Fréttablaðið - 03.03.2017, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 03.03.2017, Blaðsíða 48
Það er Því sérstak- lega gaman fyrir mig að vinna með sýningar- stjóra sem fær frítt spil til Þess að velja úr mínum myndum út frá sinni sýn. Einar Falur Ingólfsson svona eins og við gerum öll og með Því fannst mér ég hafa komist nær Því að sanna að við erum öll dæmd til Þess að vera eilíf. Sigtryggur Bjarni Baldursson Ketilhús er aðalvett-vangur Listasafns Akureyrar um þessar mundir og á morgun verða opnaðar þar tvær einkar áhuga- verðar sýningar tveggja ólíkra listamanna, þeirra Einars Fals Ing- ólfssonar og Sigtryggs Bjarna Bald- urssonar. Sýningin Griðastaðir er úrval ljós- myndaverka úr fjórum tengdum seríum sem Einar Falur hefur unnið að á undanförnum áratug. En Einar Falur segir að þó svo þeir Sigtryggur hafi verið valdir til þess að sýna í húsinu á sama tíma séu á ferðinni tvær einkasýningar. „Við erum á sitthvorri hæðinni, ég er á svölunum sem kallað er, en Sigtryggur niðri í salnum. Tvær einkasýningar en fólk getur gengið á milli í sama rýminu enda er Ketilhúsið einstaklega fal- legt hús með mikla hæð sem býður upp á þessa skemmtilegu samteng- ingu.“ Úr fjórum seríum Sýning Einars Fals kallast Griða- staðir og eru verkin valin inn af svissneska sýningarstjóranum Christ oph Kern en Einar Falur segir að upphaflega hafi Kern unnið þetta fyrir sýningu í Basel 2014. „Fremur en að velja eitt af þeim verkefnum sem ég hef verið að vinna að á undanförnum árum valdi Kern að taka saman úrval úr fjórum af mínum langtímaverkefnum. Hann vildi skapa sína heild út frá þessum fjórum seríum sem á sama tíma gæfi einhvers konar heildarmynd af þeirri veröld sem ég hrærist í og mínum áhugasviðum innan ljós- myndunar. Það má segja að þar megi finna snefil af dagbók, sögu- legum tengingum og svona marg- laga nálgun minni við mitt umhverfi sem byggir kannski einkum á bók- menntum og arfleiðinni. Þetta eru bæði persónuleg verkefni þar sem ég hef verið að skrásetja mitt eigið líf og líka verkefnum eins og þar sem ég hef verið að vinna út frá myndum W.G. Collingwoods. En mér finnst sjálfum gaman að sjá hvaða leið Kern valdi. Það er líka þarna tals- vert af myndum úr seríu sem ég kalla Skjól sem fjallar um hvernig við Íslendingar sköpum okkur, og húsdýrum okkar, rými inni í þessari oft á tíðum erfiðu náttúru okkar.“ Ómenguð sýn Einar Falur sem hefur einnig verið með töluvert af portrettmyndum í gegnum tíðina, einkum í menning- arsögulegu samhengi, segir að Kern hafi alveg sleppt þeim þætti. „Hans val snýst meira um landið og upplif- un mína af landinu. Elsta serían sem hann sækir í er frá 2007 þar sem ég var að vinna með æskuslóðir mínar í Keflavík og Reykjanesbrautina. Þannig að þetta er svona manngert landslag sem Kern tekur svo áfram sem ákveðinn útgangspunkt. Hvern- ig ég skráset manngert landslag.“ Einar Falur segir að hann hafi ekki haft nein afskipti af vali Kerns. „Mér fannst gaman að sjá hvernig hann nálgaðist þetta, ekki síst með tilliti þess að hann hefur aldrei komið til Íslands. Þannig að hann skoðar mína sýn á landið alveg ómengaða af hans eigin upplifun og það finnst mér mjög áhugavert. Ég hef á undanförnum árum verið að vinna að mjög stórum verkefnum þar sem ég er í senn listamaðurinn og sýningarstjórinn. Það er því sér- staklega gaman fyrir mig að vinna með sýningarstjóra sem fær frítt spil til þess að velja úr mínum myndum út frá sinni sýn. Fær að skapa úr því sína heild og þannig finnst mér þessi sýning Kern vera,“ segir Einar Falur. Öll eilíf Verkin á sýningu Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar, 360 dagar og mál- verk, eru af ólíkum toga en lista- maðurinn segir að sýningin sé eiginlega þrískipt. „Í fyrsta lagi er ég með mjög stórt ljósmyndaverk sem samanstendur af um það bil áttatíu ljósmyndum og það var upphaflega gert fyrir Listvinafélag Hallgríms- kirkju, í tilefni af 400 ára afmæli Hall- gríms. Þetta er verk sem endaði sem ljósmyndaverk en átti upphaflega að vera vatnslitaverk. Ég ætlaði að túlka eiginhandarrit Hallgríms með vatns- litum en ég bjó í Brighton á þessum tíma. Það fór þannig að í stað þess að mála myndir þá lét ég náttúruna um að gera vatnslitaverk með því að ég skildi vatnslitaörk eftir í fallegum bakgarði heimilis míns. Garðurinn minnti á Getsemane eða Edens- garð, ættaðan úr Passíusálmunum, og svo lét ég náttúrunni það eftir að mála þetta með veðri og vindum á 360 dögum. Að því loknu var Hall- grímur eiginlega alveg horfinn en á þeim tíma þá breyttist hann í pöddu og svo í mold og svo tré og loks í epli. Svona eins og við gerum öll og með því fannst mér ég hafa komist nær því að sanna að við erum öll dæmd til þess að vera eilíf. Bæði gegnum hið efnislega og í því sem við gerum um ævina og þannig er Hallgrímur ein- staklega eilífur og allt um lykjandi. Þetta er í fyrsta skipti sem ég sýni þetta 80 ljósmynda verk utan Hall- grímskirkju en mig langaði mikið til þess að sýna þetta í hlutlausara rými og kanna þetta í almennu sýningar- rými.“ Tíminn og vatnið Sigtryggur segir að það sé kannski óvenju flókið konsept á bak við þær myndir sem hann er að sýna að þessu sinni. Önnur myndaröðin kallast Tíminn og vatnið og þar eru á ferðinni gvassmyndir. „Heitið er sótt í það að hér eru á ferðinni litirnir hans Karls Kvarans, sem var okkar þekktasti gvassmálari, en mér áskotnuðust þessir litir. Þeir voru alveg uppþornaðir og fyrir flestum ónýtir. En ég ákvað að gera tilraun með að frelsa þá og koma þeim á pappír en eina leiðin til þess reynd- ist vera að leggja þá í bleyti og setja þá svo í matvinnsluvél. Elstu litirnir þarna eru úr verksmiðju sem hætti starfsemi árið 1959 þannig að það var kannski ekki að furða að þetta væri orðið þurrt. En að endingu er ég með verk, sem fólk sem þekkir mín verk er vel kunnugt, en það eru olíumálverk af blikandi hafflötum. En það eru bara málverk og það þarf ekki að útskýra það neitt nánar,“ segir Sigtryggur Bjarni léttur. Sýningar þeirra félaga verða opnaðar í Ketilhúsinu á morg- un kl. 15, standa báðar til sunnudags- ins 16. apríl og er aðgangur ókeypis. Reykjanesbrautin, Collingwood, Getsemane og Eden á morgun opna þeir einar falur ingólfs- son og sigtryggur Bjarni Baldvinsson einkasýningar í ketilhúsi listasafns akureyrar og þar kennir ýmissa for- vitnilegra grasa úr ólíkum áttum. Einar Falur Ingólfsson og Sigtryggur Bjarni Baldursson í óðaönn að koma upp sýningum sínum í Ketilhúsi á Akureyri. Sigtryggur Bjarni Baldursson. Merlandi Skagafjörður V, 2016. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 3 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s T U D a G U r28 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð menning 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :4 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 3 -D A E 4 1 D 1 3 -D 9 A 8 1 D 1 3 -D 8 6 C 1 D 1 3 -D 7 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 6 4 s _ 2 3 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.