Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Blaðsíða 2
Vikublað 20.–22. september 20162 Fréttir
W
illum Þór Þórsson, þing-
maður Framsóknar-
flokksins, uppfærði ekki
hagsmunaskráningu
sína á vef Alþingis fyrr
en þremur mánuðum eftir að hann
var ráðinn sem þjálfari KR í Pepsi-
deild karla í sumar. Samkvæmt regl-
um um skráningu fjárhagslegra
hagsmuna alþingismanna og trúnað-
arstörf viðhalda alþingismenn sjálfir
skráningu sinni og ber að skrá nýjar
upplýsingar og viðbótarupplýsingar
innan mánaðar frá því að þær liggja
fyrir. Willum segir að hann hafi talið
sig vera búinn að því þar til fyrirspurn
DV leiddi annað í ljós. Hann segir að
það hafi verið mikil og erfið vinna að
vera þjálfari samhliða þingmennsku,
en að þjálfarastarfið hafi ekki bitnað
á þingstörfum hans. Þetta tvennt geti
þó ekki farið saman til lengri tíma.
Willum Þór var sem kunnugt er
ráðinn þjálfari KR þann 26. júní síð-
astliðinn en hafði síðan þá láðst að
uppfæra skráningu sína. Hann bætti
úr því á mánudagsmorgun, eftir að
DV hafði spurst fyrir um málið á skrif-
stofu Alþingis. Undir liðnum launað
starf eða verkefni, annað en launuð
þingmannsstörf, er nú gerð grein
fyrir tímabundinni ráðningu hans
hjá KR, frá júlí–september. Auk þess
sem hann uppfærði að hann hafi vik-
ið tímabundið úr stjórn Breiðabliks
meðan hann er á mála hjá KR.
„Það var sjálfsagt mál að bregðast
við því. En mér fannst ég hafa gert
það, en svona er þetta stundum.
Ég get eiginlega þakkað þér
ábendinguna, því það er sjálfsagt
mál að greina frá þessu og þetta á að
vera í lagi. Ég tek því bara vel.“
Viðsnúningur undir stjórn Willums
Það vakti athygli þegar Willum Þór
var ráðinn aftur til KR í kjölfar þess að
Bjarni Guðjónsson var látinn taka pok-
ann sinn eftir slakt gengi stórveldisins
fyrri part sumars. Liðið var þá fallið úr
bikarnum, hafði aðeins hlotið níu stig
í níu fyrstu leikjum tímabilsins og ár-
angurinn langt undir væntingum.
Willum tók við KR þann 26. júní,
þegar Alþingi var í sumarfríi, og hef-
ur síðan stýrt KR í ellefu leikjum í
Pepsi-deild karla, þar af sex eftir að
Alþingi kom saman á ný eftir sumar-
frí þann 15. ágúst. Tveir leikir eru
eftir í deildinni, en lokaumferðin fer
fram 1. október næstkomandi.
Gengi KR hefur verið allt ann-
að eftir að Willum tók við liðinu og
hefur KR náð í 23 stig í þessum ell-
efu leikjum. Sjö sigrar, tvö jafntefli
og tvö töp. Eru því eðlilega margir
KR-ingar sem vilja halda honum
áfram við stjórnvölinn. Willum sæk-
ist hins vegar líka eftir endurkjöri
á þing í komandi kosningum, þar
sem hann skipar annað sætið á lista
Framsóknarflokksins í Suðvestur-
kjördæmi. Hann segir aðspurður að
engar viðræður hafi átt sér stað við
KR-inga um að hann haldi áfram.
Hann hafi litið á innkomu sína í
þjálfarastarf sem sameiginlegt verk-
efni allra KR-inga, nokkuð sem hann
hafi ekki getað skorast undan. Það
hafi þó verið erfitt að samræma þetta
tvennt að loknu sumarfríi í þinginu.
Mikil vinna fram á nótt
„Þetta er bara mikil vinna. Ég sá að í
júlí hefði ég sumarleyfið mitt í þetta
og síðan yrðu þetta 6–7 vikur þar
sem ég yrði bara einhvern veginn að
þrauka, og það eru tvær vikur eftir af
því. Ég er nú ekkert að væla. Þetta er
stórskemmtilegt.“
Aðspurður hvort hann hafi misst
eitthvað úr á þingi beinlínis vegna
þjálfarastarfsins, segir Willum að svo
sé ekki. Hann hafi jafnan klárað sitt
fyrir æfingar hjá liðinu, sem eru klukk-
an 17 en í 2–3 skipti hafi hann misst
eitthvað úr þingfundi standi hann
milli klukkan 17–19 en þá hafi hann
komið aftur í þingið að æfingu lokinni.
„Svo reyni ég að leikgreina, skipu-
leggja og undirbúa æfingar og ann-
að slíkt á kvöldin þegar þingi lýkur og
fram á nótt.“
Fer ekki saman
Aðspurður hvort hann muni leggja
þetta á sig aftur, fari svo að KR-ingar
vilji að hann haldi áfram og hann nái
endurkjöri segir Willum:
„Nei, það fer ekki saman að
vera í þessu hvorutveggja. Þetta var
tímabundið verkefni sem mér fannst
ég ekki geta skorast undan.“
Fari hins vegar svo að hann nái
ekki endurkjöri á þing?
„Þá er allt galopið. Það getur vel
verið að eftir mánuð verði ég hvorki
þjálfari né á þingi.“
Rúnar frábær kostur
Fari svo að Willum nái á þing og haldi
ekki áfram með KR, á Vesturbæjarstór-
veldið þó hauk í horni. Um helgina var
Rúnar Kristinsson, fyrrverandi þjálf-
ari KR, rekinn sem þjálfari Lillestrøm
í Noregi og gæti því tekið við liðinu af
Willum. Það lýst þingmanninum vel á.
„Hann yrði frábær kostur fyrir KR,
það er ekki spurning.“ n
Gleymdi að
gera grein fyrir
þjálfarastarfinu
n Willum Þór hefur uppfært hagsmunaskráningu sína
n Segir það ekki fara saman að vera þingmaður og þjálfari
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is „Það fer ekki
saman að vera í
þessu hvorutveggja.