Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2016, Qupperneq 31
Vikublað 25.–27. október 2016 Menning 23
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
Sjálfstætt starfandi
apótek í Glæsibæ
Okkar markmið er að veita þér og þínum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
Opnunartími: Virka daga 8.30-18
Laugardaga 10.00-14.00
Laugavegur 24
Sími 555 7333
publichouse@publichouse.is
publichouse.is
BENTO BOX
11.30–14.00 virka daga / LUNCH
11.30–15.00 um helgar / BRUNCH
1.990 kr.
Það eru vísanir í barnamenningu
í sögunni, barnasögur og leikrit. Var
það gert meðvitað?
„Já, algjörlega. Þetta eru lítil at
riði sem virðast falleg og góð en
undirniðri seytlar óhugnaðurinn
því sumt af því fólki sem minnst er á
hlaut fremur voveifleg örlög.“
Í mínum huga fjallar þessi saga
ekki síst um grimmd barna. Þar eru
mjög áhrifamiklar og sláandi lýs-
ingar.
„Sögurnar úr barnaskólanum
held ég að séu mjög raunsæjar lýs
ingar á þeirri múgsefjun og grimmd
sem þar fær oft að gerjast. Í grunn
skóla skipta krakkar sér í lið og þétta
raðirnar með ýmsum ráðum. Stétta
skiptingin hefst stundum strax í
barnaskóla. Þar er ákveðið hver fær
að vera með og hver ekki.“
Fannst þér erfitt að skrifa um
þetta efni?
„Nei, það lá mér á hjarta og þess
vegna var ekki erfitt að skrifa um
það.“
Boðberi sannleikans
Þarna eru afar áhugaverðir tví-
burar, unglingar sem eru eins og úr
annarri veröld. Fannst þér gaman
að skapa þá?
„Já, það fannst mér. Þeir urðu
að vera með því þeir skemmtu mér
svo við skrifin. Ætli ég hafi ekki lært
það á lestri finnskra skáldsagna
að það sé í lagi að tefla fram svona
furðukarakterum. Þessir unglings
tvíburar, sem gleymst hafa á sveita
bæ, eru bestu skinn en samt aðal
lega til trafala.“
Í þessu nokkuð myrka umhverfi
sögunnar er maður ekki alveg viss
um hvort það stafar ógn af þeim
eða hvort þeir eru bara sérkennilega
skrýtnir og fyndnir.
„Þeir eru sérkennilega skrýtnir
og barnalegir og þótt þeir vilji eng
um illt hugsa þeir ekki alltaf út í af
leiðingar gjörða sinna. Ætli það yrði
ekki sagt um þá í minningargrein
að þeir hefðu ekki bundið bagga
sína sömu hnútum og samferða
mennirnir. Það er mikið tekið þegar
skrítimennum er lýst.“
Ein persóna bókarinnar er lítil
stúlka er með Asperger. Er sérstök
ástæða fyrir því?
„Bergdís varð að vera í sögunni.
Börn með Asperger tala í staðreynd
um og það fannst mér merkileg
ur eiginleiki sem þjónaði sögunni
minni. Þessi sex ára gamla stúlka,
Bergdís, fékk því strax hlutverk í
bókinni sem boðberi sannleikans.
Góð vinkona mín á son sem er með
Aspergerheilkenni. Hún las hand
ritið yfir fyrir mig og gaf mér góð
ráð.“
Mín skoðun er sú að þetta sé afar
góð skáldsaga sem fylgir manni
eftir lesturinn. Ertu sjálf ánægð með
hana?
„Takk fyrir það! Já, ég er ánægð
með hana. Svona átti hún að verða.“ n
„Þessi sex ára
gamla stúlka,
Bergdís, fékk því strax
hlutverk í bókinni sem
boðberi sannleikans.
ar gengur einfaldlega ekki upp, þótt
lausnin komi á óvart. Höfundurinn
hefur örugglega ekki ætlað sér að
skrifa djúpvitra glæpasögu, en þarna
hefði samt þurft að gera mun betur.
Sagan er í hrottalegri kantinum.
Höfundur veltir sér svo mjög upp
úr nákvæmum lýsingum á ofbeldis
verkum að hætt er við að einhverj
um lesendum ofbjóði og missi áhug
ann. Annars er hér flest samkvæmt
formúlunni, aðalpersónan, Risk,
glímir við erfiðleika í einkalífi og
samband hans við son sinn er stirt.
Hversu oft hafa glæpasagnalesend
ur svo ekki lesið glæpasögu þar
sem morðingi fangar barn lögreglu
mannsins? Hér er enn ein.
Þessi tilþrifalitla bók er rúmar
500 síður og alltof löng. Það vekur
furðu að hún skuli vera verðlauna
bók. n
Tilþrifalítil glæpasaga
Stefan Ahnhem mynd Thron UllBerg
Ó
færð hlaut um helgina Prix
Europaverðlaunin sem
besta leikna sjónvarpsþátta
röðin, en 26 þáttaraðir voru
tilnefndar í flokknum.
Prix Europaverðlaunin, sem
hafa verið veitt frá árinu 1987, eru
sameiginlegt verkefni Sambands
evrópskra útvarpsstöðva, Evrópu
sambandsins og Evrópuráðsins.
„Þessi framúrskarandi þátta
röð sem byggir á einstakri karl
persónu og stórkostlegum leikhóp
á sér stað í áhrifamiklu landslagi í
miðri baráttu við nátt
úruöflin,“ segir meðal
annars í umsögn
dómnefndarinnar. Þá
er leikstjórn, mynda
töku og fram
leiðsluvinnunni
hrósað í hástert.
Það voru þó
fleiri Íslendingar
sem tengdust
þáttum sem voru
verðlaunaðir á hátíð
inni, því sænski fréttaskýr
ingarþátturinn Oppdrag
Granskning var verðlaun
aður fyrir umfjöllun sína
um Panamaskjölin. Einn
mikilvægasti hluti þáttar
ins var hið víðfræga við
tal þáttastjórnandans við
Sigmund Davíð Gunnlaugs
son, þáverandi forsætisráð
herra, en í kjölfar viðtalsins
neyddist Sigmundur til að
segja af sér embætti. n
kristjan@dv.is
Ófærð og Sigmundur bestir í Evrópu
Panama-þáttur Oppdrag Granskning verðlaunaður