Fréttablaðið - 12.05.2017, Page 38
Flestir muna eftir ástarsorg og vonleysi hinnar þekktu per-sónu Bridget Jones. Örugglega
hafa margir sett sig í sömu spor.
Leggjast undir sæng og breiða upp
yfir haus í örvinglun sinni. En það
birtir yfirleitt aftur í lífinu. Ýmis-
legt skiptir máli þegar vinna þarf
úr ástarsorg. Til dæmis hversu lengi
þið hafið verið saman. Eruð þið enn
vinir eða fór allt í háaloft þegar þið
hættuð saman?
Guðrún Katrín Jóhannesdóttir,
félagsfræðingur hjá Lausninni, er
vön að fást við alls kyns erfið mál
sem koma upp í sambandi við áföll.
Hún segir að fyrst og fremst sé mikil-
vægt fyrir þann sem er í ástarsorg
að tala um líðan sína og tilfinningar
við einhvern sem hann treystir, til
dæmis vin, fjölskyldumeðlim eða
fagaðila. „Ég myndi mæla með því að
fólk haldi sinni daglegu rútínu eins
og að mæta í skólann eða vinnuna,
hreyfi sig og sé duglegt að finna sér
eitthvað áhugavert að gera. Eftir
sambandsslit er gott að hafa í huga
að þegar einar dyr lokast þá opnast
aðrar. Þó svo að alls kyns tilfinn-
ingar komi upp í kjölfarið eins og
söknuður til þess sem var og átti að
verða þá er gott að reyna að veita
athygli nýjum tækifærum sem koma
upp og jafnvel að leggja sig fram við
að skapa ný tækifæri,“ segir hún.
Láta drauma rætast
„Sumir láta drauma rætast sem af
einhverjum ástæðum lágu í dvala
á meðan á sambandinu stóð eins
og að fara til útlanda með vini eða
vinkonu. Þó svo að annar aðilinn
upplifi höfnun við endalok sam-
bands þá er gott fyrir þann hinn
sama að reyna að bera virðingu fyrir
ákvörðun þess sem vill ljúka sam-
bandinu. Sá sem upplifir ástarsorg
ætti að reyna að sleppa tökunum á
hinum aðilanum, horfast í augu við
orðinn hlut, halda áfram með líf sitt
og sýna ferlinu sem hann gengur í
gegnum þolinmæði. Það getur tekið
tíma að jafna sig á ástarsorg en það
sem skiptir mestu er að það birtir
alltaf til að lokum. Einstaklingur í
ástarsorg ætti til dæmis að varast að
einangra sig. Eins er mikilvægt að
hann fari ekki að forðast ákveðið
fólk eða staði í kjölfarið heldur haldi
sínu striki eins og áður.“
Lífið er ekki bara slétt og fellt
Þegar Guðrún Katrín er spurð hvort
ástarsorg geti verið alvarleg, svarar
hún: „Ástarsorg er ein af þeim til-
finningum sem fólki finnst erfitt að
upplifa og vill helst ekki finna fyrir.
Gott er að minna sig á að slæmu til-
finningarnar eru hluti af því að vera
manneskja rétt eins og góðu tilfinn-
ingarnar. Alveg sama hvað, þá förum
við aldrei í gegnum lífið án þess að
þurfa að finna til. Þá er mikilvægt
að muna að erfiðar og óþægilegar
tilfinningar eru ekki hættulegar þótt
það geti verið erfitt að takast á við
þær. Það er einmitt svo mikilvægt
að taka eftir tilfinningum sínum,
horfast í augu við þær og takast á
við þær. Ef fólki er farið að finnast
það vera fast í vítahring neikvæðra
hugsana þá getur verið mikilvægt að
leita aðstoðar fagaðila.“
Upplifa allir ástarsorg?
„Það er í rauninni ekki hægt að
alhæfa um það. Sumt fólk upp-
lifir sig til dæmis aldrei ástfangið á
ævinni, þar af leiðandi er eiginlega
ekki hægt að segja að það lendi í
ástarsorg. Til að lenda í ástarsorg
þurfum við fyrst að verða ástfangin,“
segir Guðrún Katrín.
Hægt að fá hjálp
Það er mjög erfitt fyrir báða aðila að
slíta sambandi, sérstaklega ef það
hefur varað í einhverja mánuði. Það
getur farið í gang heilmikið sorgar-
ferli hjá þeim sem fyrir höfnuninni
verður. Sá sem slítur sambandinu
hefur oft hugsað um það í einhvern
tíma. Best er að slíta sambandi strax
og viðkomandi finnur að það er ekki
að ganga upp. Ekki viðhalda von-
lausu sambandi, það gerir engum
gott.
Flestir unglingar ganga í gegnum
ástarsorg og það er ekki skemmti-
legur tími. Hins vegar jafnar fólk
sig venjulega fljótt á unga aldri.
Mun verra mál er þegar sambandið
hefur varað í mörg ár og jafnvel
barn komið í spilið. Ekki er gott að
henda sér í faðm á nýjum kærasta
eða kærustu. Það samband mistekst
yfirleitt. Betra að láta tímann líða og
leyfa sárunum að gróa.
Guðrún Katrín tekur á móti
fólki sem glímir við mismunandi
áföll. Hún segir að fólk leiti til sín af
mörgum ástæðum, meðal annars
í kjölfar sambandsslita og vegna
ástarsorgar. „Gott er að hafa í huga
að það er í raun ekkert of lítið eða of
mikið til að leita til meðferðaraðila.
Sumir hafa áhyggjur af því að það
sé veikleiki að leita sér aðstoðar hjá
meðferðaraðila en í rauninni er það
gagnstætt því það þarf styrk og hug-
rekki til þess,“ segir hún.
Ástarsorg getur verið sár
Það vita allir sem þekkja að ástarsorg er ekkert gamanmál hjá ungu fólki. Mismunandi langan tíma
tekur að ná sér eftir að samband kærustupars rofnar. En er eitthvað hægt að gera við þessari sorg?
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Það getur verið sárt þegar kærasti ákveður að slíta sambandi. Guðrún Katrín félagsráðgjafi segir að vel sé hægt að
komast yfir þann sársauka.
Guðrún Katrín Jóhannesdóttir er
félagsfræðingur hjá Lausninni.
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
Síðumúla 31 • 08 Reykjavík • S. 5 20 • 84 0470 • www.parketverksm djan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
Síberíulerki
- Aldrei að bera á
Í kjarnvið síberíulerkis er náttúruleg
fúavörn. Því þarf aldrei að bera fúavörn
á viðinn.Viðurinn er sterkur, endinga-
góður og þolir afar vel íslenska veðráttu.
Veggklæðningar og pallaefni
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . M a í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
6
-8
9
3
4
1
D
1
6
-8
7
F
8
1
D
1
6
-8
6
B
C
1
D
1
6
-8
5
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K