Fréttablaðið - 12.05.2017, Qupperneq 18
Fulla ferð til Stokkhólms
Skalli og mark Belginn stóri, Marouane Fellaini, skaut Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í fótbolta í gærkvöldi en hann skoraði
eina markið í 1-1 jafntefli í seinni leiknum á móti Celta Vigo. Hér fagnar miðjumaðurinn hárprúði marki sínu. Nordicphotos/Getty
mma Það leit lengi vel ekki út fyrir
að Gunnar Nelson myndi fá bardaga
í sumar eins og hann hafði stefnt að.
Flestir fyrir ofan hann á styrkleika-
listanum eru komnir með bardaga
eða eru meiddir.
Eftir sannfærandi sigur á Banda-
ríkjamanninum Alan Jouban um
miðjan mars vildi Gunnar fá að
reyna sig gegn einhverjum af þeim
bestu. Það er ekki mögulegt í sumar.
Hann vildi samt ólmur fá bardaga
og hefur nú fengið bardaga gegn
hinum sterka og spennandi Arg-
entínumanni Santiago Ponzinibbio.
Bardagi þeirra verður aðalbardagi
kvöldsins.
„Ég veit nú voðalega lítið um
hann. Ég kann ekki einu sinni að
bera fram nafnið hans enn sem
komið er en það mun koma,“ segir
Gunnar léttur um væntanlegan and-
stæðing.
Aðeins tapað þrisvar
Þessi Argentínumaður er þrítugur
og er mjög reyndur. Hann er búinn
að berjast 27 sinnum og vinna 24
þeirra bardaga. Er því aðeins með
þrjú töp. Þrettán sigrar komu eftir
rothögg, sex með uppgjafartaki og
aðeins fimm bardagar hafa endað á
dómaraúrskurði. Síðan Ponzinibbio
kom inn í UFC hefur hann unnið sex
bardaga og tapað tvisvar. Hann er
búinn að vinna fjóra bardaga í röð
og er kominn í þrettánda sætið á
styrkleikalista UFC í veltivigtinni.
Gunnar er þar í níunda sæti.
„Það er mjög ánægjulegt að fá
annað tækifæri til þess að vera í
aðalbardaga á Bretlandseyjum. Það
var mjög svekkjandi þegar ég þurfti
að draga mig út úr bardaganum í
Belfast í nóvember vegna meiðsla.
Gaman að vera þarna því það er
auðvelt fyrir fólk að hoppa yfir. Ég
geri ráð fyrir hrikalegri stemningu
í höllinni. Það kemur pottþétt fólk
frá Írlandi, Englandi og auðvitað
frá Íslandi,“ segir Gunnar en það
leyndi sér ekki að hann var mjög
hamingjusamur með að hafa fengið
bardaga í sumar. Eftir að hafa ekki
keppt mikið síðustu ár vildi hann fá
þrjá til fjóra bardaga í ár.
Okkar maður viðurkennir að
hann hafi nánast verið orðinn
úrkula vonar um að fá bardaga í
sumar.
Vildi ólmur berjast í sumar
„Þetta leit ekki vel út á tímabili. Það
var enginn á lausu á topp tíu. Þetta
var því næsti gæi og hann lítur mjög
vel út. Ég vildi ólmur fá bardaga í
sumar og svo ná þriðja bardaganum
í lok árs. Það var planið hjá mér.
Þetta er því bara hið besta mál.“
Þó að Gunnar væri ekki kominn
með bardaga þá hefur hann ekkert
gefið eftir á æfingum. Hann æfir allt
árið og tekur aldrei langa pásu frá
æfingasalnum.
„Maður æfir aðeins minna þegar
bardagi er ekki klár en keyrir svo
upp hraðann þegar það er kominn
bardagi. Ég er alltaf að æfa. Ég er
aldrei í því að gera ekki neitt. Ég hef
notið þess að vera með fjölskyldu
og vinum og leika mér á sleðanum
mínum áður en snjórinn fer,“ segir
Gunnar en næsta mál á dagskrá
hjá honum er að setja upp æfinga-
áætlun. Hann reiknar með því að
vera nokkrar vikur á Írlandi líkt og
oftast en þar er þjálfari hans, John
Kavanagh.
til í thompson næst
Þó að Gunnar hafi ekki fengið and-
stæðing í topp tíu þá segir hann
enga ástæðu til þess að pirra sig
á því. Í umræðunni var að hann
myndi berjast við Stephen Thomp-
son en hann er meiddur. Gunnar er
þó með þann bardaga í huga.
„Ég hugsa að það gæti orðið næsti
bardagi eftir þennan,“ segir Gunn-
ar en Thompson mun ekki berjast
fyrr en í fyrsta lagi í október eins og
staðan er núna.
Með því að keppa við menn fyrir
neðan sig er Gunnar eðlilega að taka
áhættu. Sigur gefur honum ekki eins
mikið og andstæðingnum. Að sama
skapi ef hann tapar þá kastast hann
lengra aftur fyrir í goggunarröðinni.
„Það er hluti af sportinu að taka
áhættu. Ég sýndi með síðasta bar-
daga að ég er til í að taka áhættu og
ég set það ekkert fyrir mig. Ég set
pressu á aðra með þessu að gera slíkt
hið sama.“ henry@frettabladid.is
Hluti af sportinu að taka áhættu
Gunnar Nelson mun stíga aftur inn í búrið þann 16. júlí í sumar er hann verður aðalnúmerið á bardaga-
kvöldi hjá UFC í Glasgow. Andstæðingur hans kemur frá Argentínu og er á mikilli siglingu innan UFC.
Klár í næsta stríð. Gunnar fær aðalbardaga í Glasgow og á von á miklum
stuðningi. hann er hér fyrir sinn síðasta bardaga. fréttAblAðið/Getty
17.00 players champion. Golfst.
18.50 WbA - chelsea Sport
19.05 fram - haukar Sport 2
21.00 teigurinn Sport
21.10 1 á 1 með Gumma ben Sport
22.30 everton - Watford Sport
00.00 Washingt. - boston Sport 2
inkasso-deildin:
19.15 hK - leiknir r.
19.15 fram - haukar
19.15 Ír - Þróttur r.
19.15 Grótta - fylkir
Í dag
lyon - Ajax 3-1
0-1 Kasper Dolberg (27.), 1-1 Alexandre
Lacazette (45., víti), 2-1 Alexandre Laca-
zette (45+1), 3-1 Rachid Ghezzal (81.)
Ajax fór áfram, 5-4, samanlagt.
Man. Utd - celta Vigo 1-1
1-0 Marouane Fellaini (17.), 1-1 Facundo
Roncaglia (85.).
rautt: Eric Bailly og Roncaglia (90.)
Man. Utd. fór áfram, 2-1, samanlagt.
Nýjast
evrópudeild UefA
KUHN HAFNAði BrEiðABliKi
Breiðablik fékk ekki manninn
sem það vildi helst fá sem þjálfara
liðsins í Pepsi-deild karla, Danann
Allan Kuhn. Kuhn fékk tilboð
frá Breiðabliki um að taka við
starfinu eftir að Arnar Grétarsson
var rekinn á þriðjudaginn en sá
danski gerði Malmö að Svíþjóðar-
meisturum á síðustu leiktíð og var
aðstoðarþjálfari Álaborgar þegar
liðið varð afar óvænt Danmerkur-
meistari árið 2014. „Það er mér
heiður að Breiðablik hafi boðið
mér starfið sem þjálfari liðsins.
Aftur á móti er ég að skoða betur
önnur tilboð sem mér hafa borist
og því verð ég að hafna tilboði
Breiðabliks,“ sagði
Kuhn við íþróttadeild
365 í gær. Sigurður
Víðis son, aðstoðar-
maður Arnars
Grétarssonar,
stýrir Blikunum á
móti Stjörnunni
í nágrannaslag í
Pepsi-deildinni
á sunnudag.
Blikar eru stiga-
lausir.
SöNGFUGliNN SAMDi
Jón Jónsson, bakvörður Íslands-
meistara FH og einn ástsælasti
söngvari þjóðarinnar, skrifaði í
gær undir nýjan eins árs samning
við FH. Jón tók sér frí frá fótbolta á
síðustu leiktíð þegar Hafnafjarðar-
liðið varð Íslandsmeistari annað
árið í röð og í áttunda sinn í sögu
félagsins. Jón er öflugur hægri bak-
vörður sem varð meistari með FH
árin 2012 og 2015.
EiðUr ArON Á lEið Í VAl
Valsmenn í Pepsi-deild karla í
fótbolta eru að bæta
við sig sterkum
miðverði en
Eiður Aron Sig-
urbjörnsson er
á leið til liðsins.
Þetta staðfesti
Ólafur Jóhannes-
son, þjálfari Vals, í
þættinum 1á1 sem er á dagskrá á
Stöð 2 Sport HD klukkan 22.00 í
kvöld. Eiður Aron er 27 ára gamall
Eyjamaður og var á árum áður
einn allra besti varnarmaður
Pepsi-deildarinnar. Hann hefur
spilað með örebro, Sandnes Ulf og
nú síðast Kiel í þýsku 3. deildinni
sem atvinnumaður.
Þetta leit ekki vel út
á tímabili. Það var
enginn á lausu á topp tíu.
Gunnar Nelson
1 2 . m a í 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U R18 S p o R T ∙ F R É T T a B L a ð i ð
sport
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-6
1
B
4
1
D
1
6
-6
0
7
8
1
D
1
6
-5
F
3
C
1
D
1
6
-5
E
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K