Fréttablaðið - 03.03.2017, Síða 32

Fréttablaðið - 03.03.2017, Síða 32
Áratuga þekking, sérhæfð þjónusta og glæsilegt úrval Egill Arnar Birgisson, fram­ kvæmdastjóri Birgisson ehf., segir að ýmsu þurfi að huga að þegar innrétta á fyrstu íbúð. Mikilvægt sé að fá góðar leiðbeiningar um efnisval sem standist bygginga­ reglugerðir. Vel þjálfað starfsfólk Birgisson býr að áratuga reynslu og í versl­ uninni er að finna gott úrval gólf­ efna og innihurða. „Fólk þarf að fá réttar upp­ lýsingar svo það geti tekið rétta ákvörðun. Við leggjum mikla áherslu á að sérþjálfa okkar starfs­ fólk svo það geti svarað öllum spurningum er varða gólfefni og undirlag og hvernig á að leggja á gólfið. Sölumennirnir okkar hafa margir verið hjá okkur í yfir tutt­ ugu ár og búa yfir gríðarlegri reynslu. Við erum afar stoltir af okkar fólki,“ segir Egill. Mikilvægt að vanda undirbúning „Grundvallaratriði þegar endur­ nýja á gólf og annað í eldri húsum er góður undirbúningur. Val á gólfefnum setur grunninn fyrir allt annað í rýminu, hvers konar húsgögn fara við og fleira,“ segir Egill. Á heimasíðu Birgisson er að finna vefslóðir sem gagnlegt er að skoða, meðal annars inn á Pint­ erest þar sem hægt er að fá hug­ myndir og gera sér betur grein fyrir draumaíbúðinni. „Fólk kemur svo til okkar með sínar hugmyndir og við aðstoð­ um og veitum ráðleggingar. Við lánum prufur heim til að máta og gerum svo tilboð. Einnig getum við haft milligöngu um tilboð frá iðnaðarmönnum ef þess er óskað. Allar vörur, parket og hurðir eru til á lager hjá okkur og afgreiðslu­ tíminn stuttur. Við seljum einung­ is vörur frá þekktum og virtum framleiðendum, þ.e. innihurðir frá Ringo í Þýskalandi sem eru búnar að vera á markaði í 25 ár og hafa sannað ágæti sitt. Harð parketið okkar kemur frá KRONOTEX í þýskalandi og KRONOSWISS í Swiss. Viðarparketið okkar er frá Kährs í Svíþjóð sem er einn virt­ asti viðarparketframleiðandi í Evr­ ópu. Öll okkar vara er umhverfis­ vottuð. Rétt undirlag „Það er mjög mikilvægt að velja rétt parketundirlag sem stenst hljóðeinangrunarstaðla og upp­ fyllir byggingareglugerðir. Það vill enginn lenda í því að nágranninn banki upp á vegna hávaða,“ segir Egill. „Þegar fólk er að kaupa eldra húsnæði þarf í fyrsta lagi að ganga úr skugga um að gólfin séu lárétt. Oft þarf að flota gólfin eða slípa. Ef lagt er ofan á hitalögn í gólfi þarf fyrst að leggja þolplast og ofan á það fer svo undirlagið. Það á einnig við um gólf á jarðhæð. Þá er ekki nóg að huga að hljóðdempun milli hæða, einnig þarf að huga að hljóðvist upp í rýmið. Undir harð­ parket þarf að velja besta undirlag sem völ er á með gott hljóðísog.“ Plankaparketið vinsælast Plankaparketið er vinsælast, það er bæði til sem harðparket og við­ arparket. „Í harðparketi er mikið úrval af litum og eru gráir og grábrún­ ir tónar vinsælir í dag. Harðpark­ etið er gífurlega vinsælt hjá yngri kaupendum, bæði er það á góðu verði en einnig er harðparket­ ið afar högg­ og rispuþolið. Það hentar nútímafjölskyldum með ung börn þar sem ekki þarf að ótt­ ast að leikföng rispi gólfið eða að eitthvað hellist niður. Háir hælar vinna ekkert á því heldur. Íbúðin er fjölskylduvæn með harðparket sem gólfefni,“ segir Egill. Hlýleg­ heit fylgi þó viðargólfum og eru burstaðir og olíubornir plankar vinsælir. Einnig slípað og olíu­ borið, mattlakkað og silkimatt. „Það eru sömu litatónar vinsæl­ ir í parketinu eins og í harðpark­ etinu, gráir tónar. Þá er hvíttuð, reykt eik vinsæl og einnig hvíttuð eik og askur en með því að hvítta viðinn gulnar hann ekki,“ heldur Egill áfram. Vínilparket er nýjung, það er afar hljóðlátt og hentar til dæmis mjög vel þegar endurnýja þarf eldra gólf. Vínilparketið má ein­ faldlega líma yfir gamla parketið. Stærri gólfflísar vinsælar „Gólfflísar eru að stækka og í dag eru 60x60 sm gólfflísar vinsælar og einnig 80x80 sm. Helstu litir eru gráir og grábrúnir tónar og „base“­ litað. Við bjóðum upp á mikið úrval bæði frá Ítalíu og Þýskalandi. Helstu birgjar okkar eru Florim á Ítalíu og Agrob­Buchtal í Þýska­ landi. Mikilvægt er að fá góðar upplýsingar með flísalögn á vot­ rýmum, þar skiptir undirbúning­ urinn miklu máli,“ segir Egill. Gott úrval innihurða á góðu verði „Við eigum mikið úrval af inni­ hurðum og þar er hvíti liturinn vinsælastur. Ef eldri íbúð er end­ urnýjuð gerir það mikið fyrir hús­ næðið að setja nýjar hurðir. Það kostar minna en fólk heldur að skipta um innihurðir en með ísetn­ ingu getur það kostað á bilinu 50 til 60 þúsund krónur á hvert hurð­ argat. Þá vorum við að bæta mikið við úrvalið hjá okkur af hurðarhún­ um, svörtum og gylltum og ýmiss konar fallegri hönnun. Svartir húnar fara til dæmis vel á hvítum hurðum og tóna við gráu tónana sem eru vinsælastir í harðparket­ inu,“ segir Egill. Glæsilegir sýningarsalir eru í versl- un Birgisson að Ármúla 8. Nánari upplýsingar á www.birgisson.is Harðparketið vinsælt hjá yngra fólki Hentar nútímafjölskyldum með ung börn þar sem ekki þarf að óttast að leikföng rispi gólfið. Háir hælar vinna ekkert á því heldur. „Fólk þarf að fá réttar upplýsingar svo það geti tekið rétta ákvörðun. Við leggjum mikla áherslu á að sérþjálfa okkar starfsfólk svo það geti svarað öllum spurningum,“ segir Egill Arnar Birgisson, einn af eigendum Birgisson. myNd/GVA „Allar vörur, parket og hurðir eru til á lager hjá okkur og afgreiðslutíminn stuttur. Við seljum einungis vörur frá þekktum og virtum framleiðendum og öll okkar vara er umhverfisvæn og merkt Bláa englinum.“ Plankaparket er vinsælast og í gráum og grábrúnum litatónum. Í verslun Birgisson er mikið úrval hurðarhúna. FyrstA HEimilið Kynningarblað GólFEFNi 3. mars 20176 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :4 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 3 -D A E 4 1 D 1 3 -D 9 A 8 1 D 1 3 -D 8 6 C 1 D 1 3 -D 7 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 2 3 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.