Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2016, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2016, Blaðsíða 9
Vikublað 26.–28. júlí 2016 Fréttir 9 BB | | BB BB BB | BLEMISH BAL M THE ORIGINAL Light Classic Honey| www.schrammek.com The power of medical beauty. Útsölustaðir Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ Nánari upplýsingar: www.vilja.is Dregur úr bólgum í húð og róar húðina Örvar endurnýjun húðar Hylur háræðaslit, stórar húðholur, roða og litabreytingar Sótthreinsandi Gott á sólbruna, brunasár og önnur sár Gott á bólur Góður hyljari Hentar öllum húðgerðum www.schrammekshop.com erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík Nánari upplýsingar: www.vilja.is BB | | BB BB BB | BLEMISH BAL M THE ORIGINAL Light Classic Honey| www.schrammek.com The power of medical beauty. Útsölustaðir Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ Nánari upplýsingar: www.vilja.is Dregur úr bólgum í húð og róar húðina Örvar endurnýjun húðar Hylur háræðaslit, stórar húðholur, roða og litabreytingar Sótthreinsandi Gott á sólbruna, brunasár og önnur sár Gott á bólur Góður hyljari Hentar öllum húðgerðum www.schrammekshop.com erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík Nánari upplýsingar: www.vilja.is B |B | BB BB BB | BLEMISH BAL M THE ORIGINAL Light Classic Honey| www.schrammek.com The power of medical beauty. Útsölustaðir Verði þinn vilji snyrti og nuddstofa Borgartún 3 Reykjavík / Heilsa og útlit Hlíðasmára 17 Kópavogi / Deluxe snyrti og dekurstofa Glæsibæ Nánari upplýsingar: www.vilja.is Dregur úr bólgum í húð og róar húðina Örvar endurnýjun húðar Hylur háræðaslit, stórar húðholur, roða og litabreytingar Sótthreinsandi Gott á sólbrun , brunasár og önnur sár Gott á bólur Góður hyljari Hentar öllum húðgerðum www.schrammekshop.com erði þinn vilji snyrti- li lí rs ára i - og dekurstofa Glæsib Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6 Kópavogi / Pandora snyrti- og fót ðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík Nánari upplýsingar: www.vilja.is Útsölustaðir Verði þinn vilji Snyrti- og nuddstofa. Borgartún 3, Reykjavík Heilsa og útlit Hlíðarsmára 17, Kópavogi Deluxe snyrti- og dekurstofa Glæsibæ Snyrtistofan Tulip Hæðasmára 6, Kópavogi Pandora snyrti- og fótaðgerðastofa Þangbakka 8-10 Reykjavík Nánari upplýsingar: www.vilja.is Allt fyrir raftækni Yfir 500.000 vörunúmer Miðbæjarradíó ehf. - Ármúla 17, Reykjavík - www.mbr.is - S: 552-8636 Brynjúlfur brýtur lögin: Ekki eins og að tína blóm Segist ætla hætta auglýsa sveppi á Facebook B rynjúlfur Jóhannsson hefur tröllatrú á ofskynjunarsvepp- um og segir slæmt orðspor þeirra byggt á vanþekkingu. Heldur hann fram að ofskynj- unarsveppir séu hreint lyf sem geti hjálpað fólki að komast yfir hina ýmsu kvilla. Hann kallar sjálfan sig töfra- lækni og hefur boðið fólki að koma á heimili sitt í Heiðmörk til að fá aðstoð með líf sitt, þá með og án ofskynjunar- sveppa. Brynjúlfur auglýsti sveppi til sölu í kostaðri færslu á Facebook. Yfirleitt fer sala á fíkniefnum fram í lokuðum hóp- um en Brynjúlfur hefur auglýst svepp- ina fyrir opnum tjöldum og greitt Face- book til að ná til sem flestra. Vildi hann fá frið fyrir lögreglu. Nokkurs misskiln- ings virtist gæta innan lögreglunnar hvort ofskynjunarsveppir væru ólög- legir þegar DV kannaði málið. Ofskynjunarsveppir sem vaxa hér á landi innihalda virka efnið silocíbin sem valdið getur ofskynjunum. Efnið er skilgreint sem vægt ofskynjunarefni og þarf að taka mikið magn