Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Page 33
Vikublað 20.–22. september 2016 Menning 25
Sérmerktu
persónulegu
gjafavörurnar
ALLT MERKILEGT
GarðatorG 3, Garðabæ - S: 555 3569 - Sala@alltmerkileGt.iS - alltmerkileGt.iS - Sala@alltmerkileGt.iS
Pantaðu í netversluninni
Hægt er að fá bæði sent heim
eða sækja í nýju versluninni okkar!
Allt
merkilegt
10 árA
( 893 5888
Persónuleg
og skjót
þjónusta
þú finnur
okkur á
facebook
þannig að eftir stendur berskjald
aður, áreynslulaus og trúverðugur
Ove. Áhorfendur veltast um af hlátri
eða tárast yfir einlægum viðbrögð
um hans og frásögn. Ekki er þörf á
neinum brellum til að halda áhorf
endum vakandi, handritið hans Ove
rígheldur.
Sigurður fer einnig með ótal
mörg önnur hlutverk í sýningunni
og það er ástæða til að benda áhorf
endum á þá natni sem lögð hefur
verið í að sýna skoðun og álit Oves
á viðkomandi karakterum í túlkun
hans á þeim. Ove er nefnilega, líkt
og svo margir, þeirri náttúru gædd
ur að einblína fyrst og fremst á það
sem hann telur galla annarra og það
eru einmitt þeir sem hann sýnir svo
vel í túlkun sinni.
Umgjörð verksins er hófstillt og
einföld. Sjálfspilandi píanóið í horn
inu endurspeglar með skemmtileg
um hætti hversu fyrirsjáanlegt og
endurtekningarsamt líf Oves hef
ur verið en hljóðmyndin breytist og
verður meira spennandi þegar líf
hans fer að snúast um aðra en bara
hann sjálfan. Leikmyndin vinnur vel
með sögunni og snyrtilega er komist
af án leikmuna.
Gamanleikrit sem hrærir í manni
Maður sem heitir Ove er grátlega
fyndin saga af fráhrindandi manni
sem fæstir myndu þora að sækja
eftir félagsskap til. En þetta er ekki
síður eldheit ástarsaga manns með
of stórt hjarta sem snertir mann
djúpt og hrærir í manni. Það er full
ástæða til þess að hvetja leikhús
áhorfendur til þess að sjá þennan
vel heppnaða einleik í Þjóðleikhús
inu í vetur. n
„Það hlýtur
að vera
erfitt fyrir
vinsælan leikara
á hans aldri að
sýna á sér alveg
nýja hlið, en hér
finnst mér honum
takast að koma
áhorfendum
skemmtilega á
óvart.
Sigurður Sigurjónsson
„Túlkar Ove með fram-
úrskarandi hætti.“
MYNDIR HÖRÐUR SVEINSSON
K
vikmyndatökumaðurinn
Arnar Þórisson er tilnefndur
til Lettnesku kvikmyndaverð
launanna sem kvikmynda
tökumaður ársins fyrir myndina
Mellow Mud, eða Es esmu šeit.
Verðlaunin verða afhent í október.
Myndin verður sýnd á veglegri
barnadagskrá RIFF í ár og hlaut ný
verið Kristalbjörninn fyrir bestu
myndina í flokknum Generation
14Plus á alþjóðlegu kvikmynda
hátíðinni í Berlín sem fór fram í
febrúar síðastliðnum.
Mellow Mud er ekki eina myndin
sem Arnar á aðkomu að á RIFF því
hann myndaði einnig myndina
Pale Star sem sýnd er í Icelandic
Panorama flokki RIFF. RIFF, Al
þjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja
vík, hefst þann 29. september næst
komandi. n
kolbrun@dv.is
Arnar tilnefndur til verðlauna