Fréttablaðið - 12.05.2017, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 12.05.2017, Blaðsíða 26
Borðstofustóll II úr gegnheilli hnotu með messingteinum. Hjónin Ágústa Magnús- dóttir og Gústav Jóhannsson eru eigendur AGUSTAV. Fyrir framan þau má sjá hægindastól úr eik, borð- stofustól úr eik og sófaborð úr tekki. MYND/GVA Starri Freyr Jónsson starri@365.is Hönnunarfyrirtækið AGUSTAV sýndi nokkrar nýjar vörur á Hönnunar- mars fyrr á árinu, þar á meðal nýja borðstofustóla sem þau bættu við vörulínuna sína. Annar þeirra er úr eik en hinn úr hnotu en hjónin Ágústa Magnúsdóttir og Gústav Jóhannsson, sem standa að AGUSTAV, segjast hafa viljað leggja áherslu á fínar línur sem andstæðu við það þunga og mikla sem er í viðnum sjálfum. „Stólarnir eru úr gegnheilum viði og handformaðir eftir hefðum gömlu meistaranna. Við sérsmíðum samsetningarnar í stólana en þeir eru settir saman með hnotu- og eikarpinnum sem við leyfum að skína í gegn á hlið- unum. Því eru engar skrúfur eða naglar í þessum stólum. Við rekum svo messingtein í gegnum hnotu- stólinn sem fer í gegnum setuna og tengir saman fram- og afturlöpp stólsins.“ Slógu loks til Einnig sýndu þau nýtt kringl- ótt sófaborð úr tekki á stálfótum. „Borðið er úr þykku, gegnheilu tekki sem við keyptum úr gömlu verkstæði. Við erum búin að vera að væflast með þetta tekk í langan tíma og varla tímt að nota það en slógum til af þessu tilefni og skelltum í eitt massíft, þykkt og þungt sófaborð. Smá dæld er fræsuð ofan í borðið frá miðju til að ná dýptinni fram og leyfa viðnum að njóta sín.“ Fyrir sýninguna ákváðu þau einnig að gera nýja kolla og eru nú komin með þrjá mismunandi kolla í vörulínu sína. „Í haust komum við með nýjan, handform- aðan koll þar sem setan er frjálsleg og lifandi. Fyrir Hönnunarmars tókum við annan vinkil á þetta og komum annars vegar með koll í stíl við sófaborðið, úr þykku, gegnheilu tekki, og hins vegar úr gegnheilli hnotu með leðursetu ofan á. Einnig tókum við hæginda- stólinn okkar sem við frumsýndum í fyrra á annað stig og gerðum nýja hábaksútgáfu úr leðri af honum og höfðum skemil með. Við sýndum líka útgáfu af hægindastólnum okkar úr eik auk þess að sýna annað sófaborð, borðstofuborð og nýju hillurnar okkar.“ Næg verkefni fram undan Næsta stóra sýning sem þau taka þátt í er stórsýningin Amazing Home Show sem hefst í Laugar- dalshöll í lok næstu viku. „Við ætlum að öllum líkindum að sýna meira og minna allar vör- unar okkar þar. Á Hönnunarmars höfum við verið upptekin af því að sýna nýjar vörur en á sýningunni í Laugardalshöll erum við laus við slíkar takmarkanir og getum sýnt alla flóruna; allt frá bókasnögunum til sófa og hægindastóla, borðstofu- borðs og barstóla.“ Auk framleiðslu sinnar eru þau einnig að vinna nokkur stærri verk með innanhússarkitektum og undirbúa flutning verkstæðisins í næsta mánuði. „Svo erum við að þreifa fyrir okkur með að finna varanlega sýningaraðstöðu og vonandi kemur eitthvað út úr þeim pælingum á árinu. Við ætlum einn- ig að taka sumarfrí yfir hásumarið en það höfum við ekki gert síðan við stofnuðum fyrirtækið fyrir fimm árum þannig að það verður eflaust kærkomið frí.“ Hönnun AGUSTAV má skoða á www.agustav.is, á Facebook og Instagram (@agustavfurniture). Full af orku fyrir framhaldið Borðstofustóll II úr hnotu með messingteinum og borðstofustóll I úr eik. Kollur úr tekki með messinghúðuðu stelli og kollur úr hnotu með leðursetu og stálstelli. Nýir borðstofustólar, kollar og sófa- borð voru meðal nýrra vara sem AGUSTAV sýndi á Hönnunarmars fyrir nokkrum vikum. Næsta stóra sýning er stórsýningin Amazing Home Show í Laugardalshöll í lok næstu viku. Fa rv i.i s // 0 51 7 KRINGLUNNI | 588 2300 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . m A í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 6 -9 8 0 4 1 D 1 6 -9 6 C 8 1 D 1 6 -9 5 8 C 1 D 1 6 -9 4 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 1 5 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.