Fréttablaðið - 03.03.2017, Blaðsíða 12
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. Afgreiðslutímar á www.kronan.is
489 kr.stk.
Shake & Pizza ostablanda
689 kr.stk.
Shake & Pizza beikonsulta
435 kr.stk.
Shake & Pizza deig, ferskt
449 kr.stk.
Shake & Pizza pizzasósa
449 kr.stk.
Shake & Pizza hvít sósa
Fös
tud
ag
ar
eru
piz
zad
ag
ar
FY
RI
R
Af öllu pizzadeigi alla föstudaga
loftslagsmál Það þarf þverpólitískan vilja
og fjármagn til að hrinda þeim verkum í fram-
kvæmd sem eru nauðsynleg í loftslagsmálum
hér á landi. Íslendingar hafa ekki nýtt tækifæri
sín nægilega vel. Markmið og skuldbindingar
alþjóðasamfélagsins varðandi losun gróður-
húsalofttegunda verða strangari í framtíðinni
og það verður kostnaðarsamt fyrir íslenskt
samfélag, í beinhörðum peningum, ef við upp-
fyllum ekki þær skuldbindingar sem stjórnvöld
hafa gengist undir.
Þetta, meðal annars, kom fram í máli Bjartar
Ólafsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, í
sérstökum umræðum í gær um skýrslu hennar
um stöðu Íslands í loftslagsmálum, sem var
lögð fram á mánudag.
Þar er dregin upp dökk mynd: Án meiri-
háttar inngrips stendur Ísland ekki við skuld-
bindingar sínar í loftslagsmálum. Losun á
hvern Íslending er þegar nærri þrefalt meiri en
gerist á heimsvísu og rétt um helmingi meiri
en að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins
(ESB). Þegar allt er lagt að jöfnu er Ísland ekki í
fararbroddi í loftslagsmálum heldur á hið gagn-
stæða við.
Björt sagði í ræðu sinni að allir þurfi að
leggjast á árarnar; atvinnulífið, sveitarfélög,
háskólar, félagasamtök og almenningur – og
mátti skilja hana svo að hún kallaði eftir þjóð-
arátaki, þó það orð hafi ekki verið notað. Það
sem lægi fyrir væri að hennar ráðuneyti getur
ekki eitt og sér tryggt árangur. „Stjórntækin eru
mörg og kannski flest í öðrum ráðuneytum en
jafnvel ríkisvaldið allt megnar vart að breyta
því sem þarf,“ sagði Björt. „Það er mikilvægt að
standa við skuldbindingar Íslands til 2030 en
það er ekki síður nauðsynlegt að móta okkur
framtíðar- og langtímasýn. Ég sé fyrir mér að
loftslagsráð, sem Alþingi ályktaði um á fyrra
ári, geti haft leiðandi hlutverk við gerð slíks
vegvísis.“
Að umræðunum loknum, þar sem þing-
menn úr öllum flokkum tóku þátt, er augljóst
að þingheimur er einhuga í málinu og sammála
umhverfisráðherra um áherslurnar, en hnykkt
var á ýmsu sem þarf að vera skýrara.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður
Vinstri grænna, fagnaði skýrslunni en í hana
vantaði „nokkuð á að fyrir liggi hvað eigi að
gera, hverju það muni skila í minni útblæstri og
hver kostnaðurinn við það verði. Kostnaðurinn
er ekki síst mikilvægur. Það er nefnilega lítið
mál að setja fram hástemmdar yfirlýsingar um
það hvernig við ætlum að ná undraverðum
árangri í umhverfismálum, en ef beinskeitt
aðgerðaáætlun með eyrnamerktum kostnaði
liggur ekki fyrir er ekki von á miklum aðgerð-
um,“ sagði Kolbeinn.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, fagnaði
skýrslunni og bauð ríkisstjórninni samstarf –
enda mikilvægi málsins gríðarlegt. Logi Einars-
son, þingmaður Samfylkingarinnar, hnykkti á
ýmsu en tiltók það sem er ekki í skýrslunni, eða
skipulag þéttbýlis – það sé nefnilega „ekki nóg
að drífa einkabílinn áfram á vistvænum orku-
gjöfum, við þurfum að minnka notkun hans
vegna þess að hann hvetur til ósjálfbærrar
þróunar byggðar.“
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttis-
málaráðherra, eins og fleiri, ítrekaði mikilvægi
málsins og þá vá sem er fyrir dyrum ef ekki tekst
að snúa vörn í sókn. Hann sagði ríkisstjórnina
taka það alvarlega og hún vildi sýna mikinn
metnað í málaflokknum. svavar@frettabladid.is
Einhugur um loftslagsmálin
Á herðum Bjartar Ólafsdóttur ráðherra hvílir erfiðasta viðfangsefni samtímans. FréttaBlaðið/anton Brink
Þingmenn allra flokka tala einu
máli um mikilvægi aðgerða í
loftslagsmálum. Kallað er eftir
aðgerða- og fjármálaáætlun.
Höfum ekki nýtt tækifæri nægi-
lega vel, segir Björt Ólafsdóttir.
Það eru nokkrar alheims-
vár sem steðja að okkur í
heiminum og er mikilvægt að
þjóðir heims takist á við þær
sameiginlega. Lofts-
lagsmálin eru þar
augljóslega sýnu
stærst …
Sigurður Ingi Jóhannsson,
þingmaður Framsóknarflokksins
Við erum með eitt stærsta
vistspor heims, hér á
Íslandi, og það er ekki
létt verk að vinda
ofan af því.
Ari Trausti Guðmundsson,
þingmaður VG
Mér er því miður til efs að
allir ráðherrar hennar
gangi í sama takt og hæstvirtur
umhverfisráðherra þegar kemur að
áherslum á raunhæfar
aðgerðir til að
sporna gegn lofts-
lagsbreytingum.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir,
þingmaður VG
Við verðum að sýna meiri
metnað og erum óttalegir
orkusóðar, ef svo má segja. Einmitt
kannski vegna þess hvað við eigum
ódýra og hreina orku, að þá förum
við ákaflega illa með
hana.
Þorsteinn Víglundsson,
félagsmálaráðherra
3 . m a r s 2 0 1 7 f Ö s t U D a g U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-F
8
8
4
1
D
1
3
-F
7
4
8
1
D
1
3
-F
6
0
C
1
D
1
3
-F
4
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K