Fréttablaðið - 03.03.2017, Blaðsíða 26
Elínborg fékk ársleyfi frá störfum
sem prestur í Stafholti í fyrra og
vinnur nú að meistararitgerð um
pílagrímaguðfræði og -ferðir.
„Pílagrímsgöngur hafa verið
stundaðar í öllum trúarbrögð-
um frá örófi alda og var rík hefð
í kristinni trú á miðöldum að
ganga á helga staði. Í Evrópu var
helst gengið til Rómar, Santiago
De Compostela á Spáni og Niðar-
óss í Noregi,“ segir Elínborg en
fólk hafði mismunandi ástæður
fyrir því að leggja slíka göngu á
sig. „Sumir voru í ævintýraleit,
aðrir vildu efla sig í trúnni. Marg-
ir trúðu að helgir staðir byggju
yfir lækningamætti og fóru þang-
að í von um að geta læknast af
sjúkdómum. Síðan var farið í yfir-
bótargöngu en það voru oft menn
sem höfðu brotið af sér og hétu að
ganga á ákveðinn stað til þess að
snúa við blaðinu.“
Spegill af lífinu Sjálfu
Pílagrímsgöngur lögðust nær af
en í kringum síðustu aldamót jókst
áhugi á þeim og þá helst Jakobs-
veginum. „Það var eins og fólk
hefði uppgötvað fjársjóð og sá
hvað þetta er ótrúlega magnað.
Pílagrímsganga er mjög heilandi
og breytir jafnvel lífi fólks. Líkt og
áður er fólk í ævintýraleit, aðrir
að vinna úr sorg eða erfiðri lífs-
reynslu, sumir standa á krossgöt-
um og vilja taka nýja stefnu í líf-
inu. Svo er fólk sem upplifir að það
er komið í öngstræti og verður að
finna nýja leið til að lifa.“
Flestir ganga frá Frakklandi
yfir Pírenafjöllin og til Santi-
ago De Compostela, rúma 800
kílómetra. Elínborg segir göng-
una eins og spegilmynd af lífinu
sjálfu, frá vöggu til grafar. „Fólk
upplifir magnað, kærleiksríkt sam-
félag þar sem aðrir vilja hjálpa því
að komast á leiðarenda og ég hef
upplifað það sjálf. Í nútímalífi er
mikil streita, margir brenna út,
fólk er undir gríðarlegu álagi
og stundataflan svo stíf
að margir sjá ekki út
úr augum. Á svona
göngu sér fólk
hvað skiptir raun-
verulegu máli í
lífinu. Það geng-
ur frá ákveðnum
lífsstíl og finnur
merkingu og til-
gang,“ útskýr-
ir Elínborg sem
hefur gengið fyrstu
tvo áfanga Jakobsveg-
arins. „Ég hef líka gengið
gamla pílagrímsleið á Jótlandi
sem heitir Hervejen, um Ólafsveg-
inn í Noregi, hluta af gömlu píla-
grímsleiðinni Via Francigena á Ít-
alíu sem liggur til Rómar. Evrópa
er í raun sundurskorin af gömlum
pílagrímsleiðum.“
Stikuðu leiðina
Í sumar stendur Elínborg að píla-
grímsgöngu á milli Bæjar í Borg-
arfirði og Skálholts í sjöunda sinn.
„Ég fékk kollega mína hér í hérað-
inu þá sr. Geir Waage og sr. Flóka
Kristinsson til að standa með mér
fyrir gönguferðum á milli kirkna
um allt héraðið fyrir nokkrum
árum og er skemmst frá því að
segja að þessar göngur urðu mjög
vinsælar. Það tók nokkra sunnu-
daga. Svo varð úr að við gengum
með hóp úr Borgarfirði alla leið í
Skálholt og það höfum við gert und-
anfarin ár. Frá 2004 hefur verið
farin pílagrímsganga frá Þingvöll-
um á Skálholtshátíð. Okkur hafði
um skeið dreymt um að lengja
göngurnar, en við höfðum þessa
erlendu fyrirmynd. Við stofn-
uðum félagið Pílagrímar, ásamt
Huldu Guðmundsdóttur, guðfræð-
ingi og kirkjubónda á Fitjum, og
félagsskapurinn hefur staðið fyrir
fræðslu um pílagrímsferðir og ráð-
stefnu um pílagrímsguðfræði. Auk
þess höfum við sett upp merkingar
og stikað leiðina frá Bæ í Skálholt
svo fólk geti gengið þessa leið
á eigin vegum. Við höfum
ekki verið ein í þessu,
við höfum notið
ýmissa styrkja og
velvildar góðra
manna.“
Elínborg hefur
einnig verið í sam-
starfi við Margréti
Njarðvík hjá ferðaskrif-
stofunni Mundo og Ferðafélag Ís-
lands. „Í vetur höfum við Margrét
í Mundo verið að undirbúa píla-
gríma fyrir Jakobsveginn og geng-
ið eina dagleið í senn á milli Bæjar
og Skálholts. Í sumar mun Píla-
grímafélagið í samstarfi við Ferða-
félag Íslands ganga alla leiðina á
sex dögum. Við blöndum saman
útivist og hreyfingu, sem gerir
öllum gott, og andlegri rækt.“
Elínborg segir það ákveðinn
lífsstíl að vera pílagrímur í nútím-
anum. „Þetta snýst um að efla lík-
ama og anda, einfalda líf sitt, vera
nægjusamur og lifa hófstilltu lífi
í sátt við náttúruna og umhverfið.
Lifa góðu lífi og vera almennileg
manneskja.“
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Leiðin frá Bæ í Borgarfirði að Skálholti er einkar fögur.
Á pílagrímsgöngu sér fólk hvað skiptir máli í lífinu, að sögn Elínborgar.
Upphafsstaður göngunnar að sumri til.
Elínborg hefur
sérhæft sig
í pílagríma
guðfræði.
gengið á milli helgra Staða
Elínborg Sturludóttir prestur hefur sérhæft sig í pílagrímsfræðum. Hún stendur að sex daga pílagrímagöngu milli
Bæjar í Borgarfirði og Skálholts í sumar. Pílagrímslíf snýst um að vera almennilega manneskja, að sögn Elínborgar.
20% afsl.
af öllum buxum
og toppum
2 fyrir 1
af ilmkertum
KRINGLU
KAST
PEYSA
4.495
BLÚSSA
1.995
á Kringlukasti
á Kringlukasti
KJÓLL
4.995
KJÓLL
4.995 KJÓLL
4.995
KJÓLL
3.995
á Kringlukasti
á Kringlukasti
á Kringlukasti
KRINGLUNNI | 588 2300
á Kringlukasti
3 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s T U D a G U r4 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F s s T í l l
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
4
-1
6
2
4
1
D
1
4
-1
4
E
8
1
D
1
4
-1
3
A
C
1
D
1
4
-1
2
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K