Fréttablaðið - 12.05.2017, Side 39

Fréttablaðið - 12.05.2017, Side 39
Á þessum árstíma fyllast verslanir landsins af fersk-um aspas frá Evrópu. Aspas er einstaklega ljúffengur einn og sér eða sem meðlæti með ýmsu kjöti og fiskmeti. Einfaldleikinn er oft í fyrirrúmi þegar hann er eldaður og hér er afar einföld og fljótleg uppskrift að grilluðum aspas með parmesan-osti, ólífu- olíu og sítrónu. Hráefni: 1 búnt aspas (450 g) Safi úr ½ sítrónu Ólífuolía, u.þ.b. helmingi meira magn en sítrónusafinn Parmesan-ostur skorinn í örþunnar skífur Sjávarsalt Nýmalaður svartur pipar Hrærið sítrónusafa og ólífuolíu saman. Skerið trénaða endann af aspasinum og grillið á úti- grilli eða grillpönnu þar til fallegar rendur koma á hann. Snúið honum einu sinni. Um leið og hann er tilbúinn er hann settur á fat eða beint á diskana. Hellið sítrónusafanum og olíunni yfir, saltið og piprið og stráið örþunnum parmesan- skífum yfir. Frábær forréttur eða sem meðlæti með kjöti og fiski. Heimild: www.kryddogkrasir.com. Grillaður aspas Konungborið fólk og þjóðar-leiðtogar hafa verið gestir norsku konungshjónanna undanfarna daga. Ástæðan er afmælishátíð hjónanna en þau eiga bæði áttræðisafmæli á þessu ári. Í fyrrakvöld var hátíðarveisla í Óperunni í Ósló sem endaði með glæsilegri flugeldasýningu. Þar mátti sjá kónga, drottningar, prinsa og prinsessur auk íslensku forsetahjónanna, Guðna Th. Jóhannessonar og Elízu Reid, sem voru prúðbúin eins og aðrir gestir. Hátíðin í Óperunni var afmælis- gjöf ríkisstjórnarinnar til konungs- hjónanna. Haraldur konungur varð átt- ræður 21. febrúar sl. en Sonja drottning verður áttræð 4. júlí nk. Bæði eru þau fædd 1937. Afmælis- hátíðin stóð yfir þriðjudag og mið- vikudag. Má segja að þessi tveggja daga afmælishátíð hafi verið mikil kjólaveisla fyrir ljósmyndara í Noregi. Norska krónprinsessan, Mette-Marit, klæddist kjól eftir norskan hönnuð, Koma By Marte. Danska krónprinsessan, Mary, var í glæsilegum silkikjól frá breska hönnuðinum Erdem og sænska krónprinsessan, Victoria, var í blómakjól sem kemur frá hinu sænska fyrirtæki Acne. Afmæli í Noregi Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid voru glæsileg í afmælinu í Ósló. ... kemur aldrei aftur. Hafðu hugfast að lífið er núna og njóttu helgar- innar með vellíðan og hamingju að leiðarljósi. l Upplifðu eitthvað óvænt og nýtt, jafnvel þótt það sé ekki nema að prófa nýja uppskrift. l Skildu vinnuna eftir í vinnunni. l Gefðu ástvinum þínum af þér. Farðu í lautartúr með elskunni þinni, með krakkana út að leika, hittu systkinin í kaffi og faðmaðu foreldra þína. Fólkið okkar er það dýrmætasta í lífinu. l Ekki verja helginni í sófanum með tölvu eða símann í fanginu. Hreyfing losar um streitu og eykur vellíðan. l Vertu þinn besti vinur og nærðu þig í einrúmi með lestri, bíó- mynd, dekri, hvíld eða einhverju gómsætu. Dagurinn í dag … CANDICE SWANEPOEL FANGAÐU L JÓMANN Wonder Mud er steinefna og þörunga maski með náttúrulegum hreinsandi leir og andoxandi Astaxanthin þörungum. Maskinn hreinsar óhreinindi, dregur saman húðholur og húðin endurheimtir ljóma. Húðin verður silkimjúk og hrein eftir aðeins þriggja mínútna notkun. Notist 2 í viku. PURE-FECT MASKI 75 ML SLÍPAR - DJÚPHREINSAR - DREGUR SAMAN HÚÐHOLUR Í Pure-Fect leirmaskanum eru kísilþörungar og hvítur leir. Maskinn er borinn á húðina og látinn bíða í 1 mínútu meðan leirinn nær djúpt ofan í húðholur, dregur þær saman og djúphreinsar þær. Því næst er maskinn nuddaður létt af húðinni með volgu vatni meðan þörungarnir slípa húðina kröftulega svo hún verður jafnari og áferðarfallegri. Húðholur verða minna sjáanlegar og húðin jafnari og áferðarfallegri. LIFE PLANKTON MASKI 75 ML RÓAR - GRÆÐIR - ENDURNÝJAR - KÆLIR Life Plankton maskinn róar húðina samstundis, gefur raka, kælir, dregur úr roða og styrkir varnarkerfi húðarinnar. Maskinn er ríkur af rakagefandi og nærandi efnum og inniheldur hæsta hlutfall af Life Plankton. Hann er án alkahóls, litarefna og parabena. Maskinn hentar öllum húðgerðum og er notaður 2 í viku. Með maskanum verður húðin fallegri, heilbrigðari, þéttari og fær aukinn ljóma. TIPS OG TRIX: Maskinn róar húðina eftir sólbruna eða ef húðin er ert, frískar hana upp eftir flug eða erfiðan dag í ræktinni. MASKA BURSTI FULLKOMIN ÁSETNING MASKA NÝR maskabursti úr sílikoni sem auðveldar notkun maskans. Skilar réttu og jöfnu magni á húðina og hefur kælandi og róandi áhrif. SKIN BEST WONDER MUD MASKI 75 ML HREINSAR - ANDOXANDI - LJÓMI NÝTT FÓLK KYNNINGARBLAÐ 9 F Ö S T U DAG U R 1 2 . m a í 2 0 1 7 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 6 -9 8 0 4 1 D 1 6 -9 6 C 8 1 D 1 6 -9 5 8 C 1 D 1 6 -9 4 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 1 5 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.