Fréttablaðið - 12.05.2017, Síða 32
Næstum helming-
ur þeirra sem
spurðir voru taldi eðli-
legt og rétt að setja börn í
ískalt bað ef þau væru
með háan hita.
Tómas fékk slæmt
bakflæði en honum
leið mun betur eftir að ég
hóf að gefa honum Bio-
Kult Infantis.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Vísindalega þróuð
góðgerlablanda fyrir
börn sem bætir melting-
una og heilsuna.
Amma og afi eru alltaf best en þau þyrftu kannski að kynna sér eitt og annað í sambandi við öryggismál barna.
Þótt rannsóknin sýni að amma og afi geti haft rangar hugmyndir í ýmsu er varðar
barnauppeldi þá setja þau ekki
börn í hættu viljandi. Ó, nei, þau
gera það með sinni bestu vitund.
Þau nota sömu aðferðir og þau
gerðu þegar þeirra börn voru
að alast upp. Þær eru hins vegar
margar úreltar. Engum dettur í hug
í dag að hafa börn laus í bílnum
eins og tíðkaðist fyrir 30+ árum. Þá
þótti einnig eðlilegt að gefa börnum
venjulegan mat þegar þau voru á
fyrsta mánuði. Börnin sváfu jafnvel
með þung teppi ofan á sér. Allt er
þetta breytt.
Afi og amma eru oft að gæta
barnabarna og vilja hjálpa til með
pössun. Þessi nýja bandaríska
rannsókn var kynnt í tengslum
við ársfund Pediatric Academics
Societies en félagið leggur áherslu á
heilsu barna.
Rannsóknin tók til 636 manns
sem eru afar og ömmur í Bandaríkj-
unum. Hún sýndi að mjög margt
af þessu fólki hafði ekki vitneskju
um ýmis mikilvæg öryggisatriði
varðandi börn. Margar gamlar
mýtur töldu ömmur og afar full-
gildar í dag.
„Við getum ekki gengið út frá því
að afi og amma séu sérfræðingar
í barnauppeldi þótt þau hafi alið
upp börn,“ segir Andrew Adesman
prófessor og einn af þeim sem fram-
kvæmdu rannsóknina, sem fór fram
á Cohen Childrens Medical Center
í New York, í samtali við fréttastofu
CNN.
Næstum helmingur þeirra sem
spurðir voru taldi eðlilegt og rétt að
setja börn í ískalt bað ef þau væru
með háan hita. „Það er mjög hættu-
legt að setja veikt barn í ísbað því
það getur orðið til þess að líkamshit-
inn falli alltof mikið,“ segir Andrew.
Fjórðungur afanna vissi ekki
að það ætti að leggja ungbörn á
bakið þegar þau sofa. Barn sem
liggur á maganum er í mun meiri
hættu á köfnun en þau sem sofa
á bakinu. Köfnun hefur verið ein
helsta dánarorsök barna á fyrsta
ári í Bandaríkjunum. Þegar spurt
var hvort ætti að setja plástur á
opið sár, vissu 68% ekki að það ætti
að plástra. Flestir vissu þó að það
ætti ekki að setja smjör á brunasár.
Aðeins 24% svarenda höfðu öll
svörin rétt af þeim tólf spurningum
sem sneru að öryggismálum barna.
Niðurstöður rannsóknarinnar
eru ætlaðar til að vekja fólk til
umhugsunar um ýmis öryggismál
er tengjast ungum börnum. „Afar
ættu kannski að sækja sér faglega
ráðgjöf frá leikskólakennurum en
erfitt getur verið að koma því við,“
segja sérfræðingarnir. Vísinda-
mennirnir sem standa á bak við
rannsóknina hafa áhuga á að gera
aðra slíka rannsókn og þá með
foreldrum. Það væri gott að vita
hvað þeir vita mikið um mikilvæg
öryggismál er tengjast börnum.
Eru amma og afi hættuleg?
Ný bandarísk rannsókn sýnir að amma og afi hafa ekki alltaf rétt fyrir sér þegar kemur að barna-
uppeldi. Þau geta meira að segja metið aðstæður rangt og sett barnið í mikla hættu.
Bio-Kult Infantis meltingargerl-arnir eru vísindalega þróuð góðgerlablanda fyrir börn sem
bætir meltinguna og heilsuna. Góð-
gerlablandan inniheldur sjö gerla-
strengi af mismunandi mjólkur-
sýrugerlum og sýnir reynslan og
rannsóknir að gerlarnir styrkja og
bæta bæði meltinguna og heilsuna.
Auk þess innihalda þeir D3-vítamín
og gott hlutfall af Omega 3.
Bio-Kult Infantis meltingar-
gerlarnir fást í öllum apótekum,
heilsuverslunum og heilsuhillum
stórmarkaðanna.
Bæta heilsu og
meltingu barna
Bio-Kult Infantis meltingargerlarnir
innihalda sjö gerlastrengi af mismun-
andi mjólkursýrugerlum. Gerlarnir
styrkja og bæta meltingu og heilsu.
Tanja Karen Salmon hefur gefið syni sínum, Tómasi Peter, Bio-Kult Infantis meltingargerlana
frá því að hann var þriggja mánaða
gamall.
„Tómas fékk slæmt bakflæði á
þessum tímabili en honum leið
mun betur eftir að ég hóf að gefa
honum Bio-Kult Infantis. Núna er
hann orðinn 18 mánaða og bak-
flæðið hefur alveg elst af honum.
Þó finn ég greinilega að ef ég gef
honum ekki Bio-Kult Infantis er
meira loft í maganum á honum og
meltingin verður alls ekki jafn góð.
Þannig að hann byrjar alla daga
vikunnar á því að fá Bio-Kult út á
hafragrautinn sinn og honum finnst
það æðislegt. Honum líður miklu
betur og er hressari allan daginn.“
Bio-Kult Infantis hefur
reynst okkur mjög vel
Tanja Karen Salmon með 18 mánaða syni sínum, Tómasi Peter. Hann hefur
tekið inn Bio-Kult Infantis frá þriggja mánaða aldri.
Frá þriggja mán-
aða aldri hefur
Tómas Peter
tekið inn Bio-Kult
Infantis melt-
ingargerlana. Í
dag er hann 18
mánaða og laus
við bakflæðið.
4 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . m a Í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-5
C
C
4
1
D
1
6
-5
B
8
8
1
D
1
6
-5
A
4
C
1
D
1
6
-5
9
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K