Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2016, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2016, Blaðsíða 31
Helgarblað 22.–25. júlí 2016 Úttekt 7 Þ etta er fyrsta viðtalið sem ég fer í og foreldrar mínir þurfa ekki að samþykkja, ég varð átján ára í gær,“ seg- ir Íva þegar við fáum okkur sæti við borðstofuborðið hennar Emblu. Á því er kaffikanna og alls konar kræsingar, og heilmikið af barmmerkjum sem til stendur að dreifa í druslugöngunni á laugar- daginn. Þegar Freyja Haraldsdóttir og Embla Guðrúnar Ágústsdóttir stofnuðu Tabú fyrir tveimur árum, þekkti Íva þær lítillega í gegnum MPA-miðstöðina. „Ég heyrði um Tabú í gegnum netið og varð mjög fljótlega virk í starfinu.“ Fatlaðar konur jaðarsettar Íva er í MH á félagsfræðibraut og tónlistarbraut, hún ætlar líklegast að útskrifast um jólin. Ég spyr hana hvort hún komi úr mikilli tónlistar- fjölskyldu. „Foreldrar mínir eru miklir tónlistarunnendur og við fjölskyldan höfum alltaf verið dug- leg að kynna alls konar tónlist hvert fyrir öðru. Þó má segja að minn klassíski tónlistarsmekkur sé sjálf- sprottinn.“ Þrátt fyrir ungan aldur hefur Íva verið virk í femínískum pælingum og aktívisma um nokkurra ára skeið. Hún hefur sömuleiðis kynnt sér það sem á undan er gengið. „Ég hef reynt að taka áfanga í skólanum sem tengjast femínisma. Til dæmis kynjafræðiáfanga, sem reyndar bara stelpur sátu, og svo ætla ég að taka femínískan bókmenntaáfanga í haust. Í kynjafræðinni horfðum við til dæmis á myndina Konur á rauðum sokkum, sem fjallar um jafnréttis- byltinguna í kringum 1970. Mér finnst við vera komin miklu lengra núna, því núna er fókusinn ekki bara á hvítar, ófatlaðar, gagnkyn- hneigðar ciskonur sem tilheyra millistétt, heldur er pláss fyrir fleiri. Gott dæmi eru fatlaðar konur, sem hafa verið sérstaklega jaðarsettar í umræðu um bæði réttindi og of- beldi.“ Fórnarlambsvæðingin neikvæð Íva segist ekki alin upp í grjóthörð- um femínisma, en að foreldrar hennar séu jafnréttissinnaðir. „Mamma talar oft um fórnarlamb- svæðinguna sem neikvæða hlið réttindabaráttunnar. Það þarf svo lítið til nú til dags, og margir komast upp með ýmislegt vegna aumingja- gæsku annarra. Ég er sammála mömmu að miklu leyti. Í skólanum mínum, MH, er til dæmis hægt að mæta með ákveðna tegund af vott- orði og fá helming fjarvista felldan niður. Mér finnst fólk oft ansi gjarnt á að nota svona lausnir í stað þess að hunskast til að læra og gera það sem á að gera í skólanum. Það eru gefnir endalausir sénsar og fólk nær ekki að tengja orsök og af- leiðingu.“ Saklausa, blinda stúlkan Íva var heppin með kynfræðsluna sem hún fékk í grunnskóla. „Það er samt ákveðin tregða við að líta á fatlaða einstaklinga sem fullgildar manneskjur. Ég man eftir því að í 6. eða 7. bekk átti ég vin, og við lékum okkur að því að kyssast í frímínút- um til að ögra umhverfinu. Kennar- inn okkar kom allri ábyrgðinni á hann – en ég var algjörlega jafn- ábyrg. Blinda, góða stúlkan gat auð- vitað ekki verið annað en blásak- laus. Ég held að svona viðhorf valdi því oft að fatlaðir krakkar fara að stunda áhættuhegðun til að gera uppreisn.“ Fatlaðir eru kynverur Á laugardaginn munu Tabúkonur ganga í druslugöngunni til að vekja athygli á þeirri staðreynd að fatl- aðar konur eru mjög útsettar fyrir ofbeldi. „Við þurfum að vera sýni- legar, skrifa greinar, taka þátt í um- fjöllun. Aðeins með því móti fáum við samfélagið til að opna aug- un fyrir vandanum. Þrjár af hverj- um fjórum fötluðum konum verða fyrir kynferðisofbeldi einhvern tíma um ævina. Það er fáránlega há pró- senta. Við erum því miður ekki enn á þeim stað að það sé viðurkennt að tala um þessa staðreynd. Það er eins og mörgum þyki óþægilegt að horf- ast í augu við þá staðreynd að fatlað- ir eru líka kynverur. Ég hef bara enga þolinmæði fyrir þannig afsökunum. Ef maður getur talað um sitt kynlíf á fullu, er ekkert sem afsakar að hann loki augunum fyrir kynlífi fatlaðra. Við sáum að áður en umræða opnaðist um kynferðisofbeldi þurfti samfélagið fyrst að opna um- ræðu um kynlíf almennt. Ég held að það sama gildi um kynlíf fatl- aðra – fyrst þurfum við að fá sam- félagið til að viðurkenna að fatlað- ir séu kynverur og stundi kynlíf, svo verður það reiðubúið að horfast í augu við staðreyndir um ofbeldi.“ n Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is „Ég er kynvera ekki viðfang“ Tabúhópurinn verður með fjölbreytt skilti í göngunni á laugardaginn. Mynd ÞoRMaR VigniR gunnaRSSon Baráttukona Íva hefur verið virk í réttindabaráttu fatlaðra um nokkurt skeið þrátt fyrir að vera nýorðin 18 ára. Mynd ÞoRMaR VigniR gunnaRSSon „Þrjár af hverjum fjórum fötluðum konum verða fyrir kyn- ferðisofbeldi einhvern tíma um ævina. Það er fáránlega há prósenta. Íva Marín adrichem er ein kvennanna í Tabú sem berjast fyrir réttindum fatlaðra kvenna. Ragnheiður Eiríksdóttir hitti Ívu heima hjá Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur, þar sem undirbúningsfundur fyrir druslugönguna var í þann mund að hefjast. „Fjölbreytileiki, ekki afbrigðileiki“ OrkupOkinn Allt sem þú þArft HOll Og góð OrkA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.