Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2016, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 26.–28. júlí 201620 Lífsstíll Sagði Audre Lorde (18.2.1934–17.11.1992) um sjálfa sig. Audre var róttæk baráttukona fyrir jafnrétti og mannréttindum. Hún þótti snillingur í að miðla heitum tilfinningum í skáldskap sínum, sem fjallaði að mestu um borgaraleg réttindi, femínisma og sjálfsmynd svartra kvenna, og hélt ekki aftur af reiði sinni í garð misréttis og kúgunar. Audre lést aðeins 58 ára að aldri úr brjóstakrabbameini. Nýkomnar bláar dásemdir frá GreenGate HÖFÐABAKKA 3 / 110 REYKJAVÍK / SÍMI 587 2222 / litlagardbudin.is / Við erum á Facebook Einu eggin á neytendamarkaði með löggilda vottun Lífrænu hænurnar hjá Nesbúeggjum • Fá lífrænt fóður • Fá mikið pláss • Njóta útiveru nesbu.is NESBÚ EGG Femínistar sem þú þarft að þekkja Konur sem ruddu brautina F emínismi er ekki lengur jaðarfyrirbæri. Í dag eru femínistafélög sprottin upp í flestum menntaskólum og meira að segja sumum grunnskólum. Komandi kynslóðir gera sér grein fyrir því að ójafnrétti kynj- anna er tímaskekkja og þarf að útrýma. Hér eru nokkrir áhrifamiklir femínistar sem öllum áhugasömum er hollt að kynna sér. n Betty Friedan (4.2.1921– 4.2.2006) var bandarískur rit­ höfundur, aktív­ isti og femínisti. Hún var leiðandi í kvenréttinda­ baráttunni í því sem kallað hefur verið önnur bylgja baráttunnar á 20. öldinni. Bók Betty, The Feminine Mystique, er af mörgum talin hafa ýtt þeirri bylgju af stað, en hún kom út 1963. Betty var einn stofnenda landssam­ taka kvenna í Bandaríkjunum (National Organization for Women eða NOW), og var fyrsti formaður samtakanna sem höfðu að markmiði að leiðrétta stöðu kvenna í bandarísku samfélagi og tryggja algjört jafnrétti kynjanna. Betty lét til sín taka í stjórnmálum og barðist meðal annars fyrir því að banni við fóstureyðingum yrði aflétt. Gloria Marie Steinem (f. 25.3.1934) er banda­ rískur femínisti, blaðakona og aktívisti. Hún varð fyrst þekkt á sjöunda áratugnum sem talskona femínísku bylgjunnar. Hún var dálkahöfundur fyrir New York Magazine og stofnaði síðar Ms. Magazine sem ennþá er gefið út. Gloria hefur lagt sérstaka áherslu á að berjast fyrir sýnileika kvenna í fjölmiðl­ um og stofnaði ásamt fleirum samtökin Women's Media Center sem hefur það að markmiði. Gloria er virtur fyrirlesari, hefur ritað fjölda bóka, og hlotið fjöldann allan af viðurkenningum fyrir störf sín. Bell Hooks (f. 25.9.1952), sem heitir reyndar Gloria Jean Watkins. Hún tók upp höfundarnafnið Bell Hooks til heiðurs langömmu sinni. Skrif hennar fjalla aðallega um tengsl kynþátta, kapítalisma og kyns – kúgun og stéttadrottnun. Hún hefur skrifað meira en 30 bækur, fjöldann allan af greinum, komið fram í heimilda­ myndum og er vinsæll fyrirlesari. Bell hefur skoðað, út frá póstmódernísku sjónarhorni, hvernig kynþáttur, stétt og kyn birtist í menntun, listum, sögu, kyntjáningu, fjölmiðlum og femínisma. Naomi Klein (f. 8.5.1970) er kanadísk kvikmyndagerðakona, rithöfundur og aktívisti. Hún er þekkt fyrir pólitískar greiningar sínar og gagnrýni á kapítalisma og hnattvæðingu stórfyrirtækja. Þekktasta bók hennar er No Logo, þar sem hún fjallar um hvernig stórfyrirtæki misnota völd og peninga til dæmis með því að framleiða vörur sínar á fátæk­ um svæðum. Naomi er oft sett á lista yfir áhrifamestu hugsuði okkar tíma. Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is Femínismi er samheiti yfir ýmsar pólitískar og hugmyndafræðilegar stefnur sem eiga það sameigin­ legt að fjalla um jafnrétti kynjanna. Á heimasíðu Femínistafélags Íslands er eftirfarandi skilgreining sett fram: „Femínisti er karl eða kona sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og vill gera eitthvað í því.“ Vissulega þykir landið okkar standa framarlega í jafnréttismálum, en fyrir þá sem efast um að femínisma sé þörf á Íslandi má benda á eftirfarandi staðreyndir: n Á Íslandi fá konur 18,3% lægri laun en karlar. Þann launamun er ekki hægt að útskýra með neinu nema kyni. n Í íslenskum fjölmiðlum eru konur að jafnaði 30% þeirra sem fjallað er um. n Fjórðungur íslenskra feðra tekur ekki fæðingarorlof. n Í fjármálafyrirtækjum á Íslandi eru 9% stjórnenda konur. n Á Íslandi hefur kona einu sinni orðið forsætisráðherra og einu sinni forseti. Þess vegna þurfum við femínisma „Ég er svört, femínisti, lesbía, móðir og skáld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.