Fréttablaðið - 12.05.2017, Blaðsíða 36
Á eigin fótum er fræðandi og fjörug Bunraku-brúðusýning ætluð börnum á aldrinum
tveggja til sex ára og fjölskyldum
þeirra. Sýningin er eftir leikhópinn
Miðnætti í samstarfi við Lost Watch
Theatre.
Á eigin fótum fjallar um Ninnu,
sex ára uppátækjasama stelpu sem
túlkuð er af Bunraku-brúðu. Ninna,
sem býr í Reykjavík á millistríðsár-
unum, er send ein í afskekkta sveit
sumarlangt. Nýju heimkynnin eru
henni framandi og umhverfið alger
andstæða þess sem hún þekkir.
Erfiðar aðstæður, ofsaveður og ein-
manaleiki reyna á Ninnu, sem óttast
mest að sjá foreldra sína aldrei aftur,
en með hugrekki eignast hún vini og
lærir að standa á eigin fótum.
Tónlist leikverksins er frum-
samin og verður í lifandi flutningi.
Sýningin er 40 mínútur en við bætist
leikstund þar sem börnunum gefst
tækifæri á að hitta brúðuna, leikara
og skoða leikmyndina.
Nánari upplýsingar á www.tjarnar-
bio.is
Brúðusýning í Tjarnarbíói
Heita sumardaga er skemmti-leg tilbreyting að borða morgunverðinn í íspinna-
formi. Hægt er að þeyta saman
hvers konar ávexti við jógúrt og
jafnvel bæta múslíi og rúsínum út í.
Múslíklaki með
bláberjum
125 g grísk jógúrt
125 g bláber
1 dl ávaxtasafi
1-2 tsk. hunang
1 msk. múslí
Þeytið jógúrt, ber og hunang
saman í blandara. Hellið í skál
og hrærið svo múslíi saman við
blönduna og hellið í íspinnamót.
Frystið í nokkrar klukkustundir.
Einnig má þeyta múslíið með í
blandaranum ef það þykir gróft í
íspinnann.
Lagskipta
pinna er
einnig gaman
að prófa.
En þá er
jógúrtin
og hun-
angið hrært
saman sér
og berin og
ávaxtasafinn sér. Fyrst eru íspinna-
mótin fyllt að 1/3 með berjablöndu
þá jógúrt og svo aftur berjablöndu.
Ef blandan er þunn gæti þurft að
láta boxin inn í frysti milli laga í 15
mínútur.
Svellkaldur
morgunverður
Sumarið er rétti tíminn til að kynna börn og unglinga fyrir léttum göngum. Gönguferðir
þurfa ekki að vera langar og erfiðar
og sjaldnast þarf að leita langt eftir
fallegu umhverfi eða hóflega stóru
fjalli eða felli. Fjallabók barnanna,
eftir Sigrúnu Huld Þorgrímsdóttur,
kom út fyrir nokkrum árum og
er góður upphafspunktur fyrir
þá sem vilja stíga sín fyrstu skref
í göngum og fjallaferðum með
börnunum sínum.
Í bókinni má finna leiðarlýs-
ingar á 20 gönguleiðum í nágrenni
Reykjavíkur sem henta börnum á
aldrinum 6-16 ára. Meðal leiða eru
óhefðbundnar leiðir upp á Esjuna,
farið er út á Reykjanesskaga og upp
á Hellis- og Mosfellsheiði.
Höfundur bókarinnar, Sigrún
Huld, á sjálf fjögur börn og hefur
mikinn áhuga á útivist. Sigrún lýsir
vel hverri gönguleið á persónuleg-
an hátt en hún gekk allar leiðirnar
með 22 börnum í heildina sumrin
2008 og 2009.
Auk hagnýtra upplýsinga um
hverja leið getur bókareigandi
einnig skrifað inn eigin ferðasögur
á auðar síður sem fylgja hverri
gönguleið. Bókin inniheldur líka
ýmis góð ráð varðandi það hvernig
hægt er að fá börn til þess að hafa
gaman af útivist.
Göngur yfir
sumarið
Sumarið er góður tími fyrir göngur
með börnum.
MYND/FERÐAFÉLAG BARNANNA
Sumarnámskeið
Kjörin leið til að kynna sér dansnám hjá JSB
Viltu gerast vinur JSB?
Danslistarskóli JSB er á facebook
Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili
að Frístundakorti Reykjavíkurborgar
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Jazz, klassískur
ballett og
nútímadans
Krefjandi dansnámskeið
fyrir framhaldsnemendur
14 ára og eldri.
Tímabil: 9. - 18. ágúst.
Tilvalin til að koma sér af
stað eftir sumarfrí.
Jazzballett fyrir
6-8 ára, 9-11 ára
og 12-14 ára
3ja vikna námskeið, kennt
2x í viku á mánudögum
og miðvikudögum.
Tímabil: 29. maí - 14. júní
Verð: 12.500 kr.
Dans- og leikja-
námskeið fyrir 3-5 ára
Dans, leik- og sköpunargleði í fyrirrúmi.
5 vikna námskeið 1x í viku, kennt á
þriðjudögum eða fimmtudögum.
Tímabil: 30. maí - 27. júní. Verð: 10.500 kr.
Nám og kennsla
Danslistarskóli JSB er viðurkenndur af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem listdansskóli á grunn- og
framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar um nám við skólann er að finna á www.jsb.is undir Danslistarskóli JSB.
Kennslustaðir: Danslistarskóli JSB í Reykjavík, Lágmúla 9 og Laugardalshöll.
Skráning hafin í síma 5813730 og á www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
an
n
at
en
g
sl
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ö
n
n
u
n
8 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . m a í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
6
-7
5
7
4
1
D
1
6
-7
4
3
8
1
D
1
6
-7
2
F
C
1
D
1
6
-7
1
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K