Fréttablaðið - 12.05.2017, Qupperneq 17
Bergur Ebbi
Í dag Það er verðugt verkefni að forðast það að vera hrokafullur, líklega er það hið eigin-lega ævistarf. Hroki er margslunginn, og
líklegast hef ég oft gerst sekur um hann sjálfur.
Hroki er að halda að maður viti eitthvað, þegar
maður veit í raun ósköp fátt, að halda að maður
viti meira en aðrir eða geti meira en aðrir. Hroki
er löstur. Það er dyggðugt að efast. Það er meira
að segja kennt í trúarbrögðum. Að efast er að
trúa. Til að skilja náð Guðs þarf að efast um hana,
eða þannig hefur fólk sem ég ég lít upp til túlkað
boðskapinn. Þetta er líka í vísindunum. Sókrates
vissi meira en allir því hann vissi að hann vissi
ósköp fátt.
En eftir því sem ég hugsa meira um það þá
held ég – og nú reyni ég að setja þetta fram eins
laust við hroka og mögulegt er – að hroki sé
jafnvel enn margslungnari en það. Getur einnig
verið hrokafullt að þykjast aldrei skilja neitt? Að
yppa sífellt öxlum og fela hroka sinn með við-
kvæðum eins og „þetta er skrítið“, „þetta er mjög
random“, „óskiljanlegt“. Er ekki ósköp þægi-
legt og stundum nánast hrokafullt að geta ekki
byggt upp neinskonar vissu um heiminn sem
maður býr í? Vitum við ekki miklu meira en við
þykjumst vita?
Er hægt að skilja gasárásir?
En hvers vegna ættum við að þykjast skilja minna
en við gerum? Líklega samræmist það ekki grunn-
gildum okkar um virðingu og nærgætni að skilja
þær sögur sem okkur berast til eyrna. Hversu
ónærgætið væri það að skrifa pistil um borgara-
stríðið í Sýrlandi og segjast skilja það vel að börn
verði fyrir gasárásum? Það myndi hljóma eins og
maður væri nánast að kvitta fyrir verknaðinn,
að samþykkja hann eða góðkenna. Upp að vissu
marki boðar menning okkar að það sé uppgjöf og
vanvirðing að skilja hræðilega hluti. En kannski
er, þrátt fyrir allt, líka hægt að skilja hræðilega
hluti.
Heimurinn fylgdist agndofa með hryðjuverka-
árásunum 11. september 2011. Enginn skildi neitt
þá. Og það er kannski ekki skrítið. Sjónarspilið
var hryllilegt, myndmálið stærra en nokkur Holly-
wood mynd hafði skapað. Viðbrögðin voru sjokk
og áfall – en í stærra samhenginu og þegar tími
hefur liðið frá atburðinum þá er varla svo erfitt að
skilja heildarmyndina. Vitum við ekki öll að sak-
laust fólk er drepið í þúsundavís á ári hverju vegna
öfgafullra hugsjóna um trúarleg og hernaðarleg
yfirráð?
Og varla er erfitt að ímynda sér að World Trade
Center byggingarnar hafi orðið fyrir valinu, þar
sem sum af stærstu fjármálafyrirtækjum Banda-
ríkjanna höfðu aðsetur. Aðeins átta árum fyrr,
árið 1993, hafði sendibíll með 606 kíló af sprengi-
efni verið sprengdur í bílageymslu nyrðri turns-
ins. Yfir þúsund manns særðust í árásinni. Hryðju-
verkasamtök að nafni al-Qaeda báru ábyrgð á
sprengingunni 1993 rétt eins og tortímingunni
2001. Og svo er það stærra samhengið, stríðsrekst-
ur Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, skipting
arabískra þjóða í griparéttir þar sem þeir þægu fá
sérmeðferð en hinir fá takmarkaðan markað fyrir
olíu sína. Það er alveg hægt að skilja 11. septem-
ber. Atburðurinn er ekki gáta. Það er enginn kóði
sem fólki er að yfirsjást. Það þarf hvorki háskóla-
gráðu né þúsund manna rannsóknarteymi til að
sjá stóru línurnar.
