Fréttablaðið - 12.05.2017, Blaðsíða 6
Áburðardreifarar
Grasið verður grænna með góðri og jafnri áburðargjöf
Model WE-B
Rafhlöðuknúinn kastdreifari
Vinnslubreidd allt að 2,5 m
Hentugur fyrir minni garða
Model WE-330
Áburðardreifari
Vinnslubreidd 41 cm
Rúmtak 15 lítrar
Model WE-430
Áburðardreifari
Vinnslubreidd 43 cm
Rúmtak 20 lítrar
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Lítil klifurmús
Krakkar á leikskólanum Urðarhól í Kópavogi í gær vígðu þennan
gríðarlega fína klifurvegg. Mikilvægt er að einbeita sér þegar maður
klífur slíkan vegg og er ekki að sjá að einbeitingu skorti hjá þessum
unga klifrara. Fréttablaðið/anton brink
Atvinnulíf Þriðja árið í röð er Sýslu-
maðurinn á höfuðborgarsvæðinu í
neðsta sæti á lista yfir Stofnun árs-
ins 2017. Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu hefur á þessum sömu árum
alltaf verið í næstneðsta sæti. Báðar
stofnanirnar eru á lista yfir fyrirtæki
með 50 starfsmenn eða meira.
Stofnun ársins 2017 var valin
með þeim hætti að spurningalisti
var lagður fyrir starfsfólk um 200
stofnana þar sem það var innt eftir
mati á innra starfsumhverfi stofn-
unar sinnar. Í valinu er spurt út í
þætti er varða stjórnun, starfsanda,
launakjör, vinnuskilyrði, sveigjan-
leika í vinnu, sjálfstæði í starfi,
ímynd stofnunar, ánægju og stolt
og jafnrétti.
Stofnanir ársins eru þrjár: Reykja-
lundur er sigurvegari í flokki stofn-
ana með 50 starfsmenn eða fleiri.
Menntaskólinn á Tröllaskaga er
stofnun ársins í flokki með starfs-
menn á bilinu 20-49 talsins. Í flokki
stofnana þar sem starfsmenn eru
færri en 20 bar Persónuvernd sigur
úr býtum.
Ekki náðist tal af sýslumanninum
í Reykjavík, en Sigríður Björk Guð-
jónsdóttir, lögreglustjóri á höfuð-
borgarsvæðinu, segir laun helsta
óánægjuþáttinn hjá stofnuninni.
„Ef þú tekur það út og berð það
saman við önnur lögreglulið þá
sérðu að það er mun meiri óánægja
með laun hjá okkur. Það dregur
okkur niður,“ segir Sigríður Björk.
Hún segir hins vegar hægt að vinna
í mjög mörgum þáttum til að bæta
aðstæður starfsmanna lögreglunn-
ar. „Við ætlum að fara í mælingar,
annaðhvort á mánaðar fresti eða
tveggja mánaða fresti,“ segir Sigríð-
ur og leggur áherslu á að það verði
unnið betur með mannauðsþáttinn.
Hún segir líka unnið í því að styrkja
stjórnendur enda hafi komið fram
óánægja með stjórnendur, ekki bara
með yfirstjórn heldur líka milli-
stjórnendur.
Utanríkisráðuneytið kom verst
allra ráðuneyta út úr mælingunni
fyrir ári. Ráðuneytið fer hins vegar
núna úr sæti 72 upp í sæti 59 á lista
yfir stofnanir með 50 starfsmenn
eða fleiri. Lilja Alfreðsdóttir, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, segir að
þegar niðurstöðurnar voru birtar
í fyrra hafi strax verið settur upp
hópur innan ráðuneytisins. „Þeir
skiluðu nokkrum niðurstöðum,“
segir Lilja og bætir við að ein þeirra
hafi verið sú að það hafi skort á
gagnsæi varðandi stöðuveitingar.
„Ég brást við því með því að allir
póstar sem voru lausir voru auglýst-
ir fyrr en venjulega hefur verið gert,“
segir Lilja. Þetta hafi verið nýtt. Fólki
hafi síðan verið gert að rökstyðja af
hverju það ætti að fá þær stöður sem
það sóttist eftir.
