Fréttablaðið - 12.05.2017, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 12.05.2017, Blaðsíða 17
Bergur Ebbi Í dag Það er verðugt verkefni að forðast það að vera hrokafullur, líklega er það hið eigin-lega ævistarf. Hroki er margslunginn, og líklegast hef ég oft gerst sekur um hann sjálfur. Hroki er að halda að maður viti eitthvað, þegar maður veit í raun ósköp fátt, að halda að maður viti meira en aðrir eða geti meira en aðrir. Hroki er löstur. Það er dyggðugt að efast. Það er meira að segja kennt í trúarbrögðum. Að efast er að trúa. Til að skilja náð Guðs þarf að efast um hana, eða þannig hefur fólk sem ég ég lít upp til túlkað boðskapinn. Þetta er líka í vísindunum. Sókrates vissi meira en allir því hann vissi að hann vissi ósköp fátt. En eftir því sem ég hugsa meira um það þá held ég – og nú reyni ég að setja þetta fram eins laust við hroka og mögulegt er – að hroki sé jafnvel enn margslungnari en það. Getur einnig verið hrokafullt að þykjast aldrei skilja neitt? Að yppa sífellt öxlum og fela hroka sinn með við- kvæðum eins og „þetta er skrítið“, „þetta er mjög random“, „óskiljanlegt“. Er ekki ósköp þægi- legt og stundum nánast hrokafullt að geta ekki byggt upp neinskonar vissu um heiminn sem maður býr í? Vitum við ekki miklu meira en við þykjumst vita? Er hægt að skilja gasárásir? En hvers vegna ættum við að þykjast skilja minna en við gerum? Líklega samræmist það ekki grunn- gildum okkar um virðingu og nærgætni að skilja þær sögur sem okkur berast til eyrna. Hversu ónærgætið væri það að skrifa pistil um borgara- stríðið í Sýrlandi og segjast skilja það vel að börn verði fyrir gasárásum? Það myndi hljóma eins og maður væri nánast að kvitta fyrir verknaðinn, að samþykkja hann eða góðkenna. Upp að vissu marki boðar menning okkar að það sé uppgjöf og vanvirðing að skilja hræðilega hluti. En kannski er, þrátt fyrir allt, líka hægt að skilja hræðilega hluti. Heimurinn fylgdist agndofa með hryðjuverka- árásunum 11. september 2011. Enginn skildi neitt þá. Og það er kannski ekki skrítið. Sjónarspilið var hryllilegt, myndmálið stærra en nokkur Holly- wood mynd hafði skapað. Viðbrögðin voru sjokk og áfall – en í stærra samhenginu og þegar tími hefur liðið frá atburðinum þá er varla svo erfitt að skilja heildarmyndina. Vitum við ekki öll að sak- laust fólk er drepið í þúsundavís á ári hverju vegna öfgafullra hugsjóna um trúarleg og hernaðarleg yfirráð? Og varla er erfitt að ímynda sér að World Trade Center byggingarnar hafi orðið fyrir valinu, þar sem sum af stærstu fjármálafyrirtækjum Banda- ríkjanna höfðu aðsetur. Aðeins átta árum fyrr, árið 1993, hafði sendibíll með 606 kíló af sprengi- efni verið sprengdur í bílageymslu nyrðri turns- ins. Yfir þúsund manns særðust í árásinni. Hryðju- verkasamtök að nafni al-Qaeda báru ábyrgð á sprengingunni 1993 rétt eins og tortímingunni 2001. Og svo er það stærra samhengið, stríðsrekst- ur Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, skipting arabískra þjóða í griparéttir þar sem þeir þægu fá sérmeðferð en hinir fá takmarkaðan markað fyrir olíu sína. Það er alveg hægt að skilja 11. septem- ber. Atburðurinn er ekki gáta. Það er enginn kóði sem fólki er að yfirsjást. Það þarf hvorki háskóla- gráðu né þúsund manna rannsóknarteymi til að sjá stóru línurnar. Stóru línurnar Ég skil 11. september og ofbeldið sem átti sér stað þann dag – og hér koma fyrirvararnir. Það þýðir ekki að ég samþykki ofbeldið. Það þýðir ekki að ég dýrki það. Það þýðir ekki að ég hafi ekki samúð með fórnarlömbunum. Það þýðir ekki neitt af þessu. En allir þessir fyrirvarar eru nauðsynlegir því menning okkar hefur reist brú á milli þess að skilja hluti og að samþykkja þá. Lækið er tákn um bæði; samþykkt og skilning og þess vegna er hættulegt að skilja. Kannski skiljum við miklu meira en við þorum að viðurkenna. Það er synd vegna þess að það hlýtur alltaf að vera til gagns að skilja hluti – sama hversu hræðilegir þeir eru – til að koma í veg fyrir að þeir endurtaki sig. Mér finnst heimurinn ruglingslegur. Samfélags- miðlar hafa tortímt hefðbundnu upplýsinga- streymi. Jafnvel burðugir fjölmiðlar hafa varla undan að sortera falsfréttir frá staðreyndum. Fréttir af kökuskreytingarkeppnum eru bornar fram strax á eftir fréttum af limlestum börnum. Allt er orðið að kássu. Og það versta við þetta allt- saman er að ef ég reyni að skilja heiminn finnst mér hroki hellast yfir mig. En kannski er það ekki þannig. Kannski er einmitt hrokafullt að gefast upp og segja „heimurinn er fokkt“. Ég er ekki viss. En kannski er hroki 21. aldarinnar einmitt þannig. Hroki 21. aldarinnar Ég skil 11. september og ofbeldið sem átti sér stað þann dag – og hér koma fyrir- vararnir. Það þýðir ekki að ég samþykki ofbeldið. Það þýðir ekki að ég dýrki það. Það þýðir ekki að ég hafi ekki samúð með fórnarlömb- unum. Það þýðir ekki neitt af þessu. En allir þessir fyrirvarar eru nauðsynlegir því menning okkar hefur reist brú á milli þess að skilja hluti og að sam- þykkja þá. Lækið er tákn um bæði; samþykkt og skilning og þess vegna er hættulegt að skilja. FÉLAG ÍSLENSKRA HJÚKRUNARFRÆÐINGA Góð heilbrigðisþjónusta er ein forsenda þess að einstaklingar geti notið góðrar heilsu. Hjúkrun er sá þáttur heilbrigðisþjónustu á Íslandi sem nær til estra landsmanna. Hjúkrun er þekking, færni og umhyggja í þágu þjóðarinnar. Skipulagning Skyldur Stefnumótun Stjórnun Trúnaður Virðing Þjálfun Öryggi Ábyrgð Árangur Eftirlit Endurhæfing Gæði Heilsuefling Heilsugæsla Heilsuvernd Þekking Færni Umhyggja Kennsla Leiðsögn Lýðheilsa Málsvörn Mat Meðferð Menntun Nám Nýjungar Ráðgjöf Rannsóknir Samhæfing Samheldni Samhjálp Sérhæfing Skilningur Suðurlandsbraut 22 – 108 Reykjavik – Sími 540 6400 – hjukrun@hjukrun.is S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö S T u d a g u R 1 2 . m a Í 2 0 1 7 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 6 -5 C C 4 1 D 1 6 -5 B 8 8 1 D 1 6 -5 A 4 C 1 D 1 6 -5 9 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 1 1 5 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.