Fréttablaðið - 12.05.2017, Blaðsíða 26
Borðstofustóll
II úr gegnheilli
hnotu með
messingteinum.
Hjónin Ágústa
Magnús-
dóttir og Gústav
Jóhannsson
eru eigendur
AGUSTAV. Fyrir
framan þau má
sjá hægindastól
úr eik, borð-
stofustól úr eik
og sófaborð úr
tekki. MYND/GVA
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Hönnunarfyrirtækið AGUSTAV sýndi nokkrar nýjar vörur á Hönnunar-
mars fyrr á árinu, þar á meðal nýja
borðstofustóla sem þau bættu
við vörulínuna sína. Annar þeirra
er úr eik en hinn úr hnotu en
hjónin Ágústa Magnúsdóttir og
Gústav Jóhannsson, sem standa að
AGUSTAV, segjast hafa viljað leggja
áherslu á fínar línur sem andstæðu
við það þunga og mikla sem er í
viðnum sjálfum. „Stólarnir eru úr
gegnheilum viði og handformaðir
eftir hefðum gömlu meistaranna.
Við sérsmíðum samsetningarnar
í stólana en þeir eru settir saman
með hnotu- og eikarpinnum sem
við leyfum að skína í gegn á hlið-
unum. Því eru engar skrúfur eða
naglar í þessum stólum. Við rekum
svo messingtein í gegnum hnotu-
stólinn sem fer í gegnum setuna og
tengir saman fram- og afturlöpp
stólsins.“
Slógu loks til
Einnig sýndu
þau nýtt kringl-
ótt sófaborð úr tekki á stálfótum.
„Borðið er úr þykku, gegnheilu
tekki sem við keyptum úr gömlu
verkstæði. Við erum búin að
vera að væflast með þetta tekk í
langan tíma og varla tímt að nota
það en slógum til af þessu tilefni
og skelltum í eitt massíft, þykkt
og þungt sófaborð. Smá dæld er
fræsuð ofan í borðið frá miðju til að
ná dýptinni fram og leyfa viðnum
að njóta sín.“
Fyrir sýninguna ákváðu þau
einnig að gera nýja kolla og eru
nú komin með þrjá mismunandi
kolla í vörulínu sína. „Í haust
komum við með nýjan, handform-
aðan koll þar sem setan er frjálsleg
og lifandi. Fyrir Hönnunarmars
tókum við annan vinkil á þetta
og komum annars vegar með koll
í stíl við sófaborðið, úr þykku,
gegnheilu tekki, og hins vegar úr
gegnheilli hnotu með leðursetu
ofan á.
Einnig tókum við hæginda-
stólinn okkar sem við frumsýndum
í fyrra á annað stig og gerðum nýja
hábaksútgáfu úr leðri af honum og
höfðum skemil með. Við sýndum
líka útgáfu af hægindastólnum
okkar úr eik auk þess að sýna
annað sófaborð, borðstofuborð og
nýju hillurnar okkar.“
Næg verkefni fram undan
Næsta stóra sýning sem þau taka
þátt í er stórsýningin Amazing
Home Show sem hefst í Laugar-
dalshöll í lok næstu viku. „Við
ætlum að öllum líkindum að
sýna meira og minna allar vör-
unar okkar þar. Á Hönnunarmars
höfum við verið upptekin af því að
sýna nýjar vörur en á sýningunni
í Laugardalshöll erum við laus við
slíkar takmarkanir og getum sýnt
alla flóruna; allt frá bókasnögunum
til sófa og hægindastóla, borðstofu-
borðs og barstóla.“
Auk framleiðslu sinnar eru þau
einnig að vinna nokkur stærri verk
með innanhússarkitektum og
undirbúa flutning verkstæðisins
í næsta mánuði. „Svo erum við að
þreifa fyrir okkur með að finna
varanlega sýningaraðstöðu og
vonandi kemur eitthvað út úr þeim
pælingum á árinu. Við ætlum einn-
ig að taka sumarfrí yfir hásumarið
en það höfum við ekki gert síðan
við stofnuðum fyrirtækið fyrir
fimm árum þannig að það verður
eflaust kærkomið frí.“
Hönnun AGUSTAV má skoða
á www.agustav.is, á Facebook og
Instagram (@agustavfurniture).
Full af orku fyrir
framhaldið
Borðstofustóll II úr hnotu með messingteinum og borðstofustóll I úr eik.
Kollur úr tekki með messinghúðuðu stelli og kollur úr
hnotu með leðursetu og stálstelli.
Nýir borðstofustólar, kollar og sófa-
borð voru meðal nýrra vara sem
AGUSTAV sýndi á Hönnunarmars
fyrir nokkrum vikum. Næsta stóra
sýning er stórsýningin Amazing
Home Show í
Laugardalshöll í lok
næstu viku.
Fa
rv
i.i
s
//
0
51
7
KRINGLUNNI | 588 2300
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . m A í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-9
8
0
4
1
D
1
6
-9
6
C
8
1
D
1
6
-9
5
8
C
1
D
1
6
-9
4
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K