Fréttablaðið - 07.06.2017, Síða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 3 2 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 7 . j ú n Í 2 0 1 7
FrÍtt
Nafnið breytist en áfangastaðirnir hafa enn sama aðdráttarafl.
Ævinlega velkomin um borð. airicelandconnect.is
ViðsKipti Almenna leigufélagið, sem
á um 1.300 íbúðir, metur fasteigna
safn sitt á um 38 milljarða. Íbúðir
Heimavalla eru metnar á um 41
milljarð en frekari kaup á fasteignum
á þessu ári, til viðbótar við þær 2.020
sem þetta stærsta leigufélag landsins
á, gætu aukið virði eignasafnsins í 50
milljarða.
Samkvæmt nýbirtum ársreikningi
Almenna leigufélagsins, sem er í eigu
sjóðs í stýringu hjá Gamma, voru
íbúðir þess metnar á 29,8 milljarða
í árslok 2016. Í lok mars samþykkti
Samkeppniseftirlitið svo kaup félags
ins á BK eignum ehf. og runnu þá 360
fasteignir í eignasafnið til viðbótar.
„Við höfum engin plön um að
stækka félagið enda er það í þægilegri
stærð varðandi endurfjármögnun og
skráningu á markað,“ segir María
Björk Einarsdóttir, framkvæmda
stjóri Almenna leigufélagsins.
Heimavellir leigja út, eða hafa í
byggingu, um 2.020 íbúðir. Horft er
til að íbúðum þess á höfuðborgar
svæðinu fjölgi um 400 á næstu
tveimur árum. Félagið var rekið
með 2.061 milljónar króna hagnaði
í fyrra og átti fasteignir upp á 40,7
milljarða. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins er stefnt að frekari stækkun
eignasafnsins þannig að það muni
við lok árs nema nær 50 milljörðum.
Stækkun Heimavalla hefur líkt
og hjá Almenna leigufélaginu byggt
að miklu leyti á sameiningu við
önnur leigufélög og kaupum á eign
um af Íbúðalánasjóði.
Áður en Almenna leigufélagið
keypti BK eignir hafði það samein
ast Leigufélaginu Kletti sem Íbúða
lánasjóður seldi í fyrra og eignaðist
þá þær 450 íbúðir sem í Kletti voru.
Bæði leigufélögin eiga fasteignir
á höfuðborgarsvæðinu og á lands
byggðinni.
Heimavellir keyptu í fyrra leigu
félagið Ásabyggð á Ásbrú í Reykja
nesbæ og bættu þá við sig 716 íbúð
um í Keflavík. – hg
Leigurisarnir tveir eiga
íbúðir fyrir 79 milljarða
Fasteignir Almenna leigufélagsins, annars stærsta leigufélags landsins, eru nú
metnar á um 38 milljarða króna. Heimavellir er stærsta leigufélagið á landinu,
en eignasafn félagsins gæti farið upp í 50 milljarða áður en árinu er lokið.
dóMsMál Erfitt verður að finna
hæfa dómara til að takast á við
fyrirhugað dómsmál vegna tillögu
Sigríðar Andersen dómsmálaráð
herra um skipan dómara í Lands
rétt. Tengsl umsækjendanna 37 við
helstu dómstóla landsins og laga
deildir háskólanna gera þetta að
verkum. Svo gæti farið að lögmenn
með enga dómarareynslu veljist til
verksins. – snæ / sjá síðu 4
Vanhæfi uppi í
dómaramáli
lÍFið Krummi Björgvins, betur þekkt
ur sem Krummi í Mínus,
stofnar Veganæs, ásamt
fríðu föruneyti og ber
þar fram vegan þæg
inda og þynnku
mat. Hafin er
hópsöfnun á
Karolina Fund.
– sþh / sjá síðu 22
Þynnkumatur
grænkeranna
sKOðun Þröstur Ólafsson skrifar
um ráðherra á refilstigum. 10
spOrt Birkir Bjarnason er klár í
slaginn gegn Króötum. 12
lÍFið Theresa May, forsætisráð
herra Bret lands, er þekkt fyrir
skósafn sitt. 20
Fréttablaðið í dag
plús 1 sérblað l FólK
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
„Hvar borga ég þegar ég búinn að þrífa bílinn?“ spurði belgískur ferðamaður sem varð á vegi ljósmyndara Fréttablaðsins á Mývatni í gær. Hann hefur verið á Íslandi í fjóra daga og finnst
landið dásamlegt. Best þykir honum að upplifa sýnishorn af öllum veðrum á einum degi. Það kom honum á óvart er honum var tjáð að slydda væri ekki venjan í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/BENEDIKT
ViðsKipti Skúli Mogensen, forstjóri
WOW air, hefur beint flug til Asíu á
næsta ári. „Þá sjáum við, eins og þegar
við hófum beint flug til Kaliforníu,
gríðarlega aukningu þaðan í ferða
mannastraumi til Íslands.“ Hann segir
nauðsynlegt að byggja upp alþjóðleg
an tengiflugvöll til að tryggja stöðug
leika ferðamannastraumsins, annars
gæti orðið skyndilegt hrun ef einn
markaður bregst. - hae / sjá Markaðinn
Beint flug til
Asíu á næsta ári
0
7
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
0
3
-B
1
4
4
1
D
0
3
-B
0
0
8
1
D
0
3
-A
E
C
C
1
D
0
3
-A
D
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
6
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K