rými til að vinna úr afleiðingun-
um og skilji að þeir beri ekki ábyrgð
á ofbeldinu og að það sé þess virði
að leita sér hjálpar.“ n
astasigrun@dv.is
Stígamót hafa gefið út bækling fyrir og
um karlkyns brotaþola kynferðisofbeld-
is, hann má nálgast hjá samtökunum
en einnig á heimasíðu þeirra www.
stigamot.is sem og annað fræðsluefni.
n Kynferðislegt ofbeldi á sér stað
þegar einstaklingur er þvingaður til
kynferðislegra athafna, gegn vilja og án
samþykkis.
n Karlar verða fyrir kynferðisofbeldi,
bæði sem börn og á fullorðins aldri.
Afleiðingar þess eru mjög skaðlegar
og geta dregið verulega úr lífsgæðum
þeirra.
n Rúmlega helmingur þeirra karla sem
leita til Stígamóta varð fyrir kynferðis-
ofbeldi sem börn.
n Karlar leita sér oft aðstoðar árum og
jafnvel áratugum eftir að brotið var á þeim.
n Kynferðisofbeldi getur verið mikið og
óvænt áfall. Við bregðumst við áföllum
á ólíka vegu. Öll viðbrögð eru eðlileg og
rétt. Það er eðlilegt að frjósa eða gera
ýmislegt til að draga úr skaða og það
er jafn eðlilegt og að berjast á móti eða
reyna að flýja. Það er eðlilegt að upplifa
vanmátt þegar maður missir stjórnina
og valdið er tekið af manni. Það er
eðlilegt að muna ekkert eða ekki ná-
kvæmlega hvað gerðist. Það er eðlilegt
að segja ekki frá.
Staðreyndir um ofbeldiÞarftu hjálp?
Þeim sem vilja leita sér aðstoðar er
bent á að hægt er að leita til:
n Aflið á Akureyri, 461-5959 eða 857-5959
n Drekaslóð í Reykjavík, 551-5511
n Stígamót í Reykjavík, 562-6868 eða
800-6868
n Sólstafir á Vestfjörðum, 846-8846
n Neyðarmóttaka fyrir þolendur
kynferðisofbeldis, Landspítalinn í
Fossvogi, 543-1000
n Neyðarmóttaka fyrir þolendur
kynferðisofbeldis, Sjúkrahúsið á
Akureyri, 463-0800
App fyrir símann:
Á vefsíðunni www.livingwell.org.au
má finna smáforrit, app, sem ætlað
er karlkynsþolendum sem urðu fyrir
ofbeldi í æsku. Því er ætlað að styðja
við, en kemur ekki í staðinn fyrir, sál-
fræðiaðstoð og sjálfsvinnu þeirra sem
leitað hafa sér aðstoðar. Í forritinu má
finna bæði upplýsingar og æfingar til
að takast á við afleiðingar ofbeldisins.
Mynd SiGtryGGur ari