Fréttablaðið - 12.05.2017, Page 44
Um helgina mun Sigrún Inga Hrólfsdóttir, deildar-forseti myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, opna sýningu fyrsta árgangsins sem hún hefur fylgt í heilt
ár í náminu. Hún segir að um fjölbreyttan
hóp sé að ræða.
„Ég tók þátt í að opna sýninguna í fyrra,
þá nýtekin við starfinu, en þessum árgangi
sem nú útskrifast hef ég fylgt í heilt ár.
Þetta leggst mjög vel í mig og mér finnst
þau öll vera að standa sig ótrúlega vel,“
segir Sigrún.
„Þau eru að vinna í gríðarlega fjöl-
breytta miðla og eru að takast á við sam-
tímann á áhugaverðan hátt, hvert með
sínum hætti,“ segir Sigrún um hópinn
sem sýnir á útskriftarsýningu Listahá-
skóla Íslands sem verður opnuð á laugar-
daginn. Alls eru 18 nemendur að útskrifast
úr myndlistardeild.
Nemendur vinna í fjölbreytta miðla
Sigrún lofar sterkri sýningu með fjöl-
breyttum áherslum. „Í náminu fær hver
og einn tækifæri til að þróa sína list á
eigin forsendum og fær til þess stuðning
og viðeigandi hjálp, bæði tæknilega og
hugmyndafræðilega. Nemendur eru
hvattir til þess að móta sína eigin listrænu
sýn, með gagnrýna hugsun og innsæi að
leiðarljósi. Þau eru einnig hvött til þess að
kanna nýjar hugmyndir og aðferðir. Hóp-
urinn hefur notið leiðsagnar fastráðinna
kennara við deildina, Heklu Daggar Jóns-
dóttur, Bjarka Bragasonar, Carls Boutard
og Ólafar Nordal auk fjölda gestakennara.
En þessi hópur nemenda er sjálfstæður og
þau sækja sér innblástur og umfjöllunar-
efni mjög víða.“
Spurð út í stefnur og strauma sem nem-
endur eru að vinna með þessa stundina
segir Sigrún málverkið til að mynda vera
á uppleið. „Á sýningunni er að finna
vídeó, innsetningar og gjörninga og
nokkrir í hópnum eru að fást við mál-
verk. Nemendur nýta sér líka nútíma-
tækni eins og sýndarveruleika. Það má
segja að þau séu að nota alla mögulega
miðla,“ útskýrir Sigrún sem segir upp-
setningu sýningarinnar hafa gengið vel.
„En þetta er alltaf krefjandi ferli og getur
verið svolítið stressandi. Þetta er mikil-
vægur þáttur í náminu og þau hafa unnið
hörðum höndum að uppsetningunni.
Þetta er samt svo samheldinn hópur
og þau eru góð í að hjálpast að og sýna
hvert öðru mikla virðingu. Þó að þau séu
að vinna sín verk á eigin forsendum þá
styðja þau við hvert annað og það er fal-
legt að fylgjast með því.“
Að lokum vill Sigrún hvetja alla til að
leggja leið sína í Hafnarhúsið á útskriftar-
sýningu Listaháskóla Íslands. „Þetta er
náttúrulega ótrúlega stór hátíð og fjöl-
sótt sýning, hún er líka ákveðinn vorboði.
Þessi sýning hefur fest sig í sessi sem einn
af mikilvægustu menningarviðburðum
ársins. Það er alltaf gaman að leggja leið
sína í Hafnarhúsið og sjá hvað er að gerast
í samtímalist. Hvort sem maður tengist
einhverjum nemanda í sýningunni eða
ekki, þá er alltaf gaman að sjá kraftinn
í þessum krökkum. Það er mikið stuð í
myndlistinni í dag.“
„Inntökuferli stendur nú yfir fyrir
árganginn sem mun hefja nám í mynd-
listardeild í haust. Það var mikil fjölgun
á umsóknum í deildina, bæði á BA-stigi
og MA-stigi. Þessi fjölgun umsókna ber
vott um það að við séum að gera eitthvað
rétt hérna,“ segir Sigrún sem finnur fyrir
miklum myndlistaráhuga hjá fólki þessa
stundina. gudnyhronn@365.is
Sýningin eins og vorboði
Sigrún Inga Hrólfsdóttir, deildarforseti myndlistardeildar LHÍ, opnar útskriftarsýn-
ingu nemenda á laugardaginn. Hún segir útskriftarhópinn vera fjölbreyttan og sam-
heldinn og hvetur alla til að leggja leið sína í Hafnarhúsið á útskriftarsýninguna.
