Fréttablaðið - 12.05.2017, Page 2
Veður
Áfram hvöss norðaustanátt,
stormur og hvassir vindstrengir
undir Eyjafjöllum og í Öræfum, en
annars hægari vindur. Sums staðar
dálítil él fyrir norðan, en þurrt að
mestu vestanlands. Talsverð eða
mikil rigning eða slydda austan til
á landinu upp úr hádegi, einkum á
Austfjörðum og á Suðausturlandi
austan Öræfa. sjá síðu 26
Leikur bæjarlistir sínar
Margrét Örnólfsdóttir er heiðurslistamaður Kópavogs í ár og Sigtryggur Baldursson bæjarlistamaður. Tilkynnt var um valið á þeim í gær. Eins og
sjá má var Sigtryggur afar kátur með þennan heiður og lék á svokallaðar parabólur fyrir utan Gerðarsafn. Fréttablaðið/anton brink
PÁSKATILBOÐ
EUROVISIONTILBOÐ
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
• 4 brennarar
• Brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveiking í öllum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrað lok
• Postulínsemaleruð efri grind
• Hitamælir
• Grillflötur 65 x 44 cm
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
• Hér er aflið í lagi!
• Afl 12 KW
Frá Þýskalandi
Skoði
ð nýja
vefve
rslun
www
.grillb
udin.i
s
79.900
Verð áður 89.900
Niðurfellanleg
hliðarborð
Opið virka daga 11-18
Laugardag 11-16 Grillbúðin
Andlát
Jóhanna
Kristjónsdóttir
Jóhanna Kristjónsdóttir, rithöf-
undur og þýðandi, lést í fyrrinótt
á heimili sínu eftir langvarandi
erfið veikindi.
Jóhanna, sem fæddist árið 1940,
fór snemma að fást við skriftir og
gerðist blaðamaður á Morgun-
blaðinu. Hún vann að ýmsum
félagsmálum og var fyrsti for-
maður Félags einstæðra foreldra.
Þegar Jóhanna lét af störfum
á Morgunblaðinu 1995 hóf
hún arabískunám í Sýrlandi,
Egyptalandi og Jemen. Árið 2005
stofnaði hún Fatímusjóðinn sem
í fyrstu beitti sér fyrir menntun
stúlkna í Jemen og síðan fyrir
margvíslegri neyðaraðstoð í Afríku
og Miðausturlöndum.
Jóhanna lætur eftir sig fjögur
uppkomin börn, sem og barna-
börn og barnabarnabörn.
Bílar Mikill fjöldi bíla er nú við
bílastæði og í gámum hjá stærstu
flutningafyrirtækjum landsins. Allt
að mánaðarbið er eftir bílum sem
fara í forskráningu hjá Samgöngu-
stofu.
„Forskráningar hjá Samgöngu-
stofu hafa gengið ótrúlega hægt og
hafa valdið okkur hjá bílaumboð-
unum og þeim sem eru að flytja inn
bíla gríðarlegum töfum. Það hefur
valdið því að í sumum tilvikum er
forskráning bíla sem jafnan hefur
tekið tvo daga að taka allt að fjórum
vikum. Þetta er þó misjafnt eftir bíl-
tegundum,“ segir Jón Trausti Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Öskju og
formaður Bílgreinasambandsins.
„Það eru nokkrir þættir sem skýra
þetta, í fyrsta lagi er mikill innflutn-
ingur í apríl og maí vegna bílaleigu-
bíla. Einnig voru óvenju margir frí-
dagar í apríl og maí sem hægðu á
öllu. Samgöngustofa er á fjárlögum
og hefur ekki náð að bæta við sig
mannskap í takti við þessar auknu
skráningar og umsýslu.“
„Svo það sem gerist í ofanálag er
að það myndast ákveðinn tappi
hjá flutningafyrirtækjum, þau hafa
ekki pláss fyrir bílana sem safnast
upp út af þessu og þá er verið að
stafla bílum upp í gámum. Þetta er
mjög vond staða fyrir mjög marga.