af svepp- um til að komast í þá vímu sem fíklar sækjast eftir. Hefur Þórarinn Tyrfings- son, yfirlæknir á Vogi, varað mjög við notkun þeirra og sagt að fólk gæti far- ið í „slæm ferðalög“ og jafnvel aldrei jafnað sig, um eins konar geðrofsá- stand væri að ræða. DV hafði samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu til að kanna hvort auglýsing Brynjúlfs væri ólögleg. Upplýsingafulltrúi lögreglunnar treysti sér ekki til að svara spurningunni og vísaði á Runólf Þórhallsson, nýj- an yfir mann fíkniefnadeildar sem tók við af Aldísi Hilmarsdóttur í febrú- ar. Hann kvað ofskynjunarsveppi vera löglega. Að efnið silocíbin sem veld- ur ofskynjunum væri ekki á bann- lista. Undir það tók samstarfsmað- ur hans og því væri lögreglan hætt að „tína hettupeysurnar af hraðahindr- unum.“ Lögreglan gerði ofskynjunar- sveppi stundum upptæka en viðkom- andi gæti þá sótt þá til lögreglunnar og óskað eftir að fá þá aftur í sína vörslu. Á haustin, eftir fyrstu frostnótt, er ekki óalgeng sjón að sjá unga menn klædda hettupeysum til að hylja andlit sín að tína sveppi á umferðareyjum. Þjóðsagan á götunni segir að eftir fyrstu frostnótt sé mestu vímuna að fá úr sveppunum. Bætti Runólfur við að Brynjúlfur sveppasölumaður væri því ekki að gera neitt ólöglegt. Undir það tók samstarfsfélagi hans á deildinni. „Þetta er bara eins og að tína blóm og ber,“ sagði yfirmaður fíkniefnadeildar þegar DV var fyrst að kanna málið. Við nánari athugun kom í ljós að samkvæmt lögum er innflutningur, útflutningur, sala, kaup, skipti, af- hending, móttaka, framleiðsla, til- búningur og varsla ofskynjunar- sveppa ólögleg skv. lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni. Í 1. mgr., sbr. 4. mgr. 2. gr. laganna, kemur fram að neysla þeirra efna sem talin eru upp í lögunum sé bönnuð. Brot á þess- um lögum getur varðað allt að sex ára fangelsi. DV hafði því aftur samband við fíkniefnadeildina sem óskaði eftir fresti til að svara spurningum sem fékk lögfræðinga á ákærusviði til að kanna málið. Þá kom í ljós að ekki er oft ákært fyrir vörslu ofskynjunar- sveppa. „Þetta hefur verið í einhverjum málum þar sem önnur efni hafa verið haldlögð líka. Í einhverjum tilfellum er þetta sent niður í rannsóknarstofu. Það kostar morðfé og er ekki alltaf gert. Oftast er þetta afgreitt þannig að menn eru beðnir um að afsala sér þessu og þá er þessu eytt,“ segir Run- ólfur. Sagði Runólfur þennan misskiln- ing byggðan á því að hann væri ný- tekinn við sem yfirmaður og öðruvísi hefði verið litið á málin þegar hann starfaði í deildinni á árunum 2001 til 2003. Það væri því ólöglegt að selja, geyma og kaupa sveppi sem innihalda silocíbin. Ástæða þess að fleiri væri ekki með það á hreinu að ofskynjun- arsveppir væru ólöglegir helgaðist af því að fíkniefnadeildin hefði ekki lagt áherslu á þá undanfarin ár. „Þetta er ekki í öllum sveppum en ef Brynjúlfur er að auglýsa ólöglega hluti, þá er það brot. Þetta er ekki í öll- um sveppum. Það þyrfti að skoða það og haldleggja hjá honum sveppi og senda í rannsókn.“ Brynjúlfur ákvað svo í gær, mánu- dag, að tilkynna að hann væri hættur að bjóða upp á athafnir þar sem not- aðir væru ofskynjunarsveppir. Í stuttu skeyti á Facebook sagði hann: „Ég mun eingöngu starfa án lyfs. Ég mun áfram bjóða upp á sveppinn, svo hægt er að nálgast hann hjá mér. Ég elska að starfa í einfaldleika. Algjörlega út frá sjálfum mér. Sveppurinn er ekki nauðsynlegur en engu að síður frá- bært lyf.“ n Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.