Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2016, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2016, Blaðsíða 17
Vikublað 26.–28. júlí 2016 Kynningarblað - Brot af því besta 3 Heitir pottar – íslensk framleiðsla í 30 ár NormX N ormX er rúmlega þrjá- tíu ára gamalt íslenskt framleiðslufyrirtæki sem framleiðir heita potta úr hverfisteyptu plasti í plast- verksmiðju sem staðsett er í Vogum á Vatnsleysuströnd. Að sögn Kjart- ans Ragnarssonar er NormX með verslun og glæsilegan sýningarsal að Auðbrekku 6 í Kópavogi. „Í salnum okkar eru til sýnis ýms- ar vörur sem við framleiðum og seljum. Við höfum sérhæft okkur í heitum pottum en jafnframt teljum við mjög mikilvægt að vera með á boðstólum allar vörur sem tengj- ast pottunum, líkt og hitastýringar, nokkrar gerðir af lokum, nuddbúnað og ýmsa fylgihluti.“ Besti kosturinn hvað varðar bæði gæði og verð „Við stöndum við þau orð að heitu pottarnir frá NormX séu besti kosturinn hvað varðar bæði gæði og verð,“ segir Kjartan. „Pottarn- ir sem við framleiðum eru einstak- lega sterkir og þola vel fjölbreytileika íslenskrar veðráttu. Þeir eru einkar auðveldir í þrifum enda framleiddir úr gegn- heilu Polyethylene-plasti með UV-vörn (sólarvörn) og verj- ast því sólarljósi vel. Allir heit- ir pottar frá NormX eru endur- vinnanlegir. Allar gerðir af pottum er hægt að fá í mismunandi litum. Við Íslendingar erum þeirrar gæfu aðnjótandi að hér er langoftast lítið sem ekkert mál að nálgast heitt vatn á mjög lágu verði og hönnun heitu pott- anna okkar hjá NormX taka mið af því og taka frekar mikið vatn og eru djúpir. Í Snorralauginni (sem er vin- sælasti potturinn okkar) eru t.d. 66 sentimetrar frá sæti og upp á brún. Þá ætti að flæða vel yfir axlir á flest- um. Það er því svo sannarlega leikur einn að njóta vellíðunar í pottinum hvort sem sólin skín glatt að sumri til eða kuldi og snjór sé í kortunum.“ Við eigum allt sem þarf fyrir heita pottinn „Afgreiðslutími NormX pottanna er skammur þar sem algengustu og vinsælustu gerðirnar eru alltaf til á lager og aðrar getum við fram- leitt með litlum fyrirvara. Við selj- um að sama skapi allar lagnir sem til þarf, auk nuddkerfa og ljósabún- aðar, allt eftir óskum viðskiptavina. Við leggjum metnað okkar í að við- skiptavinir okkar séu ánægðir alla leið,“ segir Kjartan að lokum. n NormX Auðbrekku 6, 200 Kópavogur Sími: 565-8899. Opnunartími: Mánudaga til fimmtudaga 10.00–18:00, föstudaga, opið 10.00–17.00. normx@normx.is, www.normx.is B aldvin Guðjónsson, eig- andi fyrirtækisins Smá- verka, segir að viðskipta- vinum þyki mjög handhægt að hafa svo að segja allt á einum stað. „Hér innanborðs starfa píparar, málarar, rafvirkjar og smið- ir svo það er leikur einn að sækja til kunnáttumikilla fagmanna hjá okkur. Hjá Smáverkum finnurðu heildarlausnina þína. Það má segja að þjónustan sem í boði er dekki allt frá a–ö. Um þessar mundir er mikið að gera hjá okkur og reyndar búið að vera í allan vetur. Við erum mikið í ýmiss konar smíði og stand- setningu.“ Smáverk sinnir stórverkum „Smáverk var lítið fyrirtæki við upp- haf rekstursins en hefur hlaðið utan á sig er nú raunar meira í stórum verkum en smáum,“ segir Baldvin brosandi. „Nú orðið tökum við heilu húsin í gegn og jafnvel blokkir líka. Við höfum afar lítið verið að auglýsa þar sem okkar ánægðu viðskipta- vinir leita aftur og aftur til okkar auk þess sem þeir eru duglegir við að láta okkar góða orðspor ber- ast. Ánægður viðskiptavinur er að mínu mati besta auglýsingin,“ segir Baldvin að lokum og bendir á að Smáverk kemur á staðinn og gerir fólki tilboð því að kostnaðarlausu. Ummæli á Facebook frá ánægðum viðskiptavini: „Ég vil þakka Baldvini og starfsmönnum Smáverka fyrir fag- leg og vandvirk vinnubrögð. Þeir eru sanngjarnir, úrræðagóðir og algjörlega traustir. Auðvelt að ná á þá og þeir mæta á þeim tíma sem þeir gefa upp. Mæli eindregið með þeim.“ n Smáverk, Faxafeni 8 Símar: 897-8040, 772-9812. www.facebook.com/smaverk Smáverk: Smíða, mála, laga og breyta fyrir einstaklinga og fyrirtæki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.