Sigrún Inga Hrólfsdóttir hvetur alla til að leggja leið sína í Hafnarhúsið um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Maðurinn minn elskulegur,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sigurður Jónas Sigurðsson
Bogahlíð 2,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
sunnudaginn 7. maí. Útför hans fer fram
frá Háteigskirkju þriðjudaginn
16. maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Alzheimersamtökin.
Steinunn Árnadóttir
Hildur Sigurðardóttir Svanur Þorvaldsson
Arnar Sigurðsson Margrét S. Höskuldsdóttir
Árni Fannar Sigurðsson Giada Pezzini
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Sveins Heiðars Jónssonar
byggingameistara,
Holtateigi 44, Akureyri.
Sérstakar þakkir til allra sem önnuðust hann í
veikindum hans. Lifið og njótið.
Ragnheiður Sveinsdóttir Hrafn Þórðarson
Fríða Björk Sveinsdóttir Jóhann Ómarsson
Lovísa Sveinsdóttir Heiðar Jónsson
Erlingur Heiðar Sveinsson Rósa Björg Gísladóttir
afabörn og langafabörn.
Ástkær faðir minn,
fósturfaðir, bróðir og afi,
Henrik Thorarensen
Gunnlaugsson
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
fimmtudaginn 4. maí.
Útför verður gerð frá Fossvogskirkju í
dag, föstudaginn 12. maí, klukkan 15.
Hulda Henriksdóttir
Gunnþórunn Arnarsdóttir
Þór Thorarensen Gunnlaugsson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Auður Guðmundsdóttir
lést laugardaginn 29. apríl. Útförin
fór fram í kyrrþey að hennar ósk. Þeim
sem vildu minnast hennar er bent á
Barnauppeldissjóð Thorvaldsensfélagsins.
Lárus Guðjónsson Guðbjörg Benediktsdóttir
Guðmundur Guðjónsson Herdís Benediktsdóttir
Stefán Örn Guðjónsson Sigrún Sigurjónsdóttir
Jóhannes Sturla Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Sigríður
Magnúsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
í Reykjavík 29. apríl sl.
Jarðarför hefur farið fram.
Örn Blævarr Magnússon Svanhvít I. Magnúsdóttir
Hrafnhildur Magnúsdóttir Magnús Magnússon
Kristín G. Magnúsdóttir
tengdabörn og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og bróðir,
Guðmundur B.
Guðbjarnason
viðskiptafræðingur og
fyrrverandi skattrannsóknarstjóri,
Kristnibraut 89, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans 7. maí.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 19. maí klukkan 15.00.
Þórunn Magnúsdóttir
Guðbjarni Guðmundsson Ragnheiður Marteinsdóttir
Magnús Guðmundsson Lovísa María Gunnarsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir Sujesh Sundarraj
Erna Guðleif Guðbjarnadóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Hörður Þorgilsson
múrarameistari,
Miðtúni 82, Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn
30. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey.
Málfríður Andrea Sigurðardóttir
Sigurður Harðarson Sigríður Guðjónsdóttir
Selma Vilhjálmsdóttir
Hörður Harðarson Bára Kemp
Anna Harðardóttir Eiður Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar,
eiginmaður og vinur,
Þorleifur V. Stefánsson
Mandi,
Hulduhlíð 38, Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum við
Hringbraut 5. maí. Útförin fer fram frá
Lágafellskirkju mánudaginn 15. maí kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna.
F.h. aðstandenda,
Stefán Óli Þorleifsson
Magnús Smári Þorleifsson
Anna Sigurðardóttir
Okkar yndislegi unnusti, faðir,
bróðir, mágur og kær vinur,
Sigurður Birgir Baldvinsson
Hólmaseli, Flóahreppi,
lést sunnudaginn 30. apríl á
Landspítalanum. Útförin fer fram frá
Langholtskirkju föstudaginn 12. maí
klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vildu minnast hans er bent á þyrlukaupasjóð
Landhelgisgæslu Íslands.
Einnig, ef þið eigið góða mynd af Sigga, þá væri vel þegið
að fá afrit svo við getum hjálpað börnunum hans að
minnast hans ( sbaldvins@gmail.com ).
Claire Thuilliez
Marylou Jökla Sigurðardóttir
Alexander Baldvin Sigurðsson
Kristófer Ingi Sigurðsson
Helga Rut Baldvinsdóttir Ólafur Kj. Halldórsson
Quentin Thuilliez
1 2 . m a í 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U R24 T í m a m ó T ∙ F R É T T a B L a ð i ð
tímamót
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
6
-8
4
4
4
1
D
1
6
-8
3
0
8
1
D
1
6
-8
1
C
C
1
D
1
6
-8
0
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K