Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2016, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2016, Blaðsíða 26
Vikublað 25.–27. október 201618 Sport Ensku liðin raða sér í toppsætin n Listi yfir upphæðir sem félög hafa eytt í leikmenn undanfarin sex ár n Þrjú ensk lið á toppnum E nsku félögin Manchester City, Chelsea og Manchester United bera höfuð og herðar yfir önnur félög þegar kem- ur að eyðslu fjármuna í leik- menn síðustu sex árin. CIES Foot- ball Observatory hefur tekið saman heildareyðslu liða úr stærstu fimm deildum Evrópu. Sex stærstu liðin á Englandi eru öll á meðal þeirra fimmtán liða sem mestum pening- um hafa eytt í leikmenn frá árinu 2010. Allt árið um kring eru settar fram vangaveltur í formi frétta um yfirvofandi félagaskipti leikmanna. Aðaltíminn er yfir sumarið en ekki er laust við að sumum stjórunum leiðist þetta tímabil. Þannig sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, í sumar að hann gæti ekki beðið eftir að félagaskiptaglugginn lokaði. Hann sagði að menn einblíndu allt of mikið á það frekar en að horfa á hvernig lið tækju framförum með æfingum og leikskipulagi. Þó að hægt sé að kaupa bestu leikmenn heims fyrir peninga er það ekki ávísun á árangur. Það sannaði Leicester á síðustu leik- tíð og Atletico Madrid leiktíðina 2013/2014. Listinn hér kemur örugglega engum sérstaklega á óvart. Manchester City hefur eytt 130 milljónum punda meira í leikmenn síðustu sex árin en nokkurt annað lið. Dæmi um leikmenn sem liðið hefur keypt undanfarin misseri eru Kevin De Bruyne (55 milljónir punda), Raheem Sterling (44 millj- ónir punda), Nicolas Otamendi (32 milljónir punda) og Leroy Sane (37 milljónir punda). Listinn tekur ekki til þeirra fjár- hæða sem sömu félög hafa fengið fyrir að selja leikmenn. Hér á síð- unni má hins vegar einnig sjá hvaða félög hafa fengið hæstar upphæðir fyrir sölu leikmanna á umræddu sex ára tímabili. En hér eru þau lið sem hafa keypt leik- menn fyrir hæstu upphæðirnar undanfarin sex ár. n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Félög sem hafa eytt mestum peningum í leikmenn 2010–2016 Félag Land Upphæð Man City England 867 Chelsea England 737 PSG Frakkland 585 Liverpool England 561 Real Madrid Spánn 545 Juventus Ítalía 523 Roma Ítalía 453 Inter Ítalía 438 Atletico Madrid Spánn 438 Arsenal England 394 Tottenham England 387 Napoli Ítalía 370 Bayern Munchen Þýskaland 369 Monaco Frakkland 313 Wolfsburg Þýskaland 299 Valencia Spánn 289 Dortmund Þýskaland 288 AC Milan Ítalía 285 Upphæðir eru í milljónum punda. Félög sem hafa fengið mest fyrir að selja leikmenn 2010–2016 Félag Land Upphæð Liverpool England 374 Valcencia Spánn 366 Juventus Ítalía 352 Benfica Portúgal 351 Porto Portúgal 324 Atletico Madrid Spánn 319 Tottenham England 313 Roma Ítalía 311 Real Madrid Spánn 306 Chelsea England 303 Sevilla Spánn 296 Monaco Frakkland 287 Barcelona Spánn 250 Udinese Ítalía 247 Southampton England 227 Inter Ítalía 226 Napoli Ítalía 224 Genoa Ítalía 221 Man City England 209 Wolfsburg Þýskaland 203 Upphæðir eru í milljónum punda. Í takt við tímann • Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa. • Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum. frakt flutningsmiðlun / sundagörðum 2 , 104 reykjaVík / sími: 520 1450 5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0 Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.