Fréttablaðið - 03.03.2017, Blaðsíða 36
Svo eru ýmis atriði
sem er gott að hafa í
huga á smærri heimilum,
eins og að nota nett
húsgögn, jafnvel saman-
brjótanleg og nýta vegg-
plássið vel.
Birna Magnea Bogadóttir
„Ungt fólk sem er að hefja búskap
og sem hefur ekki úr miklu plássi
að spila hefur sérstaklega mikið
hingað að sækja,“ segir Birna
Magnea Bogadóttir, sölustjóri
IKEA. „IKEA hefur alltaf lagt
áherslu á að bjóða upp á vel hann
aðan gæðahúsbúnað sem hentar
þessum hópi. Við leyfum okkur að
kalla okkur sérfræðinga í smærri
vistarverum þar sem þarf að nýta
hvern blett sem best.“
Birna nefnir eldhúsið sem
dæmi; þar sé oft ekki mikið pláss,
en í IKEA fáist úrval af borðum og
stólum sem hægt sé að fella saman
og spara þannig pláss þegar þörf
krefji. Eins fáist nettar baðinn
réttingar sem taki lítið pláss en
nýtast mjög vel. „Svo eru ýmis at
riði sem er gott að hafa í huga á
smærri heimilum, eins og að nota
nett húsgögn, jafnvel samanbrjót
anleg og nýta veggplássið vel. Það
getur til dæmis munað heilmiklu
að láta hillur og skápa ná alveg
upp í loft eða koma hirslum fyrir
undir rúmum og skápum,“ útskýr
ir Birna.
Litlu hlutirnir leika stórt hlutverk
Birna segir ekki óalgengt að sjá
fólk með málbandið í versluninni
þegar verið er að finna stærri
húsmuni sem þurfi að koma fyrir
í litlu rými. „Svo þegar nauðsyn
legustu húsgögnin eru komin,
þá er gaman að leika sér svolít
ið; skreyta með lýsingu og vegg
skrauti og leyfa litum og vefn
aðarvöru að setja punktinn yfir
iið.“ IKEA hafi gert mikið af því
undanfarin misseri að vinna með
þekktum hönnuðum að nýjum
línum sem fáist í takmarkaðan
tíma. Þær séu oft svolítið djarfari
en almennt gerist hjá fyrirtæk
inu og þeim hafi verið vel tekið af
þeim hópi viðskiptavina sem hefur
auga fyrir hönnun. „Snjallar smá
hirslur hafa líka verið vinsælar.
Nýja EKET línan er dæmi um það,
enda á góðu verði og hillurnar fást
í nokkrum stærðum og litum. Þeim
má svo raða saman eftir smekk og
aðstæðum.“
Ungt fólk meðvitaðra um
umhverfisvernd
Úrvalið af smávöru virðist enda
laust í IKEA; skreytingar, spegl
ar, kassar og smáhirslur, vefnað
arvara og annað sem gerir heimil
ið notalegt og persónulegt.
„Í raun er hægt að ganga hér
inn og fá nánast allt í einni ferð.
Allt frá innréttingum og heimil
istækjum til púða og pottablóma.
Það er meira að segja hægt að
kaupa í matinn á leiðinni út,“ segir
Birna brosandi. „Þegar kemur að
hópi yngri viðskiptavina, þá tökum
við líka eftir því að hann hefur
mikinn áhuga á að gera heimilið
notalegt og er mjög meðvitaður.
„Ungu fólki í dag er virkilega um
hugað um samfélagsmál og hefur
til dæmis mun sterkari skoðan
ir á umhverfisvernd en margir
sem eldri eru. Það er góðs viti, og
við getum stolt sinnt þessum hópi
með öflugri samfélagsábyrgð og
vörum sem teljast umhverfisvæn
ar, bæði hvað framleiðslu og nota
gildi varðar.“ Í því samhengi megi
nefna sjálfbærari bómull, sem
framleidd er á umhverfisvænni
hátt, LED perur sem spari orku
og svo auðvitað flokkunarfötur og
ílát sem einfaldi endurvinnslu á
heimilinu. „Það er óhætt að segja
að við leggjum okkur fram um að
sinna ungu fólki vel í versluninni.
Þar eru uppsett heimili sem gefa
hugmyndir um hvernig hægt er
að koma sér fyrir þar sem pláss
er af skornum skammti, vöruúr
valið er hannað með það í huga og
það ættu allir sem eru að innrétta
fyrsta heimilið að finna snjallar
hugmyndir hjá okkur.“
Sérfræðingar í smærri vistarverum
Eins spennandi og það er að flytja að heiman, þá getur það líka virst risavaxið verkefni sem krefst bæði skipulagningar og fjárútláta. Ungt
fólk á sínu fyrsta heimili þarf að vera útsjónarsamt, bæði hvað pláss og peninga varðar. Útkoman getur engu að síður orðið skemmtileg.
Birna Magnea, sölustjóri, segir IKEA leggja sig fram um að sinna vel viðskipta-
vinum sem séu að hefja búskap.
Fatahengi sómir sér vel hvort sem er í anddyri eða svefnherbergi og plássið er full-
nýtt með smáhirslum.
Baðinnréttingar IKEA eru hannaðar
fyrir jafnvel smæstu baðherbergi.
Borð sem fella má saman eða minnka
og stækka eftir þörfum henta sérstak-
lega vel þar sem plássið er af skornum
skammti.
Litlu hlutirnir skipta miklu máli þegar kemur að því að skapa notalega stemningu á
heimilinu.
Með því að nýta veggi undir hirslur og áhöld má koma heilu stóreldhúsi fyrir á bara nokkrum fermetrum.
FyrStA hEIMILIð Kynningarblað húSgögn
3. mars 201710
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-F
3
9
4
1
D
1
3
-F
2
5
8
1
D
1
3
-F
1
1
C
1
D
1
3
-E
F
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K