Fréttablaðið - 03.03.2017, Blaðsíða 32
Áratuga þekking, sérhæfð
þjónusta og glæsilegt úrval
Egill Arnar Birgisson, fram
kvæmdastjóri Birgisson ehf., segir
að ýmsu þurfi að huga að þegar
innrétta á fyrstu íbúð. Mikilvægt
sé að fá góðar leiðbeiningar um
efnisval sem standist bygginga
reglugerðir.
Vel þjálfað starfsfólk Birgisson
býr að áratuga reynslu og í versl
uninni er að finna gott úrval gólf
efna og innihurða.
„Fólk þarf að fá réttar upp
lýsingar svo það geti tekið rétta
ákvörðun. Við leggjum mikla
áherslu á að sérþjálfa okkar starfs
fólk svo það geti svarað öllum
spurningum er varða gólfefni og
undirlag og hvernig á að leggja á
gólfið. Sölumennirnir okkar hafa
margir verið hjá okkur í yfir tutt
ugu ár og búa yfir gríðarlegri
reynslu. Við erum afar stoltir af
okkar fólki,“ segir Egill.
Mikilvægt að vanda undirbúning
„Grundvallaratriði þegar endur
nýja á gólf og annað í eldri húsum
er góður undirbúningur. Val á
gólfefnum setur grunninn fyrir
allt annað í rýminu, hvers konar
húsgögn fara við og fleira,“ segir
Egill.
Á heimasíðu Birgisson er að
finna vefslóðir sem gagnlegt er
að skoða, meðal annars inn á Pint
erest þar sem hægt er að fá hug
myndir og gera sér betur grein
fyrir draumaíbúðinni.
„Fólk kemur svo til okkar með
sínar hugmyndir og við aðstoð
um og veitum ráðleggingar. Við
lánum prufur heim til að máta og
gerum svo tilboð. Einnig getum
við haft milligöngu um tilboð frá
iðnaðarmönnum ef þess er óskað.
Allar vörur, parket og hurðir eru
til á lager hjá okkur og afgreiðslu
tíminn stuttur. Við seljum einung
is vörur frá þekktum og virtum
framleiðendum, þ.e. innihurðir frá
Ringo í Þýskalandi sem eru búnar
að vera á markaði í 25 ár og hafa
sannað ágæti sitt. Harð parketið
okkar kemur frá KRONOTEX í
þýskalandi og KRONOSWISS í
Swiss. Viðarparketið okkar er frá
Kährs í Svíþjóð sem er einn virt
asti viðarparketframleiðandi í Evr
ópu. Öll okkar vara er umhverfis
vottuð.
Rétt undirlag
„Það er mjög mikilvægt að velja
rétt parketundirlag sem stenst
hljóðeinangrunarstaðla og upp
fyllir byggingareglugerðir. Það vill
enginn lenda í því að nágranninn
banki upp á vegna hávaða,“ segir
Egill.
„Þegar fólk er að kaupa eldra
húsnæði þarf í fyrsta lagi að ganga
úr skugga um að gólfin séu lárétt.
Oft þarf að flota gólfin eða slípa.
Ef lagt er ofan á hitalögn í gólfi
þarf fyrst að leggja þolplast og
ofan á það fer svo undirlagið. Það á
einnig við um gólf á jarðhæð. Þá er
ekki nóg að huga að hljóðdempun
milli hæða, einnig þarf að huga að
hljóðvist upp í rýmið. Undir harð
parket þarf að velja besta undirlag
sem völ er á með gott hljóðísog.“
Plankaparketið vinsælast
Plankaparketið er vinsælast, það
er bæði til sem harðparket og við
arparket.
„Í harðparketi er mikið úrval
af litum og eru gráir og grábrún
ir tónar vinsælir í dag. Harðpark
etið er gífurlega vinsælt hjá yngri
kaupendum, bæði er það á góðu
verði en einnig er harðparket
ið afar högg og rispuþolið. Það
hentar nútímafjölskyldum með
ung börn þar sem ekki þarf að ótt
ast að leikföng rispi gólfið eða að
eitthvað hellist niður. Háir hælar
vinna ekkert á því heldur. Íbúðin
er fjölskylduvæn með harðparket
sem gólfefni,“ segir Egill. Hlýleg
heit fylgi þó viðargólfum og eru
burstaðir og olíubornir plankar
vinsælir. Einnig slípað og olíu
borið, mattlakkað og silkimatt.
„Það eru sömu litatónar vinsæl
ir í parketinu eins og í harðpark
etinu, gráir tónar. Þá er hvíttuð,
reykt eik vinsæl og einnig hvíttuð
eik og askur en með því að hvítta
viðinn gulnar hann ekki,“ heldur
Egill áfram.
Vínilparket er nýjung, það er
afar hljóðlátt og hentar til dæmis
mjög vel þegar endurnýja þarf
eldra gólf. Vínilparketið má ein
faldlega líma yfir gamla parketið.
Stærri gólfflísar vinsælar
„Gólfflísar eru að stækka og í dag
eru 60x60 sm gólfflísar vinsælar
og einnig 80x80 sm. Helstu litir eru
gráir og grábrúnir tónar og „base“
litað. Við bjóðum upp á mikið úrval
bæði frá Ítalíu og Þýskalandi.
Helstu birgjar okkar eru Florim
á Ítalíu og AgrobBuchtal í Þýska
landi. Mikilvægt er að fá góðar
upplýsingar með flísalögn á vot
rýmum, þar skiptir undirbúning
urinn miklu máli,“ segir Egill.
Gott úrval innihurða
á góðu verði
„Við eigum mikið úrval af inni
hurðum og þar er hvíti liturinn
vinsælastur. Ef eldri íbúð er end
urnýjuð gerir það mikið fyrir hús
næðið að setja nýjar hurðir. Það
kostar minna en fólk heldur að
skipta um innihurðir en með ísetn
ingu getur það kostað á bilinu 50
til 60 þúsund krónur á hvert hurð
argat. Þá vorum við að bæta mikið
við úrvalið hjá okkur af hurðarhún
um, svörtum og gylltum og ýmiss
konar fallegri hönnun. Svartir
húnar fara til dæmis vel á hvítum
hurðum og tóna við gráu tónana
sem eru vinsælastir í harðparket
inu,“ segir Egill.
Glæsilegir sýningarsalir eru í versl-
un Birgisson að Ármúla 8. Nánari
upplýsingar á www.birgisson.is
Harðparketið vinsælt hjá yngra fólki
Hentar nútímafjölskyldum með ung börn þar sem ekki þarf að óttast að leikföng rispi gólfið. Háir hælar vinna ekkert á því heldur.
„Fólk þarf að fá réttar upplýsingar svo það geti tekið rétta ákvörðun. Við leggjum mikla áherslu á að sérþjálfa okkar starfsfólk svo það geti svarað öllum spurningum,“
segir Egill Arnar Birgisson, einn af eigendum Birgisson. myNd/GVA
„Allar vörur, parket og hurðir eru til á lager hjá okkur og
afgreiðslutíminn stuttur. Við seljum einungis vörur frá
þekktum og virtum framleiðendum og öll okkar vara er
umhverfisvæn og merkt Bláa englinum.“
Plankaparket er vinsælast og í gráum og grábrúnum litatónum.
Í verslun Birgisson er mikið úrval hurðarhúna.
FyrstA HEimilið Kynningarblað GólFEFNi
3. mars 20176
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-D
A
E
4
1
D
1
3
-D
9
A
8
1
D
1
3
-D
8
6
C
1
D
1
3
-D
7
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K