Í mælingunni í ár kemur vel-
ferðarráðuneytið út verst allra
ráðuneyta. Það er í sæti 81 af 86
stofnunum. Eygló Harðardóttir,
fyrrverandi félagsmálaráðherra,
skýrir þessa niðurstöðu með því
að upp hafi komið mygla í húsnæði
ráðuneytisins. Það hafi því þurft
að flytja starfsemi ráðuneytisins úr
Hafnarhúsinu í mun þrengra hús-
næði. „Þetta var mjög mikið álag,“
segir Eygló og bætir við að það sé
mikilvægt að búa vel að starfsfólk-
inu og hún vonist til þess að hægt
verði að finna varanlegt húsnæði.
jonhakon@frettabladid.is
Myglan eyðilagði
starfsmóralinn í
velferðarráðuneytinu
Velferðarráðuneytið kemur verst allra ráðuneyta út í mælingu á Stofnun ársins.
Ástandið er betra í utanríkisráðuneytinu. Sýslumaðurinn á höfuðborgar
svæðinu og lögreglan eru á botninum. Laun eru sögð stór orsakaþáttur.
Sigríður björk segir starfsmenn lögreglunnar óánægða með kaup og kjör. En
ýmislegt sé hægt að gera til að bæta starfsaðstöðu. Fréttablaðið/anton
tíu efstu stofnanirnar
1. Reykjalundur
2. Ríkisskattstjóri
3. Fjölbrautaskóli Suðurnesja
4. ÁTVR
5. Heilsustofnun NLFÍ
6. Lífeyrissjóður starfsmanna
ríkisins
7. Skógrækt ríkisins
8. Fjölbrautaskólinn við Ármúla
9. Lyfjastofnun
10. Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
tíu neðstu stofnanirnar
1. Hrafnista
2. Landbúnaðarháskóli Íslands
3. Útlendingastofnun
4. Vinnueftirlit ríkisins
5. Velferðarráðuneytið
6. Landspítali
7. Lögreglan á Suðurnesjum
8. Fjölbrautaskóli Vesturlands
9. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
10. Sýslumaðurinn á höfuðborgar-
svæðinu
Það er mun meiri
óánægja með laun
hjá okkur. Það dregur okkur
niður.
Sigríður Björk
Guðjónsdóttir, lög-
reglusjóri á höfuð-
borgarsvæðinu
StjórnSýSlA Fyrirtækinu Esju Gæða-
fæði var óheimilt að flytja inn ríf-
lega 1,6 tonn af grænlensku hrein-
dýrakjöti í nóvember síðastliðnum.
Esja Gæðafæði kærði úrskurð Mat-
vælastofnunar til atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytisins en
úrskurðurinn féll á miðvikudag,
162 dögum eftir að Matvælastofnun
hafnaði innflutningnum. Ráðuneyt-
ið hefur ákveðið að staðfesta úrskurð
Matvælastofnunar. Esju Gæðafæði
ber að farga kjötinu umsvifalaust í
ljósi þess að meira en 60 dagar eru
liðnir síðan kjötið var flutt inn til
landsins.
Ástæða höfnunarinnar er að vör-
urnar voru ekki merktar með sam-
þykkisnúmeri og uppruni kjötsins
þess vegna óljós. – snæ
Farga 1,6 tonnum af hreindýrakjöti
SKAttur Af þeim 34 málum sem
tekin hafa verið til formlegrar rann-
sóknar hjá skattrannsóknarstjóra
vegna gruns um skattalagabrot sem
tengjast Panamaskjölunum hefur
rannsókn verið lokið í fimm málum.
Í skriflegu svari skattrannsóknar-
stjóra til Fréttablaðsins kemur fram
að tveimur málanna hafi verið vísað
til héraðssaksóknara auk þess sem
krafa hafi verið sett fram um sekt
hjá yfirskattanefnd í þriðja málinu.
Rannsókn í sjö málum er á lokastigi.
Rannsókn á átta málum hefur
verið felld niður, meðal annars
vegna þess að grunur hefur ekki
reynst á rökum reistur eða vegna
þess að ekki hefur reynst unnt að
upplýsa mál með fullnægjandi
hætti. Rannsóknir í 14 málum
standa yfir.
Að sögn Bryndísar Kristjáns-
dóttur skattrannsóknarstjóra er
fyrirséð að fleiri mál verði tekin til
rannsóknar á næstu mánuðum þar
sem grunur liggur nú fyrir um brot.
Vanframtalinn skattstofn nemur
frá tugum milljóna króna til
hundraða milljóna króna, að því er
Bryndís greinir frá. – ibs
Fleiri Panamamál rannsökuð
1 2 . m A í 2 0 1 7 f Ö S t u D A G u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t A B l A ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-7
F
5
4
1
D
1
6
-7
E
1
8
1
D
1
6
-7
C
D
C
1
D
1
6
-7
B
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K