Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2016, Blaðsíða 34
Helgarblað 22.–25. júlí 201618 Skrýtið Sakamál
SJÓNMÆLINGAR
LINSUR • GLERAUGU
Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík
Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is
Traust fasteignaviðskipti
og persónuleg þjónusta
- þinn lykill að nýju heimili
414 6600 | nyttheimili.is
FRÍTT
SÖLUMAT
Reynir Eringsson
820 2145
Skúli Sigurðarsson
898 7209
Guðjón Guðmundsson
899 2694
Fasteignasala
Leigumiðlun
Unglingamorðin í Atlanta
n Unglingar og börn hurfu og voru myrt n Öll fórnarlömbin voru þeldökk
Þ
ann 27. febrúar, 1982, var
formlega bundinn endi á
táningamorð sem skekið
höfðu Atlanta í Georgíu-fylki
í Bandaríkjunum um þriggja
ára skeið. Þann dag fékk Wayne
Bertram Williams lífstíðardóm og
fórnarlömbin voru 22 talsins.
Fyrstu morðin voru framin 21.
júlí 1979 þegar tveir þeldökkir ung-
lingspiltar, Edward Smith og Alfred
Evans, voru myrtir. Þann 4. septem-
ber, sama ár, hvarf þriðji unglingur-
inn, Milton Harvey, og 21. október
bættist í hópinn Yusuf Bell, níu ára
sonur Camille Belle, nafntogaðrar
talskonu borgaralegra réttinda.
Í mars 1980 var Angel Laner, 12
ára blökkustúlku, nauðgað og hún
síðan myrt og 9. júní var Christopher
Richardson ráðinn bani.
Ung og þeldökk
Þegar þarna var komið sögu fóru
þeldökkir foreldrar á svæðinu að
óttast um öryggi barna sinna og
töldu, í ljósi þess að öll fórnarlömb-
in voru ung og þeldökk, að rasisti
stæði að baki morðunum og barns-
hvörfunum.
Lögreglan vísaði þó slíkum
kenningum á bug með þeim rök-
um að hverfið sem um ræddi væri
blökkumannahverfi og taldi lög-
reglan að hvítur maður á vappi
þar hefði stungið verulega í stúf.
Einnig hélt lögreglan því fram að
raðmorðingjar héldu alla jafna til
innan um eigin kynþátt.
Smá útúrdúr og grunsamlegur
náungi
Í maí 1981 var fjöldi fórnarlamba
orðinn 21 og mánaðarlegur kostn-
aður við rannsókn málsins var
250.000 Bandaríkjadalir. Hagur
Atlanta vor orðinn svo bágur að
Ronald Reagan, þáverandi forseti
Bandaríkjanna, sá fátt annað til
ráða en að veita Atlanta 1.500.000
dala ríkisstyrk til að forða borginni
frá gjaldþroti.
Um sömu mundir dró þó til tíð-
inda því 22. maí var bökkumaður
að nafni Wayne Bertram Williams
færður til yfirheyrslu. Williams,
sem var plötusnúður og bjó í hverf-
inu, hafði sést hegða sér undarlega
við Chattahoochee-ána þar sem
morðinginn hafði losað sig við lík
nokkurra fórnar lamba.
Hundshár og handtaka
Lögreglan hafði þó engin hand-
bær sönnunargögn sem bendluðu
Williams við morðin og var honum
því sleppt en ákveðið að fylgjast
með kauða.
Tveimur dögum síðar fannst
nakið lík Nathaniels Carter, 27 ára,
fljótandi í fyrrnefndri á. Við rann-
sókn fundust hundshár á líkinu
sem samsvöruðu hárum sem fund-
ust í bifreið Williams. Í kjölfarið
bárust lögreglu til eyrna frásagnir
einstaklinga sem sögðu Williams
hafa misnotað þá og var hann
handtekinn 21. júní.
Réttarhöld hófust 6. janúar
1982 og var Williams ákærður fyrir
tvö morð. Málsóknin byggðist að
mestu leyti á líkum en eftir því var
tekið að morðunum linnti eftir að
Williams var handtekinn. Williams
fékk lífstíðardóm en engu að síð-
ur hafa foreldrar nokkurra fórn-
arlamba lýst efasemdum hvað sekt
hans varðar. En morðunum linnti
og málið telst upplýst. n
Wayne Bertram Williams Ekki eru foreldrar allra fórnarlambanna sannfærðir um sekt hans.
„Þegar þarna
var komið sögu
fóru þeldökkir foreldrar
að óttast um öryggi
barna sinna.
Plötusnúður Williams var plötusnúður og
þekktur sem slíkur.