Fréttablaðið - 12.05.2017, Blaðsíða 51
Fordyri helvítis opnast
Höfundur: Amalie Olsen
Amalie Olsen útskrifaðist sem
leikskáld frá Aarhus Teater og
hefur vakið verðskuldaða athygli
í Danmörku síðustu misserin
fyrir leikverk sín. Nýjasta verk
hennar, De Rene Rum, var sett
upp í Aarhus Teater haustið
2016.
sprengja
Höfundur: Fredrik Brattberg
Leik- og tónskáldið Fredrik
Brattberg hlaut Ibsen-verð-
launin árið 2012 fyrir verk sitt
Tilbake komstene, var tilnefndur
til frönsku Godot-verðlaunanna
2016 og er eitt þekktasta leik-
skáld Noregs um þessar mundir.
Verk hans hafa verið sviðsett
víða um Evrópu, í Banda ríkjunum
og Asíu.
sjöunda barnlausa
kvöldið
Höfundur: Anders Duus
Sænska leikskáldið Anders
Duus hefur skrifað á fimmta tug
leikverka fyrir alla aldurshópa
og hlotið fjölda viðurkenninga
fyrir störf sín, nú síðast leik-
skáldaverðlaun sænsku Ibsen-
samtakanna 2017. Hann starfar
einnig sem dramatúrg við Örebro
leikhúsið.
púslið sem mig vantaði
Höfundur: Salka Guðmunds-
dóttir
Salka hefur skrifað sviðs- og út-
varpsverk fyrir börn og fullorðna
og hafa verk hennar meðal ann-
ars ratað til Skotlands, Ástralíu
og Danmerkur og hreppt ýmis
verðlaun og tilnefningar innan-
lands sem utan. Salka gegnir
starfi leikskálds Borgarleikhúss-
ins 2016-17.
Örverkin fjögur
leiklist er með frábærum leikurum
að takast á við sterkt verk. Þetta þarf
ekki að snúast um umgjörðina held-
ur er gott að opna á þennan mögu-
leika og setja þetta í aðeins annað
samhengi og aðgengilegra.“
Salka bendir á að þegar verið er að
færa íslensk verk á svið í viðamiklum
uppfærslum þá sé mikið undir. „Það
er einhvern veginn allt undir í slíkum
uppfærslum á meðan þessi leið gefur
manni frekar tækifæri til að þróa
hlutina. Prófa hvað virkar og hvað
virkar ekki. Þetta er líka skemmtileg
viðbót fyrir áhorfendur því fyrir þá
er þetta soldið eins og að koma að
hlaðborði. Vonandi munu svo áhorf-
endur sjá einhver leikskáld sem þeim
líkar við og þá geta þeir leitast við að
kynnast þeim betur í kjölfarið og
jafnvel hvatt til þess að verk eftir við-
komandi rati svo á íslensk leiksvið.“
Endapunktur eða ekki
Aðspurð hvort það sé ákveðinn
þráður sem liggi í gegnum verkin
fjögur þá segir Salka að þau hafi
fengið alveg frjálsar hendur með
það hvernig þau vildu tengja verkin.
„Í mínum hóp var sú leið farin að
verkin hverfast öll í kringum einn
atburð sem hefur ólík áhrif og afleið-
ingar í hverju verki fyrir sig. En svo er
sama persónan sem kemur við sögu
í öllum verkunum fjórum sem eins
konar aukapersóna. Þannig að í raun
eru þetta fjórar mjög ólíkar aðstæður
og sögur sem eiga samt þessa teng-
ingu sameiginlega.“
Salka segir að skáldin fjögur séu
talsvert ólík en innan hennar hóps
séu þó ekki nema svona um tuttugu
ár á milli elsta og yngsta skáldsins.
„Við byrjuðum á því að lesa mikið af
verkum eftir hvert annað, segja frá
og leitast við að skilja hvernig hvert
og eitt leikskáld væri að vinna. Við
fórum þessa leið til þess að hvert og
eitt skáld gæti unnið með sína tækni
og út frá sínum hæfileikum. Það voru
þarna líka gríðarlega reynd skáld
eins og t.d. Anders Duus sem hefur
skrifað á fimmta tug verka og er eitt
mikilsvirtasta skáld Svíþjóðar. Svo
er það Amelie sem er rísandi stjarna
þannig að fólk er svona á ólíkum
stöðum á sínum ferli.“
Umhverfi íslenskra leikskálda
er talsvert ólíkt því sem kollegar
þeirra búa við á Norðurlöndunum
og Salka segir að það ráðist í raun
einfaldlega af smæðinni. „Smæðin
er okkar versti óvinur. Mín reynsla
af því að vinna í Bretlandi er til að
mynda að þar fær maður að þróa
verkið með því að sýna það. En hérna
er sýningin einhvern veginn alltaf
endapunktur. Það heldur soldið
aftur af okkur þar sem hvert og eitt
verkefni fær kannski ekki alveg þann
tíma sem það þarf til þess að dafna.
Þetta ræðst af smæðinni og því held
ég að við mættum nýta okkur betur
möguleikann á afslappaðri formum
til þess að koma nýjum leikritum á
framfæri. Það sem Dramafronten er
að gera er eitthvað sem við þurfum
að skoða betur og jafnvel mögulega
taka okkur til fyrirmyndar.“
Það er einhvern
veginn allt undir í
slíkum uppFærslum á meðan
Þessi leið geFur manni
Frekar tækiFæri til að Þróa
hlutina.
Frásagnarsnilld
af íslenskri
og erlendri
klassík
Fleiri klassískar kiljur frá Forlaginu ...
SKOÐAÐU
ÚRVALIÐ
WWW.FORLAGID.IS
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
Kaupmannssonurinn Leifur Muller hélt kornungur út
í heim skömmu áður en heimsstyrjöldin síðari braust út.
Í umróti stríðsins var hann svikinn í hendur Gestapo í
Noregi, fangelsaður og sendur til Sachsenhausen-
fangabúðanna skammt frá Berlín.
Býr Íslendingur hér?, ein áhrifamesta ævisaga sem rituð
hefur verið á íslensku, segir sögu hans. Hún hefur verið
ófáanleg um langt skeið en kemur nú loks í nýrri útgáfu.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ðf r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 31f Ö S t U D A G U r 1 2 . m A í 2 0 1 7
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-6
6
A
4
1
D
1
6
-6
5
6
8
1
D
1
6
-6
4
2
C
1
D
1
6
-6
2
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K