Stóru línurnar
Ég skil 11. september og ofbeldið sem átti sér stað
þann dag – og hér koma fyrirvararnir. Það þýðir
ekki að ég samþykki ofbeldið. Það þýðir ekki að
ég dýrki það. Það þýðir ekki að ég hafi ekki samúð
með fórnarlömbunum. Það þýðir ekki neitt af
þessu. En allir þessir fyrirvarar eru nauðsynlegir
því menning okkar hefur reist brú á milli þess að
skilja hluti og að samþykkja þá. Lækið er tákn
um bæði; samþykkt og skilning og þess vegna er
hættulegt að skilja. Kannski skiljum við miklu
meira en við þorum að viðurkenna. Það er synd
vegna þess að það hlýtur alltaf að vera til gagns að
skilja hluti – sama hversu hræðilegir þeir eru – til
að koma í veg fyrir að þeir endurtaki sig.
Mér finnst heimurinn ruglingslegur. Samfélags-
miðlar hafa tortímt hefðbundnu upplýsinga-
streymi. Jafnvel burðugir fjölmiðlar hafa varla
undan að sortera falsfréttir frá staðreyndum.
Fréttir af kökuskreytingarkeppnum eru bornar
fram strax á eftir fréttum af limlestum börnum.
Allt er orðið að kássu. Og það versta við þetta allt-
saman er að ef ég reyni að skilja heiminn finnst
mér hroki hellast yfir mig. En kannski er það ekki
þannig. Kannski er einmitt hrokafullt að gefast
upp og segja „heimurinn er fokkt“. Ég er ekki viss.
En kannski er hroki 21. aldarinnar einmitt þannig.
Hroki 21.
aldarinnar
Ég skil 11.
september
og ofbeldið
sem átti sér
stað þann
dag – og hér
koma fyrir-
vararnir. Það
þýðir ekki að
ég samþykki
ofbeldið. Það
þýðir ekki
að ég dýrki
það. Það
þýðir ekki að
ég hafi ekki
samúð með
fórnarlömb-
unum. Það
þýðir ekki
neitt af þessu.
En allir þessir
fyrirvarar eru
nauðsynlegir
því menning
okkar hefur
reist brú á
milli þess að
skilja hluti
og að sam-
þykkja þá.
Lækið er tákn
um bæði;
samþykkt og
skilning og
þess vegna er
hættulegt að
skilja.
FÉLAG ÍSLENSKRA
HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Góð heilbrigðisþjónusta er ein forsenda þess
að einstaklingar geti notið góðrar heilsu.
Hjúkrun er sá þáttur heilbrigðisþjónustu
á Íslandi sem nær til estra landsmanna.
Hjúkrun er þekking, færni og umhyggja
í þágu þjóðarinnar.
Skipulagning
Skyldur
Stefnumótun
Stjórnun
Trúnaður
Virðing
Þjálfun
Öryggi
Ábyrgð
Árangur
Eftirlit
Endurhæfing
Gæði
Heilsuefling
Heilsugæsla
Heilsuvernd
Þekking
Færni
Umhyggja
Kennsla
Leiðsögn
Lýðheilsa
Málsvörn
Mat
Meðferð
Menntun
Nám
Nýjungar
Ráðgjöf
Rannsóknir
Samhæfing
Samheldni
Samhjálp
Sérhæfing
Skilningur
Suðurlandsbraut 22 – 108 Reykjavik – Sími 540 6400 – hjukrun@hjukrun.is
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö S T u d a g u R 1 2 . m a Í 2 0 1 7
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
6
-5
C
C
4
1
D
1
6
-5
B
8
8
1
D
1
6
-5
A
4
C
1
D
1
6
-5
9
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K