Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2016, Blaðsíða 24
Helgarblað 22.–25. júlí 20164 Verslunarmannahelgin - Kynningarblað
Kolagrillaðar steikur í aðalhlutverki
Heimili hamborgarans á Akureyri!
T
-Bone steikhús er metnað-
arfullur veitingastaður við
Ráðhústorgið í hjarta Akur-
eyrar. Þar eru allar steikur
grillaðar á kolagrilli sem gef-
ur einstakt bragð. Á matseðlinum
eru margar tegundir af steikum í
boði; mismunandi vöðvar og þyngd.
Reynt er að hafa eitthvað fyrir alla –
þótt steikurnar séu í aðalhlutverki.
Sem dæmi um steikur má nefna
nautalundir, bæði 200 gramma og
300 gramma, rib-eye 250 gramma og
350 gramma, lambalundir og BBQ
grísarif, að ógleymdri 800 gramma
Porterhouse-steikinni sem er frábær!
Vinsælasta steikin er klárlega t-
bone steikin (400 g) en það er lund og
fillet á beini. Þetta er flott og bragð-
mikil steik sem okkur þykir best að
steikja medium rare. Meðlætið er
hefðbundið, t.d. bökuð kartafla með
kryddsmjöri, grillaður maísstöngull,
hvítlauksristaðir sveppir og fleira
góðgæti.
Mælum með „Uppáhaldi
grillarans“
T-Bone steikhús býður upp á hádeg-
is- og kvöldmatseðil. Hádegisseð-
illinn er aðeins léttari og á kvöldin
er seðillinn fjölbreyttari og þá er
hægt að velja svokallað „Uppáhald
grillarans“ sem matreiðslumenn
okkar hafa sett saman. Einnig geta
viðskiptavinirnir valið steik, meðlæti
og sósu að eigin ósk.
T-Bone steikhús leggur áherslu
á að veita persónulega þjónustu,
vera með gott verð og besta mögu-
lega hráefni í þægilegu og flottu um-
hverfi.
Verið velkomin á T-Bone steik-
hús, hlökkum til að sjá ykkur! n
T-Bone steikhús
Brekkugötu 3, 600 Akureyri
Sími 469-4020.
www.tbone.is, www.facebook.
com/tbonesteikhus
D
j Grill er heimilislegur og
jafnframt vinalegur ham-
borgarastaður í miðbæ
Akur eyrar. Þangað er nota-
legt að koma með fjöl-
skyldunni, setjast nið-
ur í rólegheitum
og fá sér
safaríkan hamborgara, girnilega
samloku eða aðra smárétti. Ingi Þór
Stefánsson segir að vinsælt sé að
skjótast á Dj Grill í hádegishléinu
til að fá sér snögglega framreiddan,
gómsætan borgara. „Hing-
að er líka gott að koma
og horfa á boltann
þar
sem hægt er að sjá flesta leiki sem
eru á dagskrá enska boltans og eins
meistaradeildarinnar.“
Flott fjölskyldufyrirtæki
Hjónin Elva Sigurðardóttir og mað-
ur hennar, Snæbjörn Sigurðsson,
ákváðu að slá til fyrir átta árum og
tóku við rekstri staðarins – einmitt
rétt fyrir verslunarmanna-
helgina.
„Þetta
gekk
mun
betur
en nokkur
hafði þorað
að vona,“ segir
Ingi Þór brosandi.
„Staðurinn hefur tekið
miklum breytingum síðan
árið 2008, bæði útlitslega og einnig
hvað varðar veitingar á matseðli.
Fjölskyldan okkar er nánast öll með
annan fótinn á svæðinu en starfs-
mannahópurinn stækkar ört eftir
því sem starfseminni vex fiskur um
hrygg.“
Zurgbassi er langvinsælastur
„Staðurinn á nú orðið stóran
fastakúnnahóp en sem betur fer sjá-
um við líka mörg ný andlit,“ segir
hann og nefnir að það gleðji ávallt
jafn mikið að fá utanbæjarfólk sem
kemur aftur og aftur í heimsókn á Dj
Grill þegar leið þess liggur til Akur-
eyrar.
„Ostborgarinn okkar er uppáhald
margra en sá borgari sem hefur al-
gjörlega slegið í gegn er hinn svo-
kallaði Zurgbassi sem er sá allra,
allra vinsælasti á seðlinum. Sá eðal-
borgari er með piparosti og fleira
góðgæti. Flestir hamborgararnir hjá
okkur hafa stafina Dj fyrir framan;
Dj Maggi, Dj Hulda og svo framveg-
is. Ástæðu þess má rekja til þess að
þegar fjölskyldan tók við staðnum
voru þetta helstu nöfnin sem voru að
spila á Akureyri á þeim tíma. Zurg-
bassi er t.a.m. sviðsnafnið sem ég og
vinur minn notuðum þegar við vor-
um að spila.“
Ingi Þór býður gesti velkomna á
Dj Grill um verslunarmannahelgina
og minnir á Facebook-síðuna: www.
dj.grill.is n
Dj Grill
Strandgötu 11, 600 Akureyri.
Sími: 462–1800.
www.facebook.com/Dj-Grill
T-Bone steikhús
Dj Grill