Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Blaðsíða 18
Vikublað 20.–22. september 20162 Áhrifaríkar meðferðir - Kynningarblað
„Hvaða Hólmfríði ætlar
þú að hitta í dag?“
Andleg heilsa fyrir haustið
H
austið 2012 stofnaði Hólm-
fríður Jóhannesdóttir And-
lega setrið þar sem hún
hjálpar nú fólki að hjálpa
sér sjálft. Hún útskrifaðist
sem meðferðardáleiðari frá The
Hypnosis Centre í Skotlandi vorið
2011 og hefur síðan þá lært hjá
nokkrum af þekktustu dáleiðurum
Bandaríkjanna. Hólmfríður er ekki
eingöngu meðferðardáleiðari held-
ur einnig óperusöngkona, söng-
kennari, heilari, höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðferðaraðili og
NLP-ráðgjafi. „Eitt sinn hringdi dyra-
bjallan þegar ég var að vinna heima
í Vesturbænum og ég mundi ekki
hvort ég var að fara að dáleiða eða
kenna söng. Í fljótfærni svaraði ég:
Hvaða Hólmfríði ætlar þú að hitta í
dag? Nemandinn var þá kominn til
að hitta söngkennarann.“
„Meðferð hjá mér gengur mikið
út á sjálfsvinnu.“ Til að ná virkilega
góðum árangri í sjálfsvinnu þarf
samvinnan að vera mjög góð. Ef sá
sem kemur í dáleiðslu treystir ekki
meðferðaraðilanum eða vill ekki
opna sig tilfinningalega, þá verður
árangurinn í hæsta lagi 70 prósent.
Það er hægt að segja að meðferðar-
aðilinn sé stanslaust að rétta hin full-
komnu verkfæri í meðferðinni. Svo
er það í höndum þess sem þiggur
meðferð hvort og hvernig hann not-
ar þessi verkfæri, og hvort árangur-
inn verður mjög mikill, meðal eða
lítill. „Ég hef reyndar fengið til mín
fólk sem segist í byrjun viðtals hafa
litla trú á dáleiðslunni þar sem það
hafi reynt allt og ekkert virkað. Því
tel ég mikil vægt að eiga gott samtal
á undan sjálfri dáleiðslunni því þar
kynnist aðilinn meðferðaraðilanum
og oftar en ekki eflist traustið í sjálfu
viðtalinu. Fyrsti tíminn hjá mér er
því ávallt í 90 mínútur og endurkom-
an í 60 mínútur.“
Haustið er tími nýrra verkefna og
því tilvalið til sjálfsvinnu. Haustið er
líka einn besti tíminn til að breyta
mataræði eða hætta að reykja fyrir
þá sem hafa leitt hugann að því.
Sérsvið Hólmfríðar er streita, kvíði,
verkir, sjálfstraust og fíkn. Eitt leið-
ir af öðru. „Ef þú hefur þróað með
þér streitu og veist ekki hvernig þú
átt að losna við hana, er ekki óal-
gengt að hún kalli á besta vin sinn,
kvíða. Kvíði getur svo kallað á svefn-
leysi sem getur kallað á þunglyndi.
Það má í raun segja að streita, kvíði
og þunglyndi séu systkini. Þau eru
ólík en þau eru tengd.“ Hér þarf að
finna rótina að vandanum og vinna
með hana. Oft hefur fólk safnað upp
reiði eftir erfiðleika eða ósætti og veit
ekki hvernig það á að losna við hana.
Þar sem reiði er tortíming er ekkert
betra en að losna við hana strax. Hér
þarf oftast að fara í fyrirgefningarferl-
ið. „Þó að við fyrirgefum einhverjum
þýðir það ekki endilega að við ætl-
um að verða vinir eða að við viljum
sjá þessa manneskju á fésbókinni
daglega, en við þurfum ekki heldur
að vera óvinir. Við fyrirgefum fólki
ekki til að fría það heldur til að öðlast
frelsi sjálf. Þegar manneskjan sem
við vorum reið við hefur ekki áhrif á
okkur lengur, hættir hún að stjórna
lífi okkar.“
Hólmfríður bjó áður erlendis þar
sem hún starfaði sem óperusöng-
kona og því með mikla sviðsreynslu
þar sem streita og sjálfstraust vinna
saman. „Það getur verið gaman að
fylgjast með þessari samvinnu og
að lokum verður annað öðru yfir-
sterkara, en hjá sviðsfólki
þurfa þessir tveir þætt-
ir að vinna saman.
Hér getum við talað
um jákvæða streitu
eða eftirvæntingu
eftir að stíga á
svið. Ef eftir-
væntingin er
engin gæti text-
inn hreinlega
horfið. Text-
inn sem ég
kann best.
Hvað er
skemmtilegra en að stíga á svið full-
ur af sjálfstrausti með temmilega
eftir væntingu?
Með hjálp dáleiðslu geturðu náð
betri stjórn á tilfinningum og eftir
að ég byrjaði að dáleiða hefur aldrei
verið streita með mér á sviðinu, sem
ég hef ekki ráðið við, því það er ég
sem stjórna. Nú er svo komið að eft-
ir að hafa starfað við dáleiðslu í rúm
fimm ár tel ég að tími sé kominn til
að kenna hana. Frá áramótum
hef ég þjálfað mig upp sem
kennara.“ Nýtt fimm vikna
námskeið byrjar í október
þar sem undirstöðu-
atriði dáleiðslunnar verða
kennd einu sinni í viku.
Aðeins verða tveir til fjór-
ir á hverju námskeiði og er
hægt að velja um laugar-
daga eða virkan dag. Nám-
skeiðið er tilvalið fyrir þá
sem vilja efla sjálfstraust
og styrk í einkalífi,
námi eða starfi.
Skráning er hafin
á hj@daleidari.is
og einnig er hægt
að panta tíma í
dáleiðslu eða
söngkennslu á
þessu sama net-
fangi.
Sjá nánari
upplýsingar
á: daleidari.is
og bloggsíðu
Hólmfríðar:
daleidari.
blog.is n