Þetta hefur gríðarleg áhrif á bílaum-
boðin og bílaleigur og viðskiptavinir
eru ekki sáttir við þennan tíma sem
þetta tekur,“ segir Jón Trausti.
Hann segir óskiljanlegt að ekki sé
brugðist betur við hjá Samgöngu-
stofu eða samgönguráðuneytinu.
„Við höfum rætt við ráðherra og
höfum bent á leiðir til að flýta fyrir
þannig að skráningum verði komið
meira í hendur umboðanna eins og
er til dæmis með tollamálin.
Undanfarna 18 mánuði hafa verið
töluverð samskipti við Samgöngu-
stofu en þeir skýla sér alltaf á bak við
það að þeir hafi ekki fjárheimildir til
að takast á við þessi auknu verkefni
og þetta er að kosta þessi fyrirtæki
fullt af peningum.
Samfélagslegur kostnaður er mun
hærri en sparnaðurinn fyrir ríkið.
Við erum mjög ósátt með hvernig
að þessum málum er staðið,“ segir
Jón Trausti. Hann segir starfsmenn
Samgöngustofu vera að gera sitt
besta en ljóst sé að þörf sé á aukinni
fjárveitingu í þennan málaflokk.
saeunn@frettabladid.is
Allt að mánaðarbið
eftir nýjum bílum
Langt skráningarferli, óvenjumargir frídagar og árstíðabundin sala til bílaleiga
veldur því að mikill fjöldi bíla situr nú fastur hjá flutningafyrirtækjum landsins.
Fyrirtækin hafa brugðið á það ráð að stafla bílum upp í gámum.
að sögn Jón Þórs hafa flutningafyrirtæki tekið upp á því að stafla bílum upp í
gámum vegna skorts á plássi. Fréttablaðið/GVa
Forskráningar hjá
Samgöngustofu hafa
gengið ótrúlega hægt og hafa
valdið okkur hjá bílaumboð-
unum og þeim
sem eru að
flytja inn bíla
gríðarlegum
töfum.
Jón Trausti Ólafs-
son, framkvæmda-
stjóri bílaumboðsins Öskju
1 2 . m a í 2 0 1 7 F Ö s T u D a G u r2 F r é T T i r ∙ F r é T T a B l a ð i ð
EFnahaGsmál Á næstunni er ekki
útlit fyrir að tryggingagjald verði
lækkað, þrátt fyrir að atvinnuleysi
hafi minnkað verulega og verið
einungis 1,7 prósent í mars, sam-
kvæmt mælingum Hagstofunnar.
„Nei, við höfum boðað það að
við munum taka það til skoðunar
síðar á kjörtímabilinu en það er
ekki akkúrat núna. Það er fleira
sem fellur þarna undir. Til dæmis
almannatryggingaframlag og þar
hafa útgjöldin aukist,“ segir Bene-
dikt Jóhannesson fjármálaráð-
herra.
Tryggingagjald er samkvæmt
Ríkisskattstjóra sérstakt gjald sem
launagreiðendum ber að greiða af
heildarlaunum launamanna sinna
á tekjuári og eftir atvikum af eigin
reiknuðu endurgjaldi. Trygginga-
gjaldið er nú 6,85 prósent og lækk-
aði um 0,5 prósent á síðastliðnu
ári. – sg
Trygginga-
gjaldið ekki
lækkað í bráð
benedikt Jóhannesson segir að
tryggingagjaldið verði tekið til skoð-
unar síðar á kjörtímabilinu.
Fréttablaðið/Vilhelm
Við munum taka
það til skoðunar
síðar á kjörtímabilinu …
Benedikt Jóhannesson
fjármálaráðherra
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-5
7
D
4
1
D
1
6
-5
6
9
8
1
D
1
6
-5
5
5
C
1
D
1
6
-5
4
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K