Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Síða 16
Vikublað 20.–22. september 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
16 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Hiti í Vikulokum
Umræðuþættir
um þjóðfélagsmál
eru yfirleitt ekki
jafn hressilegir og
Vikulokin á Rás 1
voru síðastliðinn
laugardag. Svavar
Halldórsson tókst
þar á um búvörusamninginn við
þau Sigríði Maríu Egilsdóttur og
Gísla Martein Baldursson. Svavar
varði samninginn við litlar undir-
tektir Sigríðar Maríu og Gísla
Marteins. Til harðra orðaskipta
kom í þættinum þar sem Svavari
var hinn reiðasti. Hlustendur
biðu í ofvæni eftir því að heyra
hurðarskell þegar hann gengi út
í bræði. Svo fór þó ekki. Á Face-
book segir Svavar: „Það kann
að vera að mér hafi orðið dálítið
heitt í hamsi í umræðum um
landbúnað og sauðfjársamning“
og bætir við: „Ég fagna því að ung
kona eins og Sigríður María taki
þá ákvörðun að stíga inn á vett-
vang stjórnmálanna og það var
ekki meiningin að vaða yfir hana
með hrútskýringum.“
Guðni gerir lukku
Nýleg könnun
sýndi mikla
ánægja lands-
manna með ný-
kjörinn forseta
Guðna Th. Jóhann-
esson. Það hefur
örugglega enn
bæst á ánægjuvogina eftir að
fréttist að forsetinn hefði heim-
sótt Lilju Katrínu Gunnarsdóttur
á endaspretti hennar í bökunar-
maraþoni til styrktar Krafti, sem
er stuðningsfélag ungs fólks með
krabbamein. Lilja brast í grát
þegar hún sá forsetann mættan á
heimili sitt og hann brást við með
því að fella tár. Netverjar hafa
margir hverjir lýst yfir ánægju
sinni með þessa óvæntu heim-
sókn forsetans.
Það var heiður að
hafa þekkt þig
Vinir minnast Yuen Choy sem lést í bílslysi á Sólheimasandi. – Facebook
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Súrdeigsbrauðin
okkar eru alvöru
u Heilkorna
u 100% spelt
u Sykurlaus
u Gerlaus
u Olíulaus
Við höf um átt
strembna viku
Knattspyrnumaðurinn Zlatan Ibrahimovic um gengi Manchester United.– Ýmsir miðlar
Ég bara fór að hágráta
E
kki eru margar vikur til kosn-
inga og kjósendur ættu því
að vita hver helstu áherslu-
mál flokkanna eru. Lítið ber
þó á stefnumálum og það er eins og
stjórnmálamennirnir hafi um annað
að hugsa en að koma þeim á fram-
færi. Helstu fréttir sem kjósendur
fá af flokkunum snúast um innan-
flokksátök og bræðravíg og með
slæðast síðan stórskandalar eins og
það að stjórnarandstaðan treysti sér
ekki til að segja nei við búvörusamn-
ingnum, þrátt fyrir að hafa
af krafti talað gegn honum.
Svo eru nettir skandalar eins
og sá að þingmenn Samfylk-
ingar skrópi í þingsal þegar
atkvæðagreiðslur eru á dag-
skrá. Kannski eru Samfylk-
ingarþingmennirnir eins og
Hamlet og eiga erfitt með
að gera upp hug sinn eða
kannski leiðist þeim bara í
stjórnarandstöðu og nenna
ekki að greiða atkvæði í mál-
um sem þeir ráða engu um.
Nýlega birtust niðurstöð-
ur í skoðanakönnun sem
Maskína gerði fyrir fréttastofu
RÚV og sýnir að 45 prósent
þátttakenda telja heilbrigð-
ismálin mikilvægustu um-
fjöllunarefni fjölmiðla fyrir
kosningar. Málefni aldraðra
og öryrkja er í öðru sæti og
húsnæðismálin í því þriðja. Þetta er
áhugaverð niðurstaða og í takt við
umræðu síðustu mánaða og missera.
Stjórnmálamennirnir vita af áhuga
almennings á heilbrigðismálum og
munu því leggja áherslu á eflingu
heilbrigðiskerfisins þegar þeir sjá sér
fært að hella sér út í kosningabarátt-
una. Sú áhersla er skynsamleg. Óhjá-
kvæmilega munu þó vakna hjá kjós-
endum efasemdir um efndir, enda
vantreystir þjóðin stjórnmálamönn-
um meira en flestum öðrum stéttum.
Það vekur athygli í skoðana-
könnun Maskínu hversu lítill
hluti kjósenda telur endurskoðun
stjórnar skrárinnar vera mikilvægt
mál. Hópur manna talar eins og það
sé brennandi hagsmunamál fyrir
þessa þjóð að stjórnarskránni verði
gjörbreytt og jafnvel umbylt. Þjóðin
virðist alls ekki vera á sama máli.
Hún nennir ekki að gera stjórnar-
skrármálið að hitamáli. Sennilega
hefur þjóðin þá skynsamlegu af-
stöðu að sjálfsagt sé að endurskoða
stjórnar skrána án þess að umbylta
henni.
Lítill sem enginn hljómgrunnur
virðist svo vera fyrir aðildarviðræðum
Íslands við Evrópusambandið. Það
kemur ekki á óvart. Áhersla Samfylk-
ingarinnar og Viðreisnar á inngöngu
í Evrópusambandið er slæm tíma-
skekkja. Allt hefur sinn tíma, sagði
hinn vitri predikari. Staðan í Evrópu-
sambandinu er þannig að best er
fyrir okkur að sjá hver þróunin verð-
ur áður en við förum að stökkva til
og banka á dyr í Brussel. Flokkar
sem ætla sér að ræða um Evrópu-
sambandið við kjósendur munu tala
fyrir daufum eyrum. Innganga er
ekki á dagskrá.
Stjórnmálamennirnir ættu ekki
bara að kynna sér hvaða málaflokk-
ar það eru sem þjóðinni finnst skipta
mestu máli. Þeir verða einnig að átta
sig á því hvaða málaflokkum þjóðin
sýnir áhugaleysi og það á við um
stjórnarskrármálið og aðildarvið-
ræður við Evrópusambandið. n
Áherslur þjóðarinnar
Myndin Haustdemba Heiðmörk og Bláfjöll gægjast hér undan haustdembu á mánudagseftirmiðdag. Það kann einmitt að verða vætusamt með köflum næstu daga jafnvel
þótt kraftmiklar haustlægðir láti bíða eftir sér. MYnd SIGTrYGGur arI
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Flokkar sem ætla
sér að ræða um
Evrópusambandið við
kjósendur munu tala fyrir
daufum eyrum.
Tilfinningar báru þreytta Lilju Katrínu Gunnarsdóttur ofurliði við maraþonbakstur. – Facebook