Fréttablaðið - 12.05.2017, Blaðsíða 24
Ég var framan af ekki fastur í þeirri hugmynd að verða prestur. Ég hafði unun af guð-
fræðinni og það togaðist á í mér
hvort ég ætti að gefa mig í fræðin
eða prestsstarfið. En eftir að hafa
útskrifast með doktorspróf frá
Edinborgarháskóla fæddist hjá mér
innri fullvissa um að ég ætti næst að
gefa mig í prestsstarfið,“ segir Grétar
um köllun sína til að verða prestur
en hálft ár er nú liðið síðan biskup
Íslands skipaði dr. Grétar í emb-
ætti prests í Grafarvogsprestakalli,
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
„Prestskapurinn kemur mér fyrir
sjónir sem merkilegt þversnið ólíkra
starfa. Presturinn þarf í senn að vera
andlegur kennari, félagsmálatröll,
rithöfundur, ræðumaður og sálgætir.
Það sem hefur komið mér mest á
óvart er hversu vel prestinum er
tekið. Ástæðan fyrir því að það hefur
komið mér á óvart er að stundum
finnst manni eins og andblær opin-
berrar umræðu sé í aðra átt.“
Og móttökur íbúa í einu stærsta
úthverfi Reykjavíkur stafa hlýju.
„Mér finnst fólk taka gífurlega vel
á móti mér í hlutverki prests. Það er
líkt og það upplifi í hlutverki prests-
ins tengingu við hina andlegu vídd,
tengingu við söguna og tengingu við
nærumhverfi sitt.“
Teikn á lofti
Sem barn og unglingur segist
Grétar hafa verið viljugur og glað-
vær en jafnframt með viðkvæman
streng sem ekki allir fengu að sjá.
„Í minni upplifun finnst mér sem
það hafi verið mikið andlegt þel á
heimilinu þó það sé erfitt að festa
fingur á það. Á sinn hátt þá ólst
ég einfaldlega upp við svipaðan
kristindóm eins og margir þekkja
á Íslandi. Trúin var iðkuð í bak-
grunninum, en samt í andrúms-
loftinu, og mér var kennt að fara
með kvöldbænir. En sú trúariðkun
var hins vegar ekki mjög tengd
helgihaldi kirkjunnar.“
Nú þegar Grétar stendur mitt
í helgihaldi kirkjunnar er hann
inntur eftir lífsstíl ungs nútíma-
prests.
„Í prestsstarfinu er maður svo
gjarnan að störfum á óvanalegum
tímum svo sem eftir vinnu, um
kvöld, um helgar og um hátíðar.
Því er óljósara en í öðrum störfum
hvenær maður er við vinnu og
hvenær ekki. Prestsstarfið hefur
þess vegna tilhneigingu til að verða
lífsstíll. Það tekur tíma að læra á
þetta og finna rétta taktinn en ég
reyni að hyggja að undirstöðunum
í lífinu. Ég reyni að sinna minni
eigin andlegu iðkun, lifa heiðar-
lega, borða rétt og hreyfa mig. Já,
og sinna fjölskyldunni!“ bætir
Grétar brosandi við.
Meðfram prestsstarfinu er
Grétar stundakennari við guð-
fræði- og trúarbragðafræðideild
Háskóla Íslands. „Ég mæli með því
að fólk læri til prests ef það er það
sem það langar til að gera. Mest
af öllu mæli ég þó með því að fólk
rækti trúarlífið og sinni andlegri
og trúarlegri iðkun. Mér finnst
að við á Vesturlöndum höfum
gleymt því hversu mikla innri
umbreytingu manneskjan getur
upplifað í gegnum bæn, íhugun og
hugleiðslu. Sem betur fer eru teikn
á lofti um að þessi gömlu reynslu-
vísindi séu að rifjast upp á ný.“
Trúin breytir lífi fólks
Um árþúsundamótin 1000 ákvað
Alþingi að kristni yrði þjóðartrú
Íslendinga. Á undanförnum árum
hefur kristin trú þó mætt nokkru
mótlæti hér á landi. Er inntak krist-
innar trúar: ást og kærleikur, ásamt
friði, fyrirgefningu og réttlæti,
dottið úr tísku hjá Íslendingum?
„Ég hef ekki einhlítt svar við
því. En mér sýnist þó að það hljóti
að vera mikilvægt að fólk upp-
lifi, í fyrsta lagi, að kristin trú hafi
eitthvert gildi fyrir það og, í öðru
lagi, að fólk hafi hugrekki til að
segja sannleikann um það gildi
sem kristin trú hefur í lífi þess. Við
þurfum bara að vera heiðarleg við
okkur sjálf og við aðra, en hvort
tveggja hefur alltaf reynst mann-
eskjunni erfitt,“ svarar Grétar.
Sem prestur og mannvera segist
hann standa vörð um fagnaðar-
erindið með því að iðka trúna
með hætti sem hefur umbreytandi
áhrif á líf hans og upplifun hans af
tilverunni.
„Fagnaðarerindið er fagnaðar-
erindi vegna þess að það breytir
lífi fólks. Það hefur enginn áhuga á
kristinni trú ef kristið fólk er sífellt
óhamingjusamt, reitt, öfundsjúkt,
biturt og í vörn.“
Að vera kristinn samkvæmt boð-
skap Jesú Krists er meðal annars
að vera talsmaður réttlætis, frið-
semi og náungakærleika manna í
millum. Telur Grétar að boðskapur
kristinnar trúar sé vopnið sem
ófriðsæll heimurinn þarf í dag?
„Ég vildi gjarnan segja einfalt „já“
en það þyrfti að setja marga fyrir-
vara á það. Kristin trú, eins og allar
gerðir lífssýnar, á sér fjölbreyttar
birtingarmyndir. Sumar þeirra
virðast auka á ófriðinn og ná ekki
að miðla þeim heilunarmætti sem
trúin býr yfir.“
Margar guðssannanir til
Annir presta snúast um gleði og
sorgir mannanna. Séra Grétar
segir að erfiðastur sé sá eðlilegi
vanmáttur sem allir hafi gagnvart
missi annarra.
„Allt sem sagt er við aðstandend-
ur í slíkum aðstæðum á það til að
verða hjóm eitt. Þá er best að skynja
vanmáttinn, finna fyrir honum
og átta sig þannig á að hann getur
ekki gert manni neitt. Með því móti
getum við orðið sterk í vanmætt-
inum. Sjálfur vinn ég úr mótlæti og
erfiðleikum með bæn, íhugun og
ákveðnum rökgreiningaraðferðum
sem ég hef tamið mér.“
Helsta trúrækt Grétars fer í
gegnum iðkun kristilegrar íhug-
unar, svokallaðrar kyrrðarbænar,
sem ættuð er úr klausturhefðum
kristindómsins. Þess utan notar
hann líka hefðbundna bæn, hina
fornu Jesú-bæn austurkirkjunnar
og biblíulestur.
En trúir séra Grétar í einlægni
á Guð? Getur hann sannfært efa-
semdamanninn um tilvist Guðs?
„Ég hef mjög djúpa fullvissu um
Guð. En sú fullvissa á sér ekki rætur
í rökhuganum. Það eru vissulega
til ýmsar góðar guðssannanir, sem
rökhugurinn okkar hefur gaman
af. Einhver sú besta er sú sem er
að finna hjá heilögum Anselm af
Kantaraborg. En ég tel að þótt sú
sönnun sé röklega fullnægjandi þá
kveiki hún ekki trú hjá neinum.
Trúin er allt annars konar skynjun.
Hún er andleg skynjun.“
Séra Grétar
segir engan hafa
áhuga á kristinni
trú ef kristið
fólk er sífellt
óhamingjusamt,
reitt, öfundsjúkt,
biturt og í vörn.
MYND/GVA
Mér finnst fólk taka
gífurlega vel á móti
mér í hlutverki prests.
Það er líkt og það upplifi í
hlutverki prestsins
tengingu við hina and-
legu vídd, tengingu við
söguna og tengingu við
nærumhverfi sitt.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Framhald af forsíðu ➛
Vörunúmer: 29502-0003Í
Danmörk kr 17.119*
Í Svíþjóð kr 14.340*
*skv.verðskrá levi.com og gengistöflu Íslandsbanka
501 Skinny kr.
13.990
Leví s kringlunni – Leví s Smáralind – Leví s Glerártorgi
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . m a í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-9
C
F
4
1
D
1
6
-9
B
B
8
1
D
1
6
-9
A
7
C
1
D
1
6
-9
9
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K