Fréttablaðið - 03.03.2017, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 03.03.2017, Blaðsíða 36
 Svo eru ýmis atriði sem er gott að hafa í huga á smærri heimilum, eins og að nota nett húsgögn, jafnvel saman- brjótanleg og nýta vegg- plássið vel. Birna Magnea Bogadóttir „Ungt fólk sem er að hefja búskap og sem hefur ekki úr miklu plássi að spila hefur sérstaklega mikið hingað að sækja,“ segir Birna Magnea Bogadóttir, sölustjóri IKEA. „IKEA hefur alltaf lagt áherslu á að bjóða upp á vel hann­ aðan gæðahúsbúnað sem hentar þessum hópi. Við leyfum okkur að kalla okkur sérfræðinga í smærri vistarverum þar sem þarf að nýta hvern blett sem best.“ Birna nefnir eldhúsið sem dæmi; þar sé oft ekki mikið pláss, en í IKEA fáist úrval af borðum og stólum sem hægt sé að fella saman og spara þannig pláss þegar þörf krefji. Eins fáist nettar baðinn­ réttingar sem taki lítið pláss en nýtast mjög vel. „Svo eru ýmis at­ riði sem er gott að hafa í huga á smærri heimilum, eins og að nota nett húsgögn, jafnvel samanbrjót­ anleg og nýta veggplássið vel. Það getur til dæmis munað heilmiklu að láta hillur og skápa ná alveg upp í loft eða koma hirslum fyrir undir rúmum og skápum,“ útskýr­ ir Birna. Litlu hlutirnir leika stórt hlutverk Birna segir ekki óalgengt að sjá fólk með málbandið í versluninni þegar verið er að finna stærri húsmuni sem þurfi að koma fyrir í litlu rými. „Svo þegar nauðsyn­ legustu húsgögnin eru komin, þá er gaman að leika sér svolít­ ið; skreyta með lýsingu og vegg­ skrauti og leyfa litum og vefn­ aðarvöru að setja punktinn yfir i­ið.“ IKEA hafi gert mikið af því undanfarin misseri að vinna með þekktum hönnuðum að nýjum línum sem fáist í takmarkaðan tíma. Þær séu oft svolítið djarfari en almennt gerist hjá fyrirtæk­ inu og þeim hafi verið vel tekið af þeim hópi viðskiptavina sem hefur auga fyrir hönnun. „Snjallar smá­ hirslur hafa líka verið vinsælar. Nýja EKET línan er dæmi um það, enda á góðu verði og hillurnar fást í nokkrum stærðum og litum. Þeim má svo raða saman eftir smekk og aðstæðum.“ Ungt fólk meðvitaðra um umhverfisvernd Úrvalið af smávöru virðist enda­ laust í IKEA; skreytingar, spegl­ ar, kassar og smáhirslur, vefnað­ arvara og annað sem gerir heimil­ ið notalegt og persónulegt. „Í raun er hægt að ganga hér inn og fá nánast allt í einni ferð. Allt frá innréttingum og heimil­ istækjum til púða og pottablóma. Það er meira að segja hægt að kaupa í matinn á leiðinni út,“ segir Birna brosandi. „Þegar kemur að hópi yngri viðskiptavina, þá tökum við líka eftir því að hann hefur mikinn áhuga á að gera heimilið notalegt og er mjög meðvitaður. „Ungu fólki í dag er virkilega um­ hugað um samfélagsmál og hefur til dæmis mun sterkari skoðan­ ir á umhverfisvernd en margir sem eldri eru. Það er góðs viti, og við getum stolt sinnt þessum hópi með öflugri samfélagsábyrgð og vörum sem teljast umhverfisvæn­ ar, bæði hvað framleiðslu og nota­ gildi varðar.“ Í því samhengi megi nefna sjálfbærari bómull, sem framleidd er á umhverfisvænni hátt, LED perur sem spari orku og svo auðvitað flokkunarfötur og ílát sem einfaldi endurvinnslu á heimilinu. „Það er óhætt að segja að við leggjum okkur fram um að sinna ungu fólki vel í versluninni. Þar eru uppsett heimili sem gefa hugmyndir um hvernig hægt er að koma sér fyrir þar sem pláss er af skornum skammti, vöruúr­ valið er hannað með það í huga og það ættu allir sem eru að innrétta fyrsta heimilið að finna snjallar hugmyndir hjá okkur.“ Sérfræðingar í smærri vistarverum Eins spennandi og það er að flytja að heiman, þá getur það líka virst risavaxið verkefni sem krefst bæði skipulagningar og fjárútláta. Ungt fólk á sínu fyrsta heimili þarf að vera útsjónarsamt, bæði hvað pláss og peninga varðar. Útkoman getur engu að síður orðið skemmtileg. Birna Magnea, sölustjóri, segir IKEA leggja sig fram um að sinna vel viðskipta- vinum sem séu að hefja búskap. Fatahengi sómir sér vel hvort sem er í anddyri eða svefnherbergi og plássið er full- nýtt með smáhirslum. Baðinnréttingar IKEA eru hannaðar fyrir jafnvel smæstu baðherbergi. Borð sem fella má saman eða minnka og stækka eftir þörfum henta sérstak- lega vel þar sem plássið er af skornum skammti. Litlu hlutirnir skipta miklu máli þegar kemur að því að skapa notalega stemningu á heimilinu. Með því að nýta veggi undir hirslur og áhöld má koma heilu stóreldhúsi fyrir á bara nokkrum fermetrum. FyrStA hEIMILIð Kynningarblað húSgögn 3. mars 201710 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :4 6 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 3 -F 3 9 4 1 D 1 3 -F 2 5 8 1 D 1 3 -F 1 1 C 1 D 1 3 -E F E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 2 3 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.