Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2016, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2016, Page 34
Helgarblað 22.–25. júlí 201618 Skrýtið Sakamál SJÓNMÆLINGAR LINSUR • GLERAUGU Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is Traust fasteignaviðskipti og persónuleg þjónusta - þinn lykill að nýju heimili 414 6600 | nyttheimili.is FRÍTT SÖLUMAT Reynir Eringsson 820 2145 Skúli Sigurðarsson 898 7209 Guðjón Guðmundsson 899 2694 Fasteignasala Leigumiðlun Unglingamorðin í Atlanta n Unglingar og börn hurfu og voru myrt n Öll fórnarlömbin voru þeldökk Þ ann 27. febrúar, 1982, var formlega bundinn endi á táningamorð sem skekið höfðu Atlanta í Georgíu-fylki í Bandaríkjunum um þriggja ára skeið. Þann dag fékk Wayne Bertram Williams lífstíðardóm og fórnarlömbin voru 22 talsins. Fyrstu morðin voru framin 21. júlí 1979 þegar tveir þeldökkir ung- lingspiltar, Edward Smith og Alfred Evans, voru myrtir. Þann 4. septem- ber, sama ár, hvarf þriðji unglingur- inn, Milton Harvey, og 21. október bættist í hópinn Yusuf Bell, níu ára sonur Camille Belle, nafntogaðrar talskonu borgaralegra réttinda. Í mars 1980 var Angel Laner, 12 ára blökkustúlku, nauðgað og hún síðan myrt og 9. júní var Christopher Richardson ráðinn bani. Ung og þeldökk Þegar þarna var komið sögu fóru þeldökkir foreldrar á svæðinu að óttast um öryggi barna sinna og töldu, í ljósi þess að öll fórnarlömb- in voru ung og þeldökk, að rasisti stæði að baki morðunum og barns- hvörfunum. Lögreglan vísaði þó slíkum kenningum á bug með þeim rök- um að hverfið sem um ræddi væri blökkumannahverfi og taldi lög- reglan að hvítur maður á vappi þar hefði stungið verulega í stúf. Einnig hélt lögreglan því fram að raðmorðingjar héldu alla jafna til innan um eigin kynþátt. Smá útúrdúr og grunsamlegur náungi Í maí 1981 var fjöldi fórnarlamba orðinn 21 og mánaðarlegur kostn- aður við rannsókn málsins var 250.000 Bandaríkjadalir. Hagur Atlanta vor orðinn svo bágur að Ronald Reagan, þáverandi forseti Bandaríkjanna, sá fátt annað til ráða en að veita Atlanta 1.500.000 dala ríkisstyrk til að forða borginni frá gjaldþroti. Um sömu mundir dró þó til tíð- inda því 22. maí var bökkumaður að nafni Wayne Bertram Williams færður til yfirheyrslu. Williams, sem var plötusnúður og bjó í hverf- inu, hafði sést hegða sér undarlega við Chattahoochee-ána þar sem morðinginn hafði losað sig við lík nokkurra fórnar lamba. Hundshár og handtaka Lögreglan hafði þó engin hand- bær sönnunargögn sem bendluðu Williams við morðin og var honum því sleppt en ákveðið að fylgjast með kauða. Tveimur dögum síðar fannst nakið lík Nathaniels Carter, 27 ára, fljótandi í fyrrnefndri á. Við rann- sókn fundust hundshár á líkinu sem samsvöruðu hárum sem fund- ust í bifreið Williams. Í kjölfarið bárust lögreglu til eyrna frásagnir einstaklinga sem sögðu Williams hafa misnotað þá og var hann handtekinn 21. júní. Réttarhöld hófust 6. janúar 1982 og var Williams ákærður fyrir tvö morð. Málsóknin byggðist að mestu leyti á líkum en eftir því var tekið að morðunum linnti eftir að Williams var handtekinn. Williams fékk lífstíðardóm en engu að síð- ur hafa foreldrar nokkurra fórn- arlamba lýst efasemdum hvað sekt hans varðar. En morðunum linnti og málið telst upplýst. n Wayne Bertram Williams Ekki eru foreldrar allra fórnarlambanna sannfærðir um sekt hans. „Þegar þarna var komið sögu fóru þeldökkir foreldrar að óttast um öryggi barna sinna. Plötusnúður Williams var plötusnúður og þekktur sem